Trump sagður ætla að rifta kjarnorkusamningnum við Íran Kjartan Kjartansson skrifar 5. október 2017 19:36 Trump hefur fundið samkomulaginu í Írani flest til foráttu. Vísir/AFP
Heimildamenn Washington Post segja að Donald Trump Bandaríkjaforseti ætli að draga til baka stuðning við kjarnorkusamninginn við Írani í næstu viku. Frestur Trump til að staðfesta hvort að Íranir fari að skilmálum samningsins rennur út eftir tíu daga. Trump hefur verið harðorður í garð samkomulagsins sem Bandaríkjamenn og fimm aðrar þjóðir gerðu við Írani árið 2015. Það felur í sér að Íranir takmarki kjarnorkuáætlun sína gegn því að refsiaðgerðum þjóðanna verði hætt. Í ræðu sem hann ætlar að halda í næstu viku er búist við að Trump muni segja samkomulagið í andstöðu við hagsmuni Bandaríkjanna. Washington Post segir að áform Hvíta hússins séu þó ekki fastmótuð og að stefnan gæti breyst. Heimildamenn þess segja að Trump ætli þó ekki að ganga svo langt að biðja Bandaríkjaþing um að leggja refsiaðgerðir aftur á Íran. Trump hefur til 15. október til að gefa þinginu skýrslu um hvort að Íranir séu að fara eftir skilmálum samkomulagsins og hvort hann telji það hjálpa þjóðarhagsmunum Bandaríkjanna. Velji hann að hætta stuðningi við samkomulagið þarf þingið að ákveða næstu skref og hefur það sextíu daga til þess.
Donald Trump Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Fleiri fréttir Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Sjá meira