"Hefði viljað vera laus við að fá yfirmann frá helvíti“ Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 5. júlí 2017 13:47 Adolf Ingi Erlingsson starfaði hjá RÚV í 22 ár. Hann var rekinn árið 2013 og höfðaði í kjölfarið mál vegna eineltis sem hann taldi sig hafa orðið fyrir af hálfu yfirmanns síns. Hér er hann að störfum á EM í handbolta í Austurríki árið 2010. vísir
Adolf Ingi Erlingsson, fyrrverandi íþróttafréttamaður á RÚV, kveðst vera ánægður með að hafa unnið mál sem hann höfðaði gegn sínum gamla vinnustað vegna eineltis sem hann taldi sig hafa orðið fyrir af hálfu yfirmanns síns, Kristínar H. Hálfdánardóttur. Kristín tók til starfa sem íþróttastjóri RÚV vorið 2009 og en Adolf var sagt upp störfum í nóvember 2013.Kristín Harpa Hálfdánardóttir, fyrrverandi íþróttastjóri RÚV.RÚV var dæmt til að greiða Adolf 2,2 milljónir króna í skaðabætur auk málskostnaðar í Héraðsdómi Reykjavíkur núna í hádeginu en Adolf var í fríi norður í landi þegar Vísir náði af tali af honum og hafði því ekki náð að kynna sér forsendur dómsins. Þá hefur dómurinn ekki verið birtur á vef dómstólanna en Vísir hefur dóminn undir höndum. Þar kemur fram að RÚV skuli greiða Adolf 500 þúsund krónur í skaðabætur vegna eineltis, 500 þúsund krónur vegna ólögmætrar uppsagnar og 1,2 milljónir króna vegna þess fjártjóns sem Adolf varð fyrir vegna starfsmissisins. Margt sem Adolf hefði frekar viljað Aðspurður hvernig honum liði nú þegar niðurstaða væri komin í málið sagði hann að þó að hann hefði að sjálfsögðu frekar viljað vinna málið en tapa því þá væri svo margt sem hann hefði frekar viljað. „Í fyrsta lagi hefði ég viljað vera laus við að fá yfirmann frá helvíti. Í öðru lagi hefði ég viljað að þáverandi yfirstjórn fyrirtækisins hefði haft manndóm í sér til að taka á þessu máli sem blasti við þeim. Í þriðja lagi hefði ég líka viljað að það hefði verið einhver innistæða fyrir orðum núverandi útvarpsstjóra þegar hann sagði að hann vildi ná sáttum í málinu,“ segir Adolf í samtali við Vísi. Hann kveðst hafa átt í viðræðum við Magnús Geir Þórðarson, núverandi útvarpsstjóra, um að ná sátt í málinu en í janúar 2014 var tilkynnt um ráðningu Magnúsar í starf útvarpsstjóra.Adolf Ingi kveðst hafa átt í viðræðum við Magnús Geir Þórðarson, útvarpsstjóra, um að ná sáttum í málinu en hann telji að það hafi verið orðin tóm.VísirSegir engan sáttavilja hafa verið hjá Magnúsi Geir „Við áttum í viðræðum í nokkra mánuði þar sem hann lýsti yfir miklum vilja til þess að ná sáttum og ég var ásamt mínum lögfræðingi í viðræðum við hann og aðra í þó nokkurn tíma. Svo kom í ljós að þetta voru bara tóm orð og það var enginn vilji til að ná sáttum. Þannig að því miður varð ég að fara þessa leið og að sjálfsögðu er ég ánægður með að hafa unnið málið en ekki tapað því,“ segir Adolf. Hann segir málið hafa tekið á enda hefur það tekið langan tíma, og að hans mati alltof langan tíma, en meðferð þess fyrir dómstólum frestaðist til að mynda um níu mánuði þar sem dómarinn, Kjartan Bjarni Björgvinsson, fór til starfa hjá rannsóknarnefnd Alþingis vegna aðkomu þýska bankans Hauck & Aufhäuser að einkavæðingu Búnaðarbankans. Í dómi héraðsdóms er ekki fallist á það með Adolf að sú háttsemi Kristínar að fela öðrum en honum að lýsa íþróttaleikjum og færa hann til á starfsstöð hafi falið í sér einelti. Hins vegar er fallist á það að það hafi falið í sér einelti af hálfu Kristínar að fella niður vaktaálagsgreiðslur til hans, þvert á munnlegt samkomulag þeirra á milli um að hann skyldi halda þeim kjörum þrátt fyrir að hann tæki að sér önnur verkefni innan RÚV.Adolf kvartaði undan einelti Kristínar við Óðinn Jónsson sem var þá fréttastjóri á RÚV.Háttsemi sem var til þess fallin að gera lítið úr Adolf Þá hafi það jafnframt falið í sér einelti að Óðinn Jónsson, þáverandi fréttastjóri, og Berglind Bergþórsdóttir, þáverandi mannauðsstjóri, gerðu Adolf að undirrita minnisblað þar sem hann samþykkti að bæta úr tilteknum ávirðingum sem Kristín hafði borið á hann. Áður hafði Adolf kvartað yfir einelti Kristínar við Óðin sem sendi þá kvörtun áfram á Berglindi. Í dómnum kemur fram Óðinn og Berglind hafi gert honum að undirrita minnisblaðið án þess að kanna „frekar sannleiksgildi eða efnislegar forsendur þeirra ávirðinga sem Kristín bar á hann, svo og umkvartana hans um einelti, áður en þau afhentu honum minnisblað til undirritunar um atriði sem hann þyrfti að bæta. Að sama skapi verður ekki séð að þáverandi mannauðsstjóri og fréttastjóri RÚV ohf. hafi leitað upplýsinga frá öðrum um ástæður og orsakir samstarfsörðugleika Kristínar og Adolfs Inga,“ eins og segir í dómi héraðsdóms. Telur dómurinn að þessi framganga þremenninganna hafi verið til þess fallin að gera lítið úr honum og falli því undir skilgreiningu eineltis. Þá kemst dómurinn að þeirri niðurstöðu að uppsögn Adolfs Inga hafi verið ólögmæt þar sem RÚV hafi ekki sýnt fram á að málefnalegar ástæður hafi legið að baki því að segja honum upp.
Fjölmiðlar Tengdar fréttir Mál Adolfs Inga á hendur RÚV loks fyrir dómsstóla Prófmál verður höfðað á hendur RÚV vegna biðlauna Adolfs Inga Erlingssonar, en það er BHM sem rekur málið fyrir hönd íþróttafréttamannsins. 21. janúar 2015 15:23 Adolf Ingi: Ekki eina fórnarlamb eineltis á RÚV Guðmundur Benediktsson, fyrrverandi þulur á Rás 1, segir einelti grassera innan stofnunarinnar. 6. desember 2013 16:38 RÚV þarf að borga Adolf Inga bætur Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í morgun Ríkisútvarpið til að greiða fyrrverandi íþróttafréttamanninum, Adolfi Inga Erlingssyni, 2,2 milljónir í bætur. 5. júlí 2017 12:30 Mest lesið Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Innlent Ráðgjafar áhyggjufullir og Trump gerði hlé á árásum Erlent „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Innlent Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Innlent Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Innlent Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Innlent Lýsa eftir þekktum öfgamanni Erlent Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Innlent Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Innlent Grunuðum ISIS-liða sleppt úr fangelsi í maí Erlent Fleiri fréttir „Eins og einhverjir fávitar á gólfinu, korter í að grenja“ Hafi sagt að ekki mætti gefa svo mikið morfín en gerði það samt Strandaglópar á Spáni og vont veður á Brennslunni Fjölskyldur skildar eftir á Alicante um miðja nótt Fokin tjöld og slagsmál á Bræðslunni Fluttur á bráðamóttökuna eftir vinnuslys í Kópavogi Evrópumálin, sala áfengis og kjarasamningar á Sprengisandi Stærsta rafflugvélin fær grænt ljós á fyrsta flug Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Sjá meira
Mál Adolfs Inga á hendur RÚV loks fyrir dómsstóla Prófmál verður höfðað á hendur RÚV vegna biðlauna Adolfs Inga Erlingssonar, en það er BHM sem rekur málið fyrir hönd íþróttafréttamannsins. 21. janúar 2015 15:23
Adolf Ingi: Ekki eina fórnarlamb eineltis á RÚV Guðmundur Benediktsson, fyrrverandi þulur á Rás 1, segir einelti grassera innan stofnunarinnar. 6. desember 2013 16:38
RÚV þarf að borga Adolf Inga bætur Héraðsdómur Reykjavíkur dæmdi í morgun Ríkisútvarpið til að greiða fyrrverandi íþróttafréttamanninum, Adolfi Inga Erlingssyni, 2,2 milljónir í bætur. 5. júlí 2017 12:30