Færðu Pepsi-deildar leik kvenna á sama tíma og undanúrslit EM kvenna Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. ágúst 2017 13:43 Stjörnukonan Ana Victoria Cate. Vísir/Valli
Fyrsti leikur Pepsi-deildar kvenna í fótbolta eftir EM-frí fer fram á Grindavíkurvelli í kvöld. Pepsi-deildin átti að vera í fríi þar til eftir Verslunarmannahelgi en einn leikur var færður fram vegna þátttöku Stjörnunnar í forkeppni Meistaradeildar kvenna. Leikur Grindavíkur og Stjörnunnar átti fara fram 19. ágúst klukkan 14.00 á Grindavíkurvelli en fer nú fram í kvöld klukkan 19.15 á Grindavíkurvelli. Ástæða breytingarinnar er að síðar í ágúst tekur Stjarnan þátt í forkeppni Meistaradeildar kvenna. Forkeppnin verður leikin í tíu fjögurra liða riðlum og munu sigurvegararnir fara í lokakeppni mótsins auk þess liðs sem nær bestum árangri í öðru sæti riðlakeppninnar. Riðill Stjörnunnar verður leikinn í Króatíu 22.til 28. ágúst en auk Stjörnunnar eru í riðlinum ŽNK Osijek frá Króatíu, Klaksvík Ítrottarfelag frá Færeyjum og ŽFK SC Istatov frá Makedóníu. Athygli vekur þó að leikurinn er settur á sama tíma og leikur í undanúrslitum EM kvenna í fótbolta. Undanúrslitaleikur Hollands og Englands hefst klukkan 18.45 í kvöld að íslenskum tíma. Það hefur ekki verið vinsælt að fara með leikinn nær Verslunarmannahelginni og því þurfa stelpurnar og stuðningsfólk liðanna að fórna öðrum undanúrslitaleiknum á EM. Þau ná hinsvegar fyrri undanúrslitaleik Danmerkur og Austurríkis sem hefst klukkan 16.00. Stjarnan getur minnkað forskot Þór/KA á toppi Pepsi-deildar kvenna í þrjú stig með sigri í Grindavík í kvöld.
Pepsi Max-deild kvenna Mest lesið Bein útsending: Landsliðakeppni í Bakgarðshlaupi Sport Finnur til með Arnari Handbolti Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Íslenski boltinn Tvö lið hætt við HM og Spánverjar hlaupa í appelsínugulri viðvörun Sport Isak sneri aftur og tryggði sigur á níu Brentford-mönnum Enski boltinn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Íslenski boltinn Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Íslenski boltinn Keflavík - KR | Geta gulltryggt annað sætið Íslenski boltinn Lyfti litlu tæki í stað gulra og rauðra spjalda Fótbolti Þór - Stjarnan | Heimamenn í mikilli fallbaráttu Íslenski boltinn Fleiri fréttir Þór - Stjarnan | Heimamenn í mikilli fallbaráttu Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Keflavík - KR | Geta gulltryggt annað sætið Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð í miklum hitaleik Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Bjarni Jó hættur Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” Sjá meira