Rokkhátíð stöðvuð vegna hryðjuverkaógnar Sunna Karen Sigurþórsdóttir skrifar 2. júní 2017 20:41 Grunur leikur á að hryðjuverk hafi verið yfirvofandi. vísir/afp
Þýska lögreglan hefur rýmt tónleikasvæði rokkhátíðarinnar Rock am Ring í Nürburg í vesturhluta landsins vegna hryðjuverkaógnar. Um er að ræða eina stærstu rokkhátíð Þýskalands sem hófst í dag og átti að standa yfir í þrjá daga. Níutíu þúsund manns voru samankomin á svæðinu. Lögreglan segist hafa haldbærar sannanir fyrir því að hryðjuverk hafi verið yfirvofandi og bað fólk því um að yfirgefa svæðið, en tónleikagestir voru á sama tíma beðnir um að halda ró sinni og hefur rýmingin gengið vel. Rannsókn stendur nú yfir á svæðinu og segja tónleikahaldarar á Facebook að bundnar séu vonir við að hátíðinni verði framhaldið á morgun. Hátíðin fagnar þrjátíu ára afmæli í ár. Hljómsveitirnar Welshy, Arms, In Flames og 2Cellos áttu að stíga á svið í kvöld. Þá eru hljómsveitirnar Rammstein og System of a Down sömuleiðis á dagskrá, svo fátt eitt sé nefnt. BREAKING VIDEO: 80,000 people attending the Rock Am Ring Festival currently evacuating due to terror threat. pic.twitter.com/JtficZ5alc— TheAnonJournal (@TheAnonJournal) June 2, 2017
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Marius sleppur ekki eftir allt saman Erlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Leiðtogaskipti hjá Sósíalistaflokknum Innlent Fleiri fréttir Rússar vígbúast við mörk Norðurlanda Rufu hljóðmúrinn í fyrsta sinn en mæla hávaðann seinna Marius sleppur ekki eftir allt saman Ætla að sækja óeirðaseggi í Belfast til saka Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sjá meira