Viðurkennir að hafa stungið mann í kviðinn í íbúð í Breiðholti Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 17. október 2017 15:29 Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu að störfum á vettvangi árásarinnar að kvöldi 3. október. Vísir/Sindri Reyr Einarsson
Hæstiréttur hefur staðfest gæsluvarðhald yfir manni sem hefur viðurkennt að hafa stungið annan mann í kviðinn með hníf í íbúð í Breiðholti þann 3. október síðastliðinn. Maðurinn mun sæta gæsluvarðhaldi til 7. nóvember næstkomandi en í úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur kemur fram að maðurinn hafi játað árásina og kveðst hann hafa farið í íbúðina í þeim tilgangi að hitta manninn sem hann réðst á og stinga hann. Í úrskurðinum er sagt frá skýrslu vitnis hjá lögreglu sem var á vettvangi þegar árásin átti sér stað. Lýsti vitnið því að hann hafi verið ásamt hópi fólks í íbúðinni þegar 4 til 5 menn hafi sprautað „meisi“ framan í vitnið. „Hafi vitnið sagt að tveir úr hópi árásarmannanna hafi verið með kjöthnífa á lofti. Hafi þeir farið að brotaþola og sagt að hann skuldaði þeim pening og í framhaldi stungið brotaþola með hnífunum. Vitnið hafi þá sagst ætla að kalla eftir aðstoð lögreglu og þá hafi mennirnir hlaupið út. Framburður annarra vitna sem stödd hafi verið á vettvangi sé til samræmis við framangreint,“ segir í úrskurðinum. Þá lýsti maðurinn sem ráðist var á því að hann hefði verið heima hjá félaga sínum „þegar þangað hefðu ruðst inn kærði, B og D auk tveggja annarra sem hann vissi ekki hverjir væru. Í framhaldi hafi tveir mannanna, kærði og D, ráðist að brotaþola vopnaðir hnífum og annar þeirra stungið hann. Þá hefði B í framhaldi slegið brotaþola með gítar.“ Samkvæmt áverkavottorði sem lagt var fram í málinu var árásin lífshættuleg og hefði getað valdið dauða. Er maðurinn sem hefur viðurkennt að hafa stungið mann grunaður um tilraun manndráps.
Tengdar fréttir Leita enn að fólki í tengslum við hnífsstungu í Breiðholti Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn, segir að það gætu verið allt að þrír menn sem lögreglan vilji finna og ná tali af vegna árásarinnar. 6. október 2017 12:51 Hnífsstunga í Breiðholti: Einn í haldi lögreglu og leitað að fleiri mönnum Einn maður er í haldi lögreglu grunaður um aðild að stunguárás í heimahúsi í Breiðholti í gær. 4. október 2017 08:33 Einn í haldi grunaður um tilraun til manndráps Úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til fjögurra vikna. 12. október 2017 13:44 Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira
Leita enn að fólki í tengslum við hnífsstungu í Breiðholti Grímur Grímsson, yfirlögregluþjónn, segir að það gætu verið allt að þrír menn sem lögreglan vilji finna og ná tali af vegna árásarinnar. 6. október 2017 12:51
Hnífsstunga í Breiðholti: Einn í haldi lögreglu og leitað að fleiri mönnum Einn maður er í haldi lögreglu grunaður um aðild að stunguárás í heimahúsi í Breiðholti í gær. 4. október 2017 08:33
Einn í haldi grunaður um tilraun til manndráps Úrskurðaður í áframhaldandi gæsluvarðhald til fjögurra vikna. 12. október 2017 13:44