Segir aðgerðaleysi við lóðaúthlutanir í borginni hafa skapað mikinn vanda Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 20. júní 2017 14:00 Guðfinna Jóhanna gagnrýnir stefnu meirihlutans í Reykjavík varðandi lóðaúthlutanir.
Framsókn og flugvallarvinir hafa sett á dagskrá borgarstjórnarfundar í dag umræðu um lóðaúthlutanri í borginni á fyrstu þremur árum kjörtímabilsins á lóðum fyrir fjöleignarhús með fleiri en fimm íbúðum. „Einstrengingsleg þéttingar- og lóðaskortsstefna meirihlutans í borginni hefur valdið miklum húsnæðisvanda og hækkun húsnæðisverðs. Fasteignafélögin hafa ráðið ferðinni í borginni á lóðum sem hafa verið í höndum þessara félaga eða banka í mörg ár enda hefur stefna meirihlutans verið sú að úthluta helst ekki fjölbýlishúsalóðum,“ segir Guðfinna Jóhanna Guðmundsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknar og flugvallarvina. Hún segir aðgerðaleysi meirihlutans í borginni varðandi lóðaúthlutanir hafa skapað mikinn vanda. „Uppbygging hefur gengið hægt og eftirspurnin er langt umfram framboð sem hefur haft í för með sér hærra húsnæðisverð. Þétting byggðar á lóðum sem eru í höndum annarra aðila hefur ekki leyst húsnæðisvandann í Reykjavík. Lítið lóðaframboð borgarinnar og staðsetning húsnæðis á þéttingarreitum hefur leitt af sér hærra verð þar sem verið er að byggja á dýrustu stöðum bæjarins, allt á kostnað unga fólksins sem hefur ekki ráð á því húsnæði sem er í boði,“ segir Guðfinna. Hún bendir á að frá því að núverandi meirihluti tók við vorið 2014 hafi lóð fyrir eitt fjöleignarhús með fleiri en fimm íbúðum verið úthlutað á kosningaárinu, einni lóð einnig árið 2015 og svo fjórum lóðum í fyrra. Í mars á þessu ári var svo tveimur lóðum úthlutað og í maí var fimm lóðum úthlutað. Guðfinna segir að samkvæmt upplýsingum frá byggingarfulltrúa í Reykjavík er ekkert af húsunum á þeim lóðum sem hefur verið úthlutað á kjörtímabilinu, það er á síðastliðnum þremur árum, komið lengra en byggingarstig 4 sem er fokheldi.Fundur borgarstjórnar hefst núna klukkan 14 og má fylgjast með útsendingu frá honum hér.Yfirlit yfir lóðirnar sem hefur verið úthlutað fyrir fjöleignarhús með fleiri en fimm íbúðir.
Mest lesið Þúsundir hermanna kallaðir heim frá Þýskalandi Erlent „Slátrarinn frá Bosníu“ við dauðans dyr Erlent Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Innlent Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður Innlent Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Innlent Fleiri fréttir Beittir lögreglutökum eftir ógnandi tilburði í miðbæ Fjöldi viðbragðsbíla kom á vettvang falsboðs Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Sjá meira