Gott að sýna í kirkju á eftir banka Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 1. júlí 2017 09:45 Ég var byrjuð á einföldum teikningum og verkum á pappír þar sem ég vann með hringi og þau þróuðust yfir í þessi málverk þegar ég fékk salinn.
Um snúning himintunglanna nefnist sýning sem myndlistarkonan Marta María Jónsdóttir opnar klukkan 12 á morgun í safnaðarheimili Neskirkju, strax að aflokinni messu. „Ég er ekki ýkja kirkjurækin en mér var boðið að sýna hér í safnaðarheimilinu og það er fallegt rými og áhugavert. Ég hugsaði ósjálfrátt um staðinn þegar ég vann verkin og fannst spennandi og forvitnilegt að sjá þau þar,“ segir listakonan. Hún kveðst vera að fjalla um stórar, klassískar spurningar eins og tímann, eilífðina, ódauðleikann og tengsl vísinda og lista á sýningunni. „Ég var byrjuð á einföldum teikningum og verkum á pappír þar sem ég vann með hringi og þau þróuðust yfir í þessi málverk þegar ég fékk salinn. Fannst það passa. Þannig rúllaði þetta.“ Marta María tekur líka þátt í stórri samsýningu í Listasafni Reykjanesbæjar nú sem nefnist Abstrakt á 21. öldinni þar sem ungir abstraktmálarar sýna. „Áður sýndi ég í Listasafni ASÍ og í janúar var ég með sýningu í Arion banka þannig að verkin mín eru sett upp í ýmsu samhengi. Mér finnst gott að sýna í kirkju á eftir banka.“
Mest lesið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Fleiri fréttir Skúli Tómas, Herbert og Ragnar í hörkustuði á Kjarval „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira