Systurnar í Haim eru ánægðar með Ísland Margrét Helga Erlingsdóttir skrifar 29. júlí 2017 15:15 Systurnar spiluðu á Iceland Airwaves-hátíðinni árið 2012. Tónleikarnir virðast vera þeim minnisstæðir. Vísir/getty “
Við höfum virkilega unun af því að spila. Þegar Days are Gone kom út fengum við tækifæri til að halda tónleika um allan heim. Ég hefði aldrei getað ímyndað mér að við myndum einhvern tíman fá að ferðast til helming þeirra landa sem við höfum heimsótt. Við höfum farið til Íslands!”Tónlistin er í fyrsta sæti hjá systrunum.Vísir/gettyÍ nýjasta tölublaði V Magazine segja systurnar í hljómsveitinni Haim frá tónleikaferð sinni um heiminn og nýju plötunni þeirra Something to Tell You sem margir hafa beðið með mikilli eftirvæntingu. Þær hafa ferðast víða og til að útskýra fyrir blaðamanni hversu víðförlar þær eru segjast þær hafa komið alla leið til Íslands. Hljómsveitin Haim spilaði á Iceland Airwaves-hátíðinni árið 2012. Þegar þær renna hugsjóninni yfir tónleikaferðalagið sitt virðast tónleikarnir á Gamla gauk á litla Íslandi hafa verið tónlistarkonunum minnisstæðir. Hljómsveitina skipa þær Alana, Danielle og Este Haim frá Californíu í Bandaríkjunum.Days are Gone plötunni var gríðarlega vel tekið og var hún m.a. nefnd á lista Pitchfork yfir hundrað bestu plötur áratugarins. Þær hafa spilað nánast sleitulaust á tónleikaferðalagi síðan platan kom út enda er það helsta ástríða þeirra: “Við ætlum að spila þangað til blæðir úr fingrunum og blóð flæðir út úr eyrunum á okkur,” segir ein Haim-systranna með afar myndrænum hætti.Ný plata og hnetusmjörssamlokurEftir tónleikaferðalagið hélt leið systranna rakleiðis í foreldrahús þar sem þær eru búnar að koma sér upp upptökuveri. Þar sömdu þær og tóku upp plötuna Something to Tell You sem kom út fyrr í þessum mánuði. Á meðan á upptökunni stóð framreiddi móðir þeirra gómsætar samlokur með hnetusmjöri og sultu sem eflaust hefur aukið sköpunargleði systranna.Nýja platan fjallar um mannleg samskipti.Vísir/gettyÓtal samskiptaleiðir en skortur á raunverulegum samskiptum Alana Haim, ein systranna, segir að nýja platan fjalli að miklu leyti um mannleg samskipti. Hún segir að þær systur eigi einstaklega bágt með þau. Rót vandamálsins telur hún liggja í nútímaháttum. “Við búum við allar þessar ólíku samskiptaleiðir: Þú getur sent tölvupóst, þú getur sent smáskilaboð og þú getur hringt. Þú getur farið ótal leiðir á sama tíma og þú getur ekki sagt neinum hvernig þér líður raunverulega. Þú ert alltaf í hausnum á þér,” segir Alana til útskýringar. Sú elsta innan systraveldisins, Este Haim, segir að systurnar séu bestar í að tjá sig í gegnum tónlistina. Það sé besti farvegurinn fyrir tilfinningar og tjáningu. Hún segir að tónlistarsköpunin hafi heilandi áhrif á sig. Este bendir á hversu mótsagnarkennd mannleg samskipti eru á okkar tímum þegar hún segir að þau séu auðveld en líka erfið.
Mest lesið Áslaug Arna situr tíma hjá Hillary Clinton Lífið Uppfyllti loksins loforð um ísbjörn í Reykjavík Lífið Tugmilljóna trúlofunarhringur ofurfyrirsætu vekur athygli Lífið Ekki allt sem sýnist í Coldplay-skandalnum Lífið „Pabbi minn gaf okkur saman“ Lífið Er í lagi að fróa sér yfir nektarmyndum af fyrrverandi? Lífið Geislandi Vigdís og gat á skónum sem mátti ekki sjást Menning Uppselt á tónleika Laufeyjar og aukatónleikum bætt við Tónlist „Eiginlega vandræðalega mikil áhrif“ Lífið Unnsteinn Manuel og Ágústa selja hvíta miðbæjarperlu Lífið Fleiri fréttir Uppselt á tónleika Laufeyjar og aukatónleikum bætt við Heiðra Arvo Pärt í Landakotskirkju Troðfull Þorlákskirkja minntist Karls Sighvatssonar Einvalalið kemur fram á Karlsvöku Laufey Lín endar Evróputúrinn á Íslandi Fjarsambandinu loksins lokið Frumsýning á Vísi: Fyrsta lag Valdimars í sjö ár og liðsmenn eru Bieber ævinlega þakklátir Raftónlistarhátíðin Extreme Chill haldin í sextánda sinn næstu helgi Laufey syngur á íslensku á nýrri plötu: „Hver annar af kynslóð Laufeyjar er að gera tónlist eins og þessa?“ Lög Sálarinnar verða að kvikmynd Enginn fær að skipta sér af tónlist Laufeyjar Tilkynnti tólftu plötuna í hlaðvarpi kærastans Sjá meira
Laufey syngur á íslensku á nýrri plötu: „Hver annar af kynslóð Laufeyjar er að gera tónlist eins og þessa?“