Upprisa skallapopparans Jónas Sen skrifar 16. september 2017 09:45 "Anna Guðný Guðmundsdóttir lék á píanóið og gerði það afburðavel. Leikur hennar var nákvæmur og tær, líflegur og grípandi,“ segir í dómnum. Vísir/Anton Brink
Tónlist Kammersveit Reykjavíkur Verk eftir Hummel og Beethoven. Norðurljós í Hörpu Sunnudaginn 10. september Tónsmiður getur verið dáður og elskaður á meðan hann lifir, en samt fallið í gleymskunnar dá eftir dauðann. Sumir verða þó vinsælir aftur löngu síðar, eins og gerðist með Bach. Tónlist hans þótti lengi andlaus og leiðinleg, en þegar tónskáldið Felix Mendelssohn stjórnaði flutningi á stóru verki eftir Bach um sjötíu árum eftir dauða hans, komst hann aftur í tísku. Kannski er eitthvað sambærilegt að gerast með tónlist Hummels sem var á dagskránni á tónleikum Kammersveitar Reykjavíkur í Hörpu á sunnudaginn. Hann hét fullu nafni Johann Nepomuk Hummel og var samtíðarmaður Beethovens. Og ekki bara það, þeir voru góðir vinir. Beethoven hafði miklar mætur á Hummel, enda var hann ekki aðeins frábær píanóleikari, heldur líka innblásið tónskáld. Tónlist hans er klassísk í formi, en það er samt í henni rómantísk ljóðræna. Greinilegt er að Chopin var undir sterkum áhrifum frá Hummel. Ástæðan fyrir því að hann gleymdist eftir dauðann var að tónskáld sem á eftir komu, eins og t.d. Chopin, fóru miklu lengra í rómantíkinni og dramanu. Fyrir bragðið virkaði tónlist Hummels gamaldags. Hann varð að eins konar skallapoppara í augum almennings, teknópabba sem var ekki lengur hip og kúl. En á síðari árum hefur áhuginn aukist og á YouTube er að finna töluvert af upptökum með tónlist Hummels. Ég mæli sérstaklega með píanókonsert nr. 2 í flutningi Stephen Hough, sem hefur komið hingað til tónleikahalds oftar en einu sinni. Eins og áður segir var Hummel magnaður píanóleikari. Kröfurnar sem gerðar eru til píanóleikarans í septett í d-moll op. 74 á tónleikum Kammersveitarinnar eru því nánast ofurmannlegar. Verkið er hálfgerður píanókonsert, píanóröddin er ávallt í forgrunni og alls konar hlaup upp og niður hljómborðið eru afar snúin. Anna Guðný Guðmundsdóttir lék á píanóið og gerði það afburðavel. Leikur hennar var nákvæmur og tær, líflegur og grípandi. Flóknar tónarunur léku í höndum hennar, tónahendingarnar voru áleitnar og markvissar, hvergi var dauður punktur. Hinir hljóðfæraleikararnir spiluðu líka fallega, heildarhljómurinn var hlýr og í fínu jafnvægi. Svipaða sögu er að segja um septett í Es-dúr op. 20 eftir Beethoven. Septettinn er í stíl klassískrar heiðríkju, þar er ekki að finna hina ofsafengnu rómantísku ólgu sem einkennir síðari verk tónskáldsins. Engu að síður er hann skemmtilegur áheyrnar, laglínurnar eru fallegar og stemningin ljúf og þægileg. Septettinn er ekki auðveldur í flutningi. Töluvert mæddi á fiðluleikaranum Unu Sveinbjarnardóttur, en hún leysti hlutverk sitt prýðilega af hendi. Tónarnir hennar voru fágaðir og einbeittir. Sama má segja um leik hinna hljóðfæraleikaranna, þ. á m. Gríms Helgasonar klarínettuleikara sem var í veigamiklu hlutverki. Spilamennskan var í heild fagmannleg, túlkunin fjörleg og kröftug, fyllilega í anda Beethovens. Útkoman var ánægjuleg upplifun.Niðurstaða: Hrífandi tónlist, glæsilegur flutningur.
Mest lesið Úlfurinn át þá alla Gagnrýni Hvað veistu um… pitsur? Lífið Tóku í gegn fjögur hundruð fermetra einbýli í Hafnarfirði Lífið Hálfnakinn steggur handtekinn á Arnarhóli Lífið Hætta við að hætta við að hætta við Tónlist Hilmir Snær svarar gagnrýnendum Menning Ómetanlegt fyrir samkynhneigðan strák í skápnum Bíó og sjónvarp Sturluð skvísulæti í stórafmæli Tíska og hönnun Sjálfið okkar: Hvers vegna kaupum við nammi við kassann síðdegis? Áskorun Jay-Z sér um hálfleikssýningu Ofurskálarinnar 2027 Lífið Fleiri fréttir Úlfurinn át þá alla Boltamömmur í miðjumoði Stjörnuleikur Góa og Unnar bjargar Höggi Berrössuð hjón og endurtekið efni Digger grefur sína eigin gröf Martraðarkennd nótt með veirunni skæðu Léleg lokasena skemmir ágætt leikrit Elskar uppþvottavélina meira en eiginkonuna Dauðkveið fyrir tónleikunum en þeir komu á óvart Hroðvirknislegt hljóð og klisjur setja strik í reikninginn Vel heppnuð þögn, misheppnaður Mahler Sjá meira