Tíu ára indversk stúlka fæðir barn nauðgara síns Kristín Ólafsdóttir skrifar 17. ágúst 2017 10:47 Indland á sér langa sögu kynferðisofbeldis gegn konum. Myndin er frá mótmælum vegna nauðgunar á 24 ára gamalli konu í almenningsgarði í Nýju-Delí í febrúar síðastliðinn. Vísir/AFP
Tíu ára indversk stúlka, sem varð ólétt eftir nauðgara sinn og í kjölfarið neitað um fóstureyðingu, hefur fætt stúlkubarn. Hæstiréttur Indlands neitaði stúlkunni um fóstureyðingu í síðasta mánuði, að því er fram kemur í frétt BBC. Stúlkan er ekki meðvituð um að hún hafi fætt barnið en það var tekið með keisaraskurði. Þá var stúlkan heldur ekki meðvituð um að hún gengi með barn en henni var sagt að hún væri með stóran stein í maganum og þess vegna væri hann svo útstæður. Barn stúlkunnar kom í heiminn í Chandigarh á Indlandi rétt fyrir fjögur í nótt að íslenskum tíma. Líðan móður og barns er góð, að sögn embættismanns á svæðinu. Frændi stúlkunnar er sagður hafa nauðgað henni ítrekað síðustu sjö mánuði en hann hefur verið handtekinn. Ekki er nema mánuður síðan uppgötvað var að stúlkan væri þunguð. Hún hafði kvartað undan magaverkjum og foreldrar hennar fóru í kjölfarið með hana á sjúkrahús. Hæstiréttur Indlands neitaði stúlkunni um fóstureyðingu á grundvelli þess að hún væri of langt gengin með barnið. Nefnd lækna sagði fóstureyðingu á þessu stigi þungunar „of áhættusama.“
Mest lesið Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Erlent Játar að hafa logið til um nauðgun Innlent „Tíminn er á þrotum“ Erlent Dánartilkynningin: „Ég myndi aldrei eyða fjörutíu þúsund krónum í þetta“ Innlent Nauðlenti vegna sprengjuhótunar Erlent Hrákinn endaði í andliti og auga Innlent Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Hafi ráðist á sambýliskonu sína á Tenerife Innlent Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Erlent Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Fleiri fréttir Taka u-beygju og vilja að Evrópa kaupi aftur gas af Rússum Nauðlenti vegna sprengjuhótunar „Tíminn er á þrotum“ Sprengjum varpað á skóla meðan fólk beið eftir brauði Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Sjá meira