„Skyndiskilnaðir“ innan íslam gerðir ólöglegir á Indlandi Kristín Ólafsdóttir skrifar 22. ágúst 2017 08:21 Lögmaðurinn Farha Faiz ræðir við fjölmiðla eftir að dómur féll í málinu í dag. Hún er harður andstæðingur aðferðarinnar. Vísir/AFP
Hæstiréttur á Indlandi hefur úrskurðað að svokallaðir „skyndiskilnaðir“, sem tíðkast hafa innan íslam, brjóti í bága við stjórnarskrá landsins. Úrskurðurinn er talinn marka stórt framfaraskref fyrir kvenréttindabaráttu á Indlandi. Indland var eitt fárra ríkja þar sem karlmönnum innan íslam var gert kleift að skilja við eiginkonur sínar á örskotsstundu með því að segja orðið „talaq“, sem þýðir skilnaður, þrisvar sinnum í röð. Konurnar höfðu ekki slík réttindi.Sjá einnig: Hæstiréttur Indlands tekur „skyndiskilnað“ innan íslam til umfjöllunar Fimm Múslimakonur, sem höfðu verið beittar skyndiskilnaðaraðferðinni, og tvö baráttusamtök sóttu málið í Hæstarétti Indlands en fimm dómarar tóku afstöðu í málinu. Þrír tóku afstöðu með því að gera skilnaðina ólöglega en einn dómarinn var Hindútrúar, einn síkatrúar, einn kristinn, einn sóróisti og einn múslimi. Indverskir karlmenn sem eru íslamstrúar hafa síðustu ár notað skyndiaðferðina í auknum mæli til að skilja við eiginkonur sínar. Þeir hafa notast við sendibréf, símtöl, smáskilaboð, Skype og smáforritið WhatsApp til að koma skilaboðunum áleiðis. Ekkert er þó minnst á aðferðina í Kóraninum en hún hefur þegar verið bönnuð í löndum á borð við Bangladesh og Pakistan, þar sem meirhluti þjóðarinnar er íslamstrúar.
Tengdar fréttir Hæstiréttur Indlands tekur „skyndiskilnað“ innan íslam til umfjöllunar Indland sé eitt fárra ríkja í heiminum þar sem karlmaður sem er íslamstrúar getur skilið við eiginkonu sína með því að segja „talaq“ upphátt þrisvar í röð. 11. maí 2017 12:40 Mest lesið Operation Raccoon: Krónur urðu að evrum og slóðin leiddi að höfuðpaurum Innlent Hjón á Selfossi vara við svikum í nafni fyrirtækis síns Innlent Fengju ekki að rústa verslunarmiðstöð óáreittir Innlent Byrjuð að laga „frægustu gangstéttina í Grafarvogi“ Innlent Íbúar höfðu betur: Umsókn Samhjálpar felld úr gildi Innlent „Planið“ sé byrjað að virka Innlent Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Erlent Nafn mannsins sem lést í umferðarslysi austan við Vík Innlent Langreyðarnar komnar á land Innlent Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Erlent Fleiri fréttir Segja móður Guthrie hafa látist fyrir slysni Hægrimaðurinn De la Espriella nýr forseti Kólumbíu Fjölskylduferð í skemmtigarð tók óvænta stefnu í hitabylgjunni Burnham formlega orðinn þingmaður Burnham vill taka við af Starmer Alan Greenspan er látinn Vandræðagangur í breskum stjórnmálum allt frá Brexit Starmer segir af sér Fundu nærri þrjú tonn af kókaíni í neðanjarðarbyrgi í Ástralíu Starmer muni segja af sér í dag Fyrstu lotu friðarviðræðna Bandaríkjanna og Íran lokið Leggja bönn á áfengisneyslu vegna hitabylgjunnar „Konur eru svangari, fátækari og örvæntingarfyllri en nokkru sinni fyrr“ Sagður ætla að tilkynna afsögn á morgun Vance þreifar fyrir sér í Sviss Níu í lífshættu og einn látinn eftir lestarslys í Englandi Segjast hafa lokað Hormússundi á ný Meloni segir Trump skrökva upp á sig Witkoff stefnir til Sviss Þungt haldinn eftir að kýr réðst á tvo Ráðherrar krefja Starmer um afsögn Ísrael semur um vopnahlé við Hezbollah Konungur Norðursins sækir að Starmer Hættu skyndilega við viðræðurnar í Sviss Íranir segjast ætla að taka gjald af siglingum um sundið „Það verða engir konungar“ Telja dráp á rússneskum teiknara „pólitískt launmorð“ Ein stærsta drónaárásin á Rússland frá upphafi stríðsins Leghálskrabbameini nánast útrýmt í Bretlandi eftir bólusetningarátak Þetta er í samkomulagi Trumps við Írani Sjá meira
Hæstiréttur Indlands tekur „skyndiskilnað“ innan íslam til umfjöllunar Indland sé eitt fárra ríkja í heiminum þar sem karlmaður sem er íslamstrúar getur skilið við eiginkonu sína með því að segja „talaq“ upphátt þrisvar í röð. 11. maí 2017 12:40