Radiohead kom aðdáendum á óvart með nýju myndbandi við gamalt lag Tryggvi Páll Tryggvason skrifar 2. júní 2017 14:52 Lagalisti viðhafnarútgáfunnar.
Breska hljómsveitin Radiohead kom aðdáendum sínum á óvart í dag með því að gefa út myndband fyrir hið 21 árs gamla lag I Promise. Lagið er hluti af sérstakri viðhafnarútgáfu hljómsveitarinnar af plötunni Ok Computer sem kemur út síðar í mánuðinum. Þar má finna ýmis góðgæti fyrir aðdáendur Radiohead, þar á meðal þrjú lög sem tekin voru upp þegar hljómsveitin tók upp Ok Computer. Lögin þrjú hafa hins vegar ekki verið gefin út áður. Svo virðist sem að liðsmenn Radiohead hafi tekið forskot á sæluna og hafa þeir látið útbúa myndband fyrir I Promise, auk þess sem að það er orðið aðgengilegt á streymisveitum á borð við Spotify. Í myndbandinu, sem leikstýrt er af Michal Marczak, má sjá fólk ferðast í strætó seint að nóttu. Ekki er þó allt sem sýnist. Á BBC í gær kom fram að liðsmenn Radiohead hafi verið sérstaklega ánægðir með að upptökur af I Promise hafi fundist við gerð viðhafnarútgáfunnar, þeir hafi talið að upptakan væri týnd og tröllum gegin. Alls fylgja viðhafnarútgáfunni átta b-hliðar og þrjú áður óútgefin lög, ásamt ýmsu öðru, þar á meðal 104 blaðsíður úr dagbók Thom Yorke, söngvara hljómsveitarinnar. Þá má einnig finna upptöku af laginu Lift sem liðsmenn sveitarinnar segja að hefði gert hljómsveitina of vinsæla, hefði það komið út.
Tengdar fréttir Þegar Radiohead hélt bestu tónleika sögunnar Og það breytti öllu. 28. janúar 2016 10:30 Lagið sem hefði gert Radiohead of vinsæla loks að koma út Síðar í þessum mánuði verða tuttugu ár frá því að meistaraverk Radiohead, platan OK Computer, var gefin út. Til þess að minnast þess áfanga mun hljómsveitin gefa út viðhafnarútgáfu af plötunni þar sem með fylgja lög sem tekin voru upp á sama tíma og OK Computer en fengu ekki að að fljóta með á plötunni. 5. maí 2017 13:30 Stórkostlegir tónleikar Radiohead slógu í gegn: „Það er frábært að spila loksins á Íslandi“ Hin goðsagnakennda hljómsveit Radiohead spilaði vel og lengi í Laugardalshöll í gær. Mörg af helstu lögum hljómsveitarinnar fengu að heyrast. 18. júní 2016 10:30 Mest lesið „Algjörlega út úr kortinu fyrir íslenskan listamann“ Tónlist Birti bónorðið í Bændablaðinu Lífið Áslaug Arna situr tíma hjá Hillary Clinton Lífið Uppfyllti loksins loforð um ísbjörn í Reykjavík Lífið Tugmilljóna trúlofunarhringur ofurfyrirsætu vekur athygli Lífið Uppselt á tónleika Laufeyjar og aukatónleikum bætt við Tónlist Geislandi Vigdís og gat á skónum sem mátti ekki sjást Menning Ekki allt sem sýnist í Coldplay-skandalnum Lífið „Pabbi minn gaf okkur saman“ Lífið Er í lagi að fróa sér yfir nektarmyndum af fyrrverandi? Lífið Fleiri fréttir Írar sniðganga Eurovision taki Ísrael þátt „Algjörlega út úr kortinu fyrir íslenskan listamann“ Uppselt á tónleika Laufeyjar og aukatónleikum bætt við Heiðra Arvo Pärt í Landakotskirkju Troðfull Þorlákskirkja minntist Karls Sighvatssonar Einvalalið kemur fram á Karlsvöku Laufey Lín endar Evróputúrinn á Íslandi Fjarsambandinu loksins lokið Frumsýning á Vísi: Fyrsta lag Valdimars í sjö ár og liðsmenn eru Bieber ævinlega þakklátir Raftónlistarhátíðin Extreme Chill haldin í sextánda sinn næstu helgi Laufey syngur á íslensku á nýrri plötu: „Hver annar af kynslóð Laufeyjar er að gera tónlist eins og þessa?“ Lög Sálarinnar verða að kvikmynd Enginn fær að skipta sér af tónlist Laufeyjar Tilkynnti tólftu plötuna í hlaðvarpi kærastans Sjá meira
Lagið sem hefði gert Radiohead of vinsæla loks að koma út Síðar í þessum mánuði verða tuttugu ár frá því að meistaraverk Radiohead, platan OK Computer, var gefin út. Til þess að minnast þess áfanga mun hljómsveitin gefa út viðhafnarútgáfu af plötunni þar sem með fylgja lög sem tekin voru upp á sama tíma og OK Computer en fengu ekki að að fljóta með á plötunni. 5. maí 2017 13:30
Stórkostlegir tónleikar Radiohead slógu í gegn: „Það er frábært að spila loksins á Íslandi“ Hin goðsagnakennda hljómsveit Radiohead spilaði vel og lengi í Laugardalshöll í gær. Mörg af helstu lögum hljómsveitarinnar fengu að heyrast. 18. júní 2016 10:30
Laufey syngur á íslensku á nýrri plötu: „Hver annar af kynslóð Laufeyjar er að gera tónlist eins og þessa?“