Lokkuðu fjölda stúlkna til sín með vímuefnum og nauðguðu þeim Kristín Ólafsdóttir skrifar 9. ágúst 2017 16:57 Um er að ræða átján sakborninga, sautján karlmenn og eina konu. Lögreglan í Northumberland
Sautján karlmenn og ein kona hafa verið dæmd sek fyrir aðild að vændis- og mansalshring í bresku borginni Newcastle. Sakborningarnir buðu ítrekað stúlkum á aldrinum 13-25 ára eiturlyf og nauðguðu þeim eða neyddu til annarra kynlífsathafna í skiptum fyrir efnin. Brotin, sem eru mjög viðamikil, voru framin á árunum 2011-2014 en fyrstu ásakanir á hendur fólkinu komu fram í desember árið 2013. Þá var fyrst ákært í málinu í febrúar 2015 en fjórðu og síðustu réttarhöldunum yfir sakborningum málsins lauk í dag, að því er fram kemur á vef The Guardian.Unnu sér inn traust stúlknanna og lokkuðu þær á staðinn með vímuefnum Karlmennirnir sautján hafa verið dæmdir sekir fyrir nær hundrað brot samanlagt. Þeir voru meðal annars dæmdir fyrir nauðganir, mansal, að hafa samráð um vændisstarfsemi og fíkniefnatengd brot. Mennirnir stofnuðu til vinskapar við yfir tuttugu stúlkur á aldrinum 13-25 ára, unnu sér inn traust þeirra og buðu að því búnu á „fundi“ í húsnæði víðsvegar um Newcastle. Stúlkurnar voru lokkaðar á staðinn með gylliboðum um áfengi og fíkniefni. Þeim var svo nauðgað eða þær látnar bjóða upp á kynlífsþjónustu í skiptum fyrir efnin. Í dómnum yfir mönnunum kemur fram að þeir hafi sérstaklega brotið á stúlkum sem voru varnarlausar og „ólíklegri til að kvarta vegna aðstæðna.“ Nokkrar ungar konur, sem báru vitni í málinu, lýstu því hvernig þeim hafði verið byrluð ólyfjan og komist svo til meðvitundar eftir að hafa verið misnotaðar kynferðislega.Svipuð mál hafa komið upp Einhverjir mannanna tengjast fjölskylduböndum og aðrir hafa verið vinir síðan í æsku. Málinu svipar nokkuð til annarra mála sem komið hafa upp í Bretlandi, til að mynda í bæjunum Rotherdam og Rochdale. Í öllum tilvikum er um að ræða hópa karlmanna af breskum og asískum uppruna sem misnota hvítar stúlkur en karlmennirnir í Newcastle-málinu eiga meðal annars ættir að rekja til Bangladesh, Pakistan og Indlands. Þá hefur rannsókn málsins verið nokkuð umdeild en lögregla borgaði dæmdum barnaníðingi rúmar 1,3 milljónir króna fyrir að njósna um mennina sem síðar voru dæmdir. Maðurinn, sem lögregla borgaði, var síðar metinn vanhæfur til að bera vitni í réttarhöldunum. Búist er við því að flestir sem sakfelldir hafa verið í málinu verði dæmdir til refsingar þann 4. september næstkomandi. Þá þótti ástæða til að taka fram að þó að margir sakborninganna væru ákærðir fyrir samráð um vændisstarfsemi í gróðaskyni þá væri ekkert sem benti til þess að nokkurt fórnarlambanna starfaði í kynlífsiðnaði. Nánari umfjöllun um málið má finna á vefsíðum breska dagblaðsins The Guardian og breska ríkisútvarpsins, BBC.
Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Erlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Rafmagnið tekið af hjólhýsabyggðinni: „Þú gerir þetta ekki korteri fyrir jól“ Innlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Fleiri fréttir Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Sjá meira