Komu í veg fyrir mengunarslys á vatnsverndarsvæði í Hörgárdal Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 11. júlí 2017 15:57 Mikill fjöldi fólks kom að aðgerðum á vettvangi en þeim er að ljúka.
Olíuflutningabíllinn sem valt við Búðará í Hörgárdal er kominn upp á veg og er aðgerðum að ljúka á vettvangi. Segja má að tekist hafi að koma í veg fyrir mengunarslys þar sem afar lítið af olíu lak úr bílnum. 3000 lítrar af díselolíu voru í bílnum en óhappið á vatnsverndarsvæði Norðurorku í Hörgárdal og því var allt kapp lagt á að koma í veg fyrir að olían læki úr bílnum. „Mengunin sem kom frá þessu var algjörlega minniháttar. Það lekur alltaf einhver olía eða glussi þegar svona bílar fara á hliðina en það var ekkert meira í þessu tilviki en vanalega. Þetta var bara algjört smotterí sem var hægt að hreinsa upp með sérstökum mottum svo þetta slapp alveg til,“ segir Jóhannes Sigfússon, varðstjóri hjá lögreglunni á Norðurlandi eystra, í samtali við Vísi. Ekki þurfti að dæla úr bílnum en þegar það er gert eru alltaf töluverðar líkur á að meiri olía leki. Það var hins vegar ekki í þessu tilfelli. „Þetta var vandasamt verk en kranabílstjórar og aðrir sem komu að þessu vönduðu sig svo þetta gekk vel og það varð ekki mengun af þessu,“ segir Jóhannes. Ekki liggur fyrir um tildrög slyssins en lögreglan fer með rannsókn málsins. Ökumaður bílsins var fluttur á slysadeild með minniháttar meiðsl. Fjöldi fólks kom að aðgerðunum í Hörgárdal því auk lögreglu var slökkviliðið kallað til, kranabílar, starfsmenn Norðurorku og björgunarsveitarmenn frá björgunarsveitinni súlum. Reimar Viðarsson sem stjórnaði aðgerðum svæðisstjórnar Landsbjargar segir að það hafi farið betur en á horfðist í upphafi. „Í fyrsta lagði að ökumaðurinn slasaðist ekki alvarlega og svo númer tvö að það varð engin mengun vegna þessa,“ segir Reimar í samtali við Vísi.
Tengdar fréttir Unnið að því að koma í veg fyrir mengunarslys við Myrká Olíuflutningabíll vegar salt á brúnni við Búðará. 11. júlí 2017 12:51 Mest lesið Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Innlent Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Innlent Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Innlent „Dapurlegt pólitískt útspil“ Innlent Banaslys í Skorradalsvatni Innlent Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Innlent Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri Innlent Safna í sérstakt sjóherlið á Norðurslóðum Erlent Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Innlent Vasaþjófnaður aukist að undanförnu Innlent Fleiri fréttir Meirihlutinn fallinn og VG á þingi Farfuglar koma marktækt fyrr til landsins en áður „Dapurlegt pólitískt útspil“ Höfðinginn átti sig ekki á lokuninni Myndaveisla: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sinueldur í Grafarvogi Þetta sé bæjarstjórn Kópavogs til skammar Framboðum Miðflokksins fjölgar um átta milli kosninga Lífið umturnaðist í kjölfar slyssins Bein útsending: Verkalýðsdagurinn haldinn hátíðlegur Sendi ekki reikning og fær því ekki greitt Langhæsti styrkurinn fer til Eyja Vasaþjófnaður aukist að undanförnu „Bjóða fram“ Biðlistann í Reykjavík Ofurölvi reyndi að opna bíla í akstri „Við erum með lengri óskalista heldur en þetta“ Segist ekkert hafa fengið greitt: „Pólitískur hráskinnaleikur“ „Þetta er bara eins og að missa vini sína“ Andar köldu milli Viðreisnar- og Miðflokksmanna Föst í umferð í tæpa fjóra sólarhringa á ári og kostnaðurinn yfir hundrað milljarðar Banaslys í Skorradalsvatni Glæný könnun gæti varpað ljósi á meirihlutamyndun Hlaðvarpsstjórnendur fá nýjar leiðbeiningar Urðu eftir í Flatey á meðan Baldur sigldi suður Halla fagnaði áttræðum Karli Gústafi Sömdu um stækkun á Fylkisseli Kannast ekki við meint rán í Lágafellskirkju Ákærður fyrir að eitra fyrir samstarfsfélaga með kannabis Tjáir sig ekki um greiðslur frá Rúv en boðar yfirlýsingu Skipulagt niðurbrot á réttindum launafólks hafi náð til Íslands Sjá meira
Unnið að því að koma í veg fyrir mengunarslys við Myrká Olíuflutningabíll vegar salt á brúnni við Búðará. 11. júlí 2017 12:51