Haft samband við þá bændur sem búa næst gilinu Freyja Þórisdóttir og Kristján Már Unnarsson skrifa 26. ágúst 2026 22:27 Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri Múlaþings segir áherslu hafa verið lagða á að veita áfallahjálp og hlúa að fólki í nærumhverfi slysstaðarins. Samsett mynd/Sýn Öryggismál við Stuðlagil hafa verið í brennidepli eftir að ferðamaður lést þegar hann féll ofan í gilið á mánudag. Var það annað banaslysið við gilið á tæplega tveimur árum en sveitarstjóri Múlaþings segir fyrsta viðbragð þegar svona sorglegt mál komi upp vera að hlúa að fólki.
Greint var frá því á mánudag, þann 24. ágúst, að manns væri leitað sem hefði fallið út í Jöklu við Stuðlagil en hann fannst látinn á áttunda tímanum um kvöldið í ánni. Maðurinn var erlendur ferðamaður á fertugsaldri en mikið viðbragð var á vettvangi en um hundrað manns komu að leitinni. Séu til staðar fyrir bændurna „Það sem við hugsum fyrst um þegar svona harmleikur ber að garði er að reyna að hlúa að fólki,“ sagði Dagmar Ýr Stefánsdóttir sveitarstjóri Múlaþings en rætt var við hana í kvöldfréttatíma Sýnar. Í spilaranum hér fyrir neðan má horfa á klippuna úr fréttatímanum. Þá bætti hún einnig við: „Ég veit að hluti af viðbragðinu strax á slysstað var að fá Rauða krossinn á staðinn til að veita fólki áfallahjálp sem varð vitni að slysinu og bara svona vera með þarna í ráðum á meðan leit stóð yfir.“ Því hafi verið fylgt eftir hjá Félagsþjónustu sveitarfélagsins að heyra í bændunum sem búa næst slysstaðnum og fólk látið vita að það geti leitað aðstoðar. En svo vaknar spurningin: Er öryggismálum þarna ábótavant? „Það er auðvitað alltaf hægt að gera meira og meira þegar kemur að öryggismálum og þetta er það sem við viljum vera með mikinn fókus á á þessum ferðamannastöðum okkar,“ sagði Dagmar en hafði þó einnig á orði að það væru „mjög margar perlur á Íslandi sem verða alltaf varasamar.“ Það séu brattir klettar og fossar sem fólk komi hingað til að skoða. Sums staðar átti fólk sig ekki á því hversu straumharðar árnar eru. Ekki góð lausn að girða allt af „Það virðist aldrei vera hægt að gera nóg til þess að forðast það að það verði einhver slys, en að sjálfsögðu viljum við láta gera meira og ég veit að landeigendum er mjög annt um það að standa sig vel og gera allt hvað þeir geta til að koma í veg fyrir frekari slys,“ sagði hún og ítrekaði „það er sameiginlegt markmið okkar allra.“ Aðspurð hvort það væri ekki vænlegast að banna aðgang að gilinu í ljósi atburðanna sagði Dagmar það ekki líklega lausn. „Við viljum fá ferðamenn í heimsókn til okkar og við viljum sinna þeim vel,“ sagði hún og bætti við „ef við færum að girða staði af og hefta einhvers konar aðgengi þá held ég að við værum farin að vinna svolítið á móti markmiðum okkar.“ Það þurfi að finna leið til þess að tryggja öryggi á vinsælum ferðamannastöðum en um leið leyfa fólki að njóta þessara náttúruperla sem það kemur til að skoða.
Ferðaþjónusta Múlaþing Stuðlagil Lögreglumál Öryggi á ferðamannastöðum Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Tvær líkamsárásir á borði lögreglu Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Auglýsingatekjur Rúv undir fyrirhuguðu þaki þrjú ár í röð Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Öflugur jarðskjálfti í Bárðarbungu Meiri líkur en minni á að kjarasamningum verði sagt upp Rubio lentur á Íslandi Hafna ásökunum um svik og benda á stjórnvöld Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Opnuðu Arnarnesveg að hluta Tvöföld árekstrarhætta þegar flugumferðarstjóri missti yfirsýn Meirihlutinn sprakk aftur vegna vallarmála Segir Aþenu í andarslitrunum Rubio spenntur að hitta Þorgerði Skakkur á stolnum strætó Tugir starfsmanna Reykjavíkur veiktust Trúnaðarbrestur milli flokka og innan flokks Tuttugu milljónir fyrir rafmagn hjólhýsa SA hafi skilað auðu og telur að samningum verði sagt upp Einn í haldi eftir handtöku í flugstöðinni Ekki fleiri tilkynnt kynferðisbrot í fimm ár Þessi eru tilnefnd til menntaverðlauna Tíu manns veitt sálgæsla eftir banaslysið Ögurstund í kjarasamningamálum „Ég geri ekki ráð fyrir því að við munum halda útgáfupartí í Valhöll“ Aldraður læknir sparkaði í flugfreyju Vill breyta umdeildum gatnamótum „Við erum ekki að gera þetta til að gleðja fólk í Brussel“ Sjá meira