Kom ein til Íslands með miða aðra leið Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 12. júlí 2017 19:31 Louise Soreda er fædd árið 1995 en ekkert hefur til hennar spurst síðan hún kom til landsins þann 5. júlí síðastliðinn. Lögreglan á Suðurnesjum
Louise Soreda, frönsk kona sem lögreglan á Suðurnesjum lýsti eftir fyrr í dag, kom ein hingað til lands og var aðeins með miða aðra leið. Lögreglan hefur fengið mikið af upplýsingum síðan lýst var eftir Louise í dag en Jón Halldór Sigurðsson, lögreglumaður á Suðurnesjum, sagði í Reykjavík síðdegis á Bylgjunni í dag að verið væri að vinna úr öllum ábendingunum. Enn væri ekkert komið fram í málinu sem hægt væri að festa reiður á. Jón Halldór að sagði að svo virðist sem Louise hafi komið hingað til lands ein. „Hún kom til landsins aðfaranótt fimmta, bara með bókað flugfar aðra leið og engin önnur ferðaáætlun sem liggur fyrir.“Fengu fyrirspurn frá Interpol Fyrirspurn barst til lögreglunnar hér á landi frá Interpol í París tveimur dögum eftir að Louise kom til Íslands. „Það eru ættingjar sem eru farnir að lýsa áhyggjum af henni og vita lítið um ferðir hennar og raunar ekki neitt,“ sagði Jón Halldór. Aðspurður hvort að vitað sé að hún hafi tengsl við einhvern hér á landi sagði Jón Halldór ekkert liggja fyrir um það. Enn hefur ekki verið farið í það að kalla út björgunarsveitir til að leita að Louise. „Þetta er tiltölulega umfangsmikið hjá okkur hér á lögreglustöðinni en við höfum ekki brugðið á það ráð að kalla út björgunarsveitir. Við erum núna að safna saman upplýsingum, einhvers staðar hefur hún komið við, og það er bara verið að fara yfir og kanna grundvöll þeirra upplýsinga sem okkur berast í húsið. [...] Annað hvort finnst hún á mjög skömmum tíma, það er ef hún fær fréttir af því að það er verið að leita að henni og ef ekki förum við náttúrulega í massívari leit, kalla út björgunarsveitir og þess háttar,“ sagði Jón Halldór.Með ljósan lokk í svörtu síðu hári Louise er fædd árið 1995. Síðast er sást til hennar var hún klædd bláum gallabuxum, brúnum fjallgönguskóm og hvítri peysu. Þá hafði hún meðferðis stóran rauðan bakpoka ásamt upprúllaðri ljósgrárri dýnu. Jón Halldór bendir svo líka á einn áberandi þátt í útliti Louise en það er ljós lokkur sem hún er með niður eftir síðu dökku hári. Þeim sem telja sig geta veitt upplýsingar um ferðir Louise er bent á síma lögreglunnar á Suðurnesjum, 444-2200.
Tengdar fréttir Slökkti á símanum og fór til Íslands án þess að láta nokkurn vita Fjölskylda frönsku ferðakonunnar segist viti sínu fjær af áhyggjum. 12. júlí 2017 12:06 Lögregla lýsir eftir frönskum ferðamanni Lögreglan á Suðurnesjum óskar eftir aðstoð almennings við að hafa upp á frönskum ferðamanni, Louise Soreda, fædd árið 1995. 12. júlí 2017 09:44 Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands Sjá meira
Slökkti á símanum og fór til Íslands án þess að láta nokkurn vita Fjölskylda frönsku ferðakonunnar segist viti sínu fjær af áhyggjum. 12. júlí 2017 12:06
Lögregla lýsir eftir frönskum ferðamanni Lögreglan á Suðurnesjum óskar eftir aðstoð almennings við að hafa upp á frönskum ferðamanni, Louise Soreda, fædd árið 1995. 12. júlí 2017 09:44