Rannsóknir benda til þess að framhjáhaldarar verði alltaf framhjáhaldarar Stefán Árni Pálsson skrifar 7. september 2017 12:30 Sláandi niðurstöður.
Það þekkja margir orðatiltækið „Once a cheater, always a cheater” eða á íslensku: Einu sinni framhjáhaldari, alltaf framhjáhaldari. Þetta hefur aftur á móti verið rannsakað og benda rannsóknir til þess að aðili sem hefur haldið framhjá sé meira en þrefalt líklegri til að endurtaka leikinn í framtíðinni. Það sem skiptir sköpum í tengslum við rannsóknina er líðan fólks eftir framhjáhald. Ef einstaklingurinn ýtir málinu bara undir teppið og hugsar svo gott sem ekkert út í málið, þá eru líkurnar á því að hann endurtaki leikinn mjög miklar. Niðurstöður rannsóknarinnar voru birtar í bandaríska tímaritinu the National Academy of Sciences. Rætt var við 343 einstaklinga og voru þeir spurðir út í atburði í lífi þeirra. Þeir voru í framhaldinu spurðir út í það hvort þeim þættu hegðun þeirra siðlaus eða ekki. Til að mynda fengu þeir allir eftirfarandi spurningu: „Myndir þú halda framhjá maka þínum ef þú myndir hagnast á því fjárhagslega?“Allir þurftu síðan að mæta aftur tveimur vikum síðar og ræða um ákveðin leik sem þau tóku þátt í á fyrsta degi. Í þeim leik var auðvelt að svindla og viðurkenndu 43% þeirra að hafa gert það og mundu mjög vel eftir því. Fólkið mundu aftur á móti illa eftir máltíðinni sem þau fengu það kvöld. Hinsvegar eru niðurstöður þessarar rannsóknar ekki einu vísbendingarnar um að framhjáhald sé líkamlegur galli varðandi valkvætt minni. Þú ert því þrefalt líklegri til að halda framhjá ef þú hefur áður gert það. Þeir sem halda framhjá maka sínum gera það af mörgum ástæðum. Dr Duana Welch, höfundar bókarinnar Love Factually segir að ein af aðal ástæðunum fyrir framhjáhaldi sé einmannaleiki.
Mest lesið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Lífið samstarf Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Lífið Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Sjá meira