Erlent

Trump reyndi að byggja turn í Moskvu á meðan hann var í framboði

Kjartan Kjartansson skrifar
Fyrirtæki Trump leitaði hófanna hjá rússneskum stjórnvöldum með viðskiptatækifæri á sama tíma og hann var í forsetaframboði.
Fyrirtæki Trump leitaði hófanna hjá rússneskum stjórnvöldum með viðskiptatækifæri á sama tíma og hann var í forsetaframboði. Vísir/AFP
Fasteignaveldi Donalds Trump vann að verkefni um að reisa háhýsi í nafni auðkýfingsins í Moskvu á sama tíma og hann var í forsetaframboði síðla árs 2015 og snemma á síðasta ári.

Washington Post segir að verktaki af rússneskum ættum hafi hvatt Trump til að koma til Moskvu til að kynna verkefnið og lagði til að hann gæti fengið Vladimír Pútín, forseti Rússlands, til þess að segja „frábæra hluti“ um Trump.

Sérstakur rannsakandi bandaríska dómsmálaráðuneytisins rannsakar nú afskipti rússneskra stjórnvalda af forsetakosningunum sem Trump vann í fyrra og hvort að framboð hans hafi átt í samráði við Rússa.

Vísbendingar um fundi með einstaklingum sem tengjast Rússlandi

Aldrei varð þó af því að Trump færi til Moskvu þó að fyrirtæki hans og fjárfestar hefðu skrifað undir viljayfirlýsingu um byggingu Trump-turns í borginni.

Byggingaráformin voru svo lögð til hliðar í janúar í fyrra, rétt áður en forval Repúblikanaflokksins fyrir kosningarnar hófst, þar sem að tilskilin leyfi fengust ekki fyrir þeim.

Þrátt fyrir það segir Washington Post að samningurinn sýni að fyrirtæki Trump voru að elta umsvifamikil viðskiptatækifæri í Rússlandi á sama tíma og hann var að reyna að komast í Hvíta húsið.

Í tölvupóstunum sem blaðið byggir frétt sína á koma ennfremur fram vísbendingar um fleiri fundi samstarfsmanna Trump með einstaklingum sem tengjast rússneskum stjórnvöldum en greint hefur verið frá fram að þessu.


Tengdar fréttir

Sérstakur rannsakandi velur kviðdómendur

Stefnur hafa verið gefnar út og kviðdómur skipaður til að meta gildi sönnunargagna um fund Donalds Trump yngri með rússneskum lögmanni. Aukinn þungi virðist hafa færst í rannsókn á tengslum forsetaframboðs Trump við Rússa og er hún nú sögð beinast að hugsanlegum fjármálaglæpum meðal annars.

Kushner: Framboð Trump var of óskipulagt til að eiga samráð við Rússa

Tengdasonur Donalds Trump Bandaríkjaforseta útskýrði fyrir hópi lærlinga í Bandaríkjaþingi að forsetaframboð tengdaföður síns hafi verið of glundroðakennt til að það hafi getað staðið í samráði við rússnesk stjórnvöld. Blaðafulltrúi Hvíta hússins segir að forsetinn hafi komið að misvísandi yfirlýsingu sem sonur hans gaf út um umdeildan fund með rússneskum lögmanni.

Reyna að koma í veg fyrir að Trump reki sérstakan rannsakanda

Þingmenn úr báðum flokkum í öldungadeild Bandaríkjaþings hafa lagt fram frumvörp sem myndu setja Donald Trump forseta stólinn fyrir dyrnar hyggist hann reyna að láta reka sérstakan rannsakanda dómsmálaráðuneytisins á meintu samráði framboðs hans við Rússa.

Húsleit gerð hjá fyrrverandi kosningastjóra Trump

Útsendarar FBI lögðu hald á gögn í húsleit á heimili Pauls Manafort, fyrrverandi kosningastjóra Donalds Trump, 26. júlí. Húsleitin er sögð tengjast rannsókn á afskiptum Rússa af bandarísku forsetakosningunum í fyrra.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×