Hélt að tvær finnskar blaðakonur væru sama konan Atli Ísleifsson skrifar 29. ágúst 2017 08:56 Sauli Niinistö Finnlandsforseti hitti Donald Trump Bandaríkjaforseta í gær. Vísir/AFP
Skondið atvik átti sér stað á fréttamannafundi Donald Trump Bandaríkjaforseta og Sauli Niinistö Finnlandsforseta í Washington í gær þar sem Trump ruglaðist og taldi tvær finnskar blaðakonur vera einu og sömu konuna. Blaðakonur YLE og FNB, þær Paula Vilén og Maria Annala, virðast hafa runnið saman í eitt í huga Trump þar sem forsetarnir svöruðu spurningum úr sal. Niinistö gaf þá Annala færi á að spyrja spurningar þegar Trump greip inn í og spurði hvort hann ætli sér virkilega að gefa henni færi á að spyrja annarrar spurningar. Vilén hafði áður varpað fram spurningu á fréttamannafundinum. Niinistö útskýrði þá fyrir Trump að þetta væri ekki sama fréttakona. „Nei, þetta er ekki sama kona,“ sagði Niinistö. „Þær sitja hlið við hlið.“ Annala hóf þá mál sitt og sagði að vissulega væru margar ljóshærðar konur í Finnlandi, áður en hún spurði Trump hvort hann telji að Finnland gæti þjónað einhverju hlutverki við að bæta samskipti Bandaríkjanna og Rússlands.
Donald Trump Mest lesið Musk settur í niðurskurðinn og sjónvarpsmaður verður varnarmálaráðherra Erlent „Þetta mál hélt fyrir mér vöku í tvo mánuði“ Innlent Davíð Viðarsson heitir nú aftur Quang Le Innlent Kosningavaktin: Íslendingar ganga að kjörborðinu Innlent Nokkrir tengdir einstaklingar greinst með lifrarbólgu B Innlent Fangi lést á Litla-Hrauni Innlent Welby segir af sér í tengslum við kynferðisbrotamál Erlent Þurftu að búa í næstu götu við morðingja bróður síns Innlent Lentu í dularfullum símatruflunum í Bratislava fyrir fimm árum Innlent Foreldrafélag MR segist virða kröfur kennara en gagnrýnir verkfall Innlent Fleiri fréttir Hvítrússnesk andófskona skýtur upp kollinum eftir langa þögn Vill verða bæjarstjóri í Þórshöfn eftir kosningasigur Welby segir af sér í tengslum við kynferðisbrotamál Musk settur í niðurskurðinn og sjónvarpsmaður verður varnarmálaráðherra Aldraður barnalæknir dæmdur í fangelsi fyrir að vanvirða herinn Tugir látnir eftir að bíl var ekið inn í þvögu fólks í Kína Áfrýjun tólf ára fangelsisdóms vegna sjö þúsund króna hafnað Fjölgar hratt í ríkisstjórn Trumps Ganga til kosninga í febrúar Vörpuðu sprengjum á hópa tengda Íran í Sýrlandi Aðeins einn af tíu segist myndu tilkynna ofbeldið að fenginni reynslu „Ákveðinn árangur“ hafi náðst í viðræðum um vopnahlé í Líbanon Fimmtíu þúsund hermenn sagðir undirbúa gagnsókn í Kúrsk Búinn að velja sendiherra og „landamærakeisara“ Sakar Orbán um „ungverskt Watergate-hneyksli“ Vill losna við tálma úr vegi sínum Scholz tilbúinn að láta undan þrýstingi um vantraust Ishiba áfram forsætisráðherra þrátt fyrir kosningatap Ræddi við Pútín og varaði við stigmögnun Hátt í 400 kynlífsmyndböndum lekið í mögulegu samsæri Aldrei jafn margar drónaárásir Trump vann öll sveifluríkin Mestu virkjanaframkvæmdir í sögu Grænlands framundan Óeirðir í Valensía og kallað eftir afsögn ráðamanna „Ég bjóst aldrei við að þetta myndi gerast“ Ákærður fyrir ráðabrugg um að ráða Trump af dögum Fundu morðingja puttaferðalangs fimmtíu árum síðar Samstaða í Færeyjum um að bjóða út Suðureyjargöng Hverfa aftur til fortíðar vegna gervihnattatruflana Rússa Pútín óskar Trump til hamingju Sjá meira