Árásin í London: May gagnrýnd fyrir niðurskurð til löggæslumála Oddur Ævar Gunnarsson skrifar 5. júní 2017 12:02 Theresa May, forsætisráðherra Bretlands. Vísir/EPA
Theresa May, forsætisráðherra Bretlands, er harðlega gagnrýnd fyrir niðurskurð til löggæslumála undanfarin ár undir stjórn Íhaldsflokksins, eftir þrjár hryðjuverkaárásir í landinu þrjá mánuði í röð. Guardian greinir frá.Kosningabarátta hófst aftur í Bretlandi í dag eftir hlé í gær vegna árásarinnar í London og hélt May framboðsræðu í London. Þar sagði hún að valið í kosningunum sem fara fram þann 8. júní næstkomandi stæði á milli hennar sem reynslumikils leiðtoga og Jeremy Corbyn, manns sem hefði enga reynslu af stjórnun. Eftir að ræðu May var lokið var hún ítrekað spurð út í stefnu Íhaldsflokksins varðandi löggæslumál og hvers vegna vopnuðum lögreglumönnum hefði fækkað jafnt og þétt og væru nú færri heldur en árið 2010. May var auk þess spurð hvort að hún hefði séð eftir því að hafa skorið niður fjármagn til lögreglunnar á ferli sínum sem innanríkisráðherra árin 2010-2016 með þeim afleiðingum að lögreglumönnum fækkaði um 20 þúsund.„Lögreglan í Bretlandi er vel fjármögnuð. Við höfum ekki skorið niður í deildum lögreglunnar sem snúa að hryðjuverkum og við höfum ekki skorið niður til lögreglunnar síðan árið 2015.“ Hún benti á að Verkamannaflokkur Corbyn hefði árið 2015 haft það á stefnuskrá sinni að skera niður til lögreglunnar um önnur tíu prósent en að Íhaldsflokkurinn hefði verið mótfallinn þeim áætlunum.
Mest lesið Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Erlent Þegar forseti Íslands mætti á júmbó-þotu Innlent Stóralvarlegt ástand svo á jörðu sem á himni Innlent Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Erlent Stríðið muni halda áfram út vikuna Erlent Trump: Khamenei látinn Erlent Hafnar átökum eða árekstrum við fyrrverandi forstjóra Innlent Appelsínugul viðvörun á morgun Veður Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Erlent Vara við stórhríð á Austurlandi Veður Fleiri fréttir Gerir stólpagrín að von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Ávarp Trumps: Muni læra að véfengja ekki styrk Bandaríkjanna Ísrael og Bandaríkin ráðast á Íran Neita að heimila Pentagon að nota gervigreindina í fjöldaeftirlit Dróni á sveimi nærri flugmóðurskipi í Malmö líklega rússneskur Starfsmönnum sendiráðsins gefinn kostur á að fara og þá strax í dag Mega ekki skilgreina AfD öfgasamtök í bili Svaraði spurningum um Epstein og fljúgandi furðuhluti Pakistanar gerðu loftárásir á Afganistan í nótt Bandarískur reynslubolti gómaður við að þjálfa Kínverja Úkraínumenn opna drónaverksmiðju á Englandi Mette boðar óvænt til kosninga Alvarleg hótun gegn orkukerfi Norðurlandanna Segjast hafa skotið hryðjuverkamenn á bandarískum báti Hyggjast gefa í kjarnorku- og eldflaugaáætlanir sínar Evrópskir unglingar reykja mest allra af rafrettum Ráðamenn tvísaga um markmið viðræðanna við Íran Gögn um ásökun konu á hendur Trump vantar í Epstein-skjölin Boðaði þingkosningar í skyndi Fjarhægriflokkur sakaður um „kerfisbundna frændhygli“ Nýr Louvre-stjóri sóttur til Versala Fyrrverandi kærasta segir Høiby oft hafa gripið um háls hennar Hefja ræðismannaþjónustu í landtökubyggð á Vesturbakkanum Tíðindalítil en metlöng stefnuræða Sjö gámar frá Íslandi á leið til Úkraínu Sjá meira