Hjólreiðakonan ekki í lífshættu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 24. ágúst 2017 11:10 Frá vettvangi slyssins í gær. vísir
Hjólreiðakona á sextugsaldri sem lenti undir strætisvagni í umferðarslysi á gatnamótum Háaleitisbrautar og Miklubrautar um klukkan hálfníu í gærkvöldi er ekki talin í lífshættu. Hún er þó töluvert slösuð, beinbrotin og marin samkvæmt upplýsingum frá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu. Slysið varð með þeim hætti að strætó var ekið í austurátt og konan var á leið yfir Miklubraut til suðurs. Við áreksturinn lenti hún undir vagninum en hjól hennar kastaðist í burtu. Það er illa farið eftir slysið. Að sögn lögreglu voru fjölmörg vitni að slysinu og þá eru vitni enn að gefa sig fram. Þá hefur verið tekin óformleg skýrsla af strætóbílstjóranum. Um 20 manns voru í vagninum þegar slysið varð. Samkvæmt upplýsingum frá Strætó var strætóbílstjóranum boðin áfallahjálp vegna slyssins, eins og jafnan er gert, en hann ákvað að þiggja hana ekki að svo stöddu. Þá verður fylgst með honum í dag til að sjá hvernig honum líður og honum boðið að vera heima. Hann mun ekki koma til vinnu í dag þar sem hann þarf tíma til að jafna sig á þessu áfalli, samkvæmt upplýsingum frá Strætó.Fréttin var uppfærð klukkan 12:33 vegna nýrra upplýsinga sem bárust frá Strætó.
Tengdar fréttir Strætisvagni ekið á hjólreiðamann á Miklubraut Strætisvagninum var ekið í austurátt en slysið átti sér stað við aðreinina af Háaleitisbraut 23. ágúst 2017 20:58 Mest lesið Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Innlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Innlent Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Innlent Fleiri fréttir Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Stjórnarskráin trompi alltaf bókun 35 Engin trygging fyrir því að peningarnir nýtist í innviði „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Skoðar að hækka framlag til Loftbrúarinnar Upplifa endurtekið áfall vegna dómsins „Fylgir því mikil skömm að eiga foreldri í fangelsi“ Vonast eftir betri vetri en þeim síðasta: „Við eigum það bara skilið“ Ekki boðaður á stjórnarfundi: „Þetta hefur aldrei gerst áður í sögu Landsvirkjunar“ Umdeildur sýknudómur þegar haft alvarlegar afleiðingar Skiljanlega skiptar skoðanir á stærstu kerfisbreytingu í áratug Fluttur á bráðamóttöku eftir líkamsárás í Skeifunni Hörður Arnarsson og náttúru- og innviðagjald á Sprengisandi Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm Sjá meira
Strætisvagni ekið á hjólreiðamann á Miklubraut Strætisvagninum var ekið í austurátt en slysið átti sér stað við aðreinina af Háaleitisbraut 23. ágúst 2017 20:58