Slagsmálin á æfingu Chicago Bulls skiluðu Finnanum Markkanen sæti í byrjunarliðinu Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. október 2017 15:00 Lauri Markkanen fagnar sigri á móti Íslandi. Vísir/EPA
Einn maður græddi byrjunarliðssæti á látunum á æfingu NBA körfuboltaliðsins Chicago Bulls þar sem liðsfélögunum Bobby Portis og Nikola Mirotic lenti illa saman. Finninn Lauri Markkanen, sem fór á kostum á móti íslenska landsliðinu á Eurobasket, verður væntanlega í byrjunarliði Bulls liðsins í fyrsta NBA-leiknum sínum í kvöld. Markkanen lék í háskólaboltanum í fyrra en var valinn sjöundi í nýliðavalinu í sumar. Minnesota Timberwolves valdi Lauri Markkanen en hann fór síðan yfir til Chicago Bulls í Jimmy Butler skiptunum. Það átti þó ekki að vera svo að Markkanen byrjaði sinn fyrsta NBA-leik enda Nikola Mirotic og Bobby Portis bæði reyndari og undan honum í goggunarröðinni. Þeir Bobby Portis og Nikola Mirotic verða þó ekki í Chicago Bulls búningi á móti Toronto Raptors í kvöld. ESPN segir frá. Bobby Portis sló Nikola Mirotic niður eftir mikið ósætti á milli þeirra á æfingu og sendi með því Mirotic á sjúkrahús. Mirotic brotnaði í andlitinu og hlaut auk þess heilahristing. Hann verður því frá keppni í fjórar til sex vikur. Chicago Bulls tók síðan þá ákvörðun í samráði við yfirmenn NBA-deildarinnar að setja Bobby Portis í átta leikja bann vegna hegðun sinnar. Þeir félagar verða því hvorugur með liði Chicago Bulls næstu vikurnar. John Paxson, varaforseti Chicago Bulls, tók það þó fram að Bobby Portis væri ekki slæmur maður heldur mikill keppnismaður sem gerði mistök. Það breytti því ekki að menn verði að taka út sínar refsingar. Lauri Markkanen var frábær á Eurobasket þar sem hann skoraði 19,5 stig að meðaltali og hitti úr 53 prósent skota sinna og 89,7 prósent vítanna. Í leiknum á móti Íslandi skoraði hann 23 stig á 24 mínútum.
NBA Mest lesið Gripinn í PSG-treyju í skrúðgöngu Arsenal Enski boltinn Blóðbað í Köben: „Þetta var helvítis bras“ Sport Missir af HM í fótbolta vegna samfélagsmiðlafærslu Fótbolti Draumurinn ekki dáinn hjá Bergrós Sport Dalglish greindi óvart frá baráttu sinni við krabbamein Enski boltinn HM-minning: Óheiðarlegasta heimsmeistarakeppni allra tíma Fótbolti „Takk fyrir ástina“ Fótbolti „Tímabilinu sem aldrei hófst er nú lokið“ Sport Mætti seint á æfingu fyrir leik en svaraði með þrennu Fótbolti Hefja formlegar viðræður við Iraola Enski boltinn Fleiri fréttir Heiðurshallarþjálfarinn Rick Adelman látinn Björgvin Hafþór snýr aftur í Skallagrím Einn efnilegasti leikmaður landsins áfram í Haukum Martin frábær og einum sigri frá úrslitaeinvíginu Ingvi tekur slaginn áfram með Ármanni „Vissi ekki að þetta væri svona alvarlegt“ Sló út meistarana eftir áskorun þjálfarans Aðstoðaði Baldur en tekur nú við í Þorlákshöfn Martin og félagar tóku fyrsta skref að úrslitum Kane handtekinn fyrir að skulda meðlag Óvíst hvað Hilmar Smári gerir: „Fyrstu símtölin voru í þá“ Tryggvi tryggði sigur á móti Elvari Rétt unnu botnliðið í lokaumferðinni Doncic flytur félag til Rómar Hjalti stýrir Skagamönnum Spurs knúðu fram oddaleik Martin valinn mikilvægastur Emil Barja tekur við Stjörnunni Pétur Már tekur við Grindavík Gerir ekki ráð fyrir heimkomu Martin magnaður í oddaleik Ægir hjá Stjörnunni næstu tvö tímabil Collin Pryor í Álftanes Meistararnir einum sigri frá úrslitaeinvíginu Grindavík endursemur við fjóra leikmenn: Beeman áfram í gulu New York Knicks í úrslitin í fyrsta sinn á þessari öld Óvænt ræða frá goðsögninni blés San Antonio byr í brjóst Martin stigahæstur og tryggði oddaleik Tryggvi upp fyrir Elvar fyrir uppgjörið á Tenerife Einum sigri frá því að fara í úrslit í fyrsta sinn á öldinni Sjá meira