Sex árum síðar er rétta stundin runnin upp fyrir lagið um Sjonna Stefán Árni Pálsson skrifar 29. ágúst 2017 10:30 Pálmi kynntist Sjonna árið 2002. „
Við Sjonni kynntumst haustið 2002 þegar við unnum saman í sýningu á Hótel Íslandi. Vinskapurinn varð strax traustur og við tók tími þar sem við í samvinnu við marga góða vini og listamenn gerðum fjölbreytt verkefni í tengslum við tónlist og leikhús,“ segir tónlistarmaðurinn Pálmi Sigurhjartarson sem gefur út lag til heiður Sigurjóns Brink sem varð bráðkvaddur á heimili sínu í Garðabæ árið 2011. Sigurjón lést úr heilablóðfalli langt fyrir aldur fram. Sjonni hefði átt afmæli í dag en Pálmi samdi lagið Þú einn veist rétt eftir að hann lést. „Skömmu eftir að hann lést samdi ég lag og texta tileinkað minningu hans en vildi bíða með að gefa það út á þeirri stundu. En stundin er komin.“ Pálmi var einn af vinum hans Sjonna sem fór fyrir hönd Íslands í Eurovision með lagið Coming home í söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í Düsseldorf um vorið 2011. „Ég gekk til liðs við hljómsveitina hans The Flavours og fékk að vinna með lögin hans þar. Sjonni var ekki einungis góður söngvari heldur líka afbragðs lagahöfundur. Við ásamt Jóhannesi Ásbjörnssyni og Hilmi Snæ gerðum sýninguna Bítl sem sló í gegn í Loftkastalanum og þar fengum við útrás fyrir bítlaæðið sem blundaði í okkur báðum.“ Pálmi og Sjonni unnu mikið saman á sínum tíma og var því fráfall hans mjög erfitt fyrir Pálma. „Mér finnst rétt að gefa lagið út á afmælisdeginum hans 29. ágúst. Lagið ,Þú einn veist, er tileinkað minningu míns góða vinar Sigurjóns Brinks og er eitt af 15 lögum af væntanlegri sólóplötu minni sem ber nafnið Undir fossins djúpa nið.“
Mest lesið Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Lífið samstarf Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Lífið Fleiri fréttir Þess vegna þurfa Íslendingar að leyfa þessum þjófum að halda áfram að stela Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Sjá meira