Þegar ungur Hörður Björgvin þrumaði í andlitið á landsliðsmarkverðinum Stefán Árni Pálsson skrifar 6. september 2017 15:30 Hannes var á línunni á FM957 í morgun.
Hannes Þór Halldórsson hélt hreinu í leik Íslands og Úkraínu í undankeppni HM 2018 í gær en hann fékk síðast á sig mark á Laugardalsvelli fyrir ellefu mánuðum síðan, í ótrúlegum 3-2 sigri á Finnlandi. Hannes Þór var í spjalli í Brennslunni á FM 957 í morgun og rifjaði þá upp fyrsta mótsleik sinn í byrjunarliði á Laugardalsvelli. Þar ræddi hann um landsliðsferilinn og hvernig það hefði breyst að spila á Laugardalsvellinum fyrir framan fullan völl, í staðinn fyrir hálftóman eins og á sínum tíma. Hannes hefur verið í landsliðinu síðan 2009 en lék sinn fyrsta mótsleik árið 2011. Hann þekkir því vel erfiða og góða tíma í landsliðinu. Hörður Björgvin Magnússon er að tryggja sér sæti í bakvarðarstöðu landsliðsins. Hannes man vel eftir Herði sem ungum leikmanni í Fram.Barnastjarna í Fram „Frammistaða hans er ekki að koma mér neitt á óvart. Maður sá það þegar ég kom í Fram að þarna væri mikið efni á ferð. Hann var svona barnastjarna í yngri flokkunum og var algjör stjarna inni á miðjunni,“ segir Hannes en Hörður kom mjög ungur inn í meistaraflokkinn. Hann rifjar upp mjög skemmtilega sögu af samskiptum hans við Hörð. „Hann var með ótrúlegar spyrnur alveg frá því að ég kynntist honum. Við vorum einhver tímann að skjóta á mark eftir æfingu og hann skaut af svona þrjátíu metra færi. Honum tókst að negla þeim bolta í andlitið á mér. Boltinn flökti svo mikið að hann fór framhjá höndunum á mér og beint í andlitið á mér.“ Hlusta má á viðtalið hér að neðan.
Einu sinni var... Mest lesið Stigu trylltan dans á Saint Pete Lífið Ugla yfirgefur borgina Lífið Berrössuð hjón og endurtekið efni Gagnrýni Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Lífið Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Lífið Tryggðu þér nýtt rafhjól fyrir 2027 á hagstæðari kjörum Lífið samstarf „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Lífið Nathan fagnaði tímamótum með stærsta viðburði í sögu félagsins Lífið samstarf Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Lífið Stelpurnar snúa aftur Bíó og sjónvarp Fleiri fréttir Ugla yfirgefur borgina Stigu trylltan dans á Saint Pete „Þannig þú ert ekki bara dóni heldur líka lygari“ Taskmaster Ísland snýr aftur Óskar Hrafn og Laufey selja á Nesveginum Píanóleikari selur huggulega íbúð á Ásvallagötu Bassi mætti með granítharðar geirvörtur Ekkert offors hjá Fors „Ég vel þig núna, alltaf og ennþá“ „Ég mun sakna þín, sonur“ Bombur á Barokki á klúbbnum Tjaldaði á umferðareyju eftir að hafa tapað í fantasy RJ Mitte er látinn Legally Blonde-stjarna handtekin sökuð um að hafa bitið flugfreyju Hvað veistu um... árið 1986? Össur stendur með sundmönnunum Umdeild sjálfsvíg frægustu hryðjuverkamanna Þýskalands Inga Lind selur rauða einbýlishúsið Ísland Bandaríkjanna komið í kennslubækur Stjörnulífið: Ástin blómstrar hjá Rakel, Evu og Birnu Lifði árum saman með ótta sem enginn skildi Er eðlilegt að langa í kynlíf eftir makamissi? Eftirminnilegir gullmolar úr fjörutíu ára sögu Leiðinleg frekja segist hvorki leiðinleg né frek Sendum Möggu Stínu í Eurovision Aðdáendur ítrekað farið yfir mörk Krakkatía vikunnar: Vatn, Hefnendurnir og fyndin dýr Aníta Briem og Hafþór ólétt á ný Vala mótmælti gömlum venjum í upphafi Segir soninn þann sem bundinn var á höndum og fótum Sjá meira