Fyrstu leikir tímabilsins verða Evrópuleikir hjá Val, FH og Aftureldingu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 15. ágúst 2017 19:00 Valsmenn spila tvo Evrópuleiki áður en þeir hefja titilvörnina. Vísir/Ernir
Þrjú íslensk lið, sem taka þátt í Evrópukeppninni í vetur, þurfa að spila sína fyrstu Evrópuleiki áður en Íslandsmótið hefst. Valur, FH og Afturelding verða því búin að spila tvo Evrópuleiki þegar kemur að fyrstu umferð Olís-deildar karla. Öll þrjú liðin taka þátt í EHF-bikarnum og eru leikirnir í fyrstu umferð forkeppninnar. Afturelding mætir norska félaginu Bækkelaget. Fyrri leikurinn er á heimavelli Mosfelling á Varmá 2. september en sá síðari viku síðar í Osló í Noregi. Íslands- og bikarmeistarar Valsmanna lentu á móti ítalska félaginu SSV Bozen Loacker Volksbank en báðir leikirnir verða spilaðir hér á landi. Leikirnir við Bozen fara fram 9. og 10. september í Valshöllinni. FH-liðið mætir síðan tékkneska félaginu HC Dukla Prag. Fyrri leikurinn er í Tékklandi 3. september en síðari í Kaplakrika 9. september. Þetta er í annað skiptið sem FH spilar við tékkneska félagið Dukla Prag í Evrópukeppni en bæði Þróttur og Víkingur léku einnig gegn liðinu á sínum tíma eða þegar það var eitt sterkasta handboltafélag Evrópu. Petr Baumruk lék auðvitað með Dukla Prag í Tékklandi á sínum ferli og á sjötta áratugnum spiluðu þar bestu handboltamenn heims eða þeir Rudolf Havlík, Václav Duda og Vojtech Marez. Rudolf Havlík var síðar þjálfari Víkings og HK hér á Íslandi.
Íslenski handboltinn Handbolti Olís-deild karla Mest lesið Bellingham sló Barco í bræði sinni eftir leik Fótbolti Vilja forðast kynferðislega myndatöku í frjálsum Sport Reyndu að brjótast inn í hús Yamals Fótbolti De la Fuente: „Við teljum okkur ósigrandi“ Fótbolti Leikmenn Argentínu með borða eftir leik: „Falklandseyjar eru argentínskar“ Fótbolti „Miður mín fyrir hönd allra“ Fótbolti Rekinn fyrir að senda körfuboltakonu rasísk skilaboð Körfubolti Ný Hillsborough-lög eiga að koma í veg fyrir yfirhylmingar yfirvalda Enski boltinn Íslensku strákarnir í átta liða úrslitin Körfubolti Messi allt í öllu þegar Argentína fór í úrslitaleikinn Fótbolti Fleiri fréttir Handboltinn hleypir Rússum aftur inn Frábær lokakafli dugði ekki til Sárt tap fyrir Króatíu Hansen leikur í mynd um einelti eftir að hafa sjálfur þurft að þola það Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars Sjá meira