Mesti lærdómurinn að vinnuvika kvenna er miklu lengri en karla Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 13. október 2017 15:54 Örn Úlfar og Unnsteinn Manuel á ráðstefnunni í Kaupmannahöfn. barbershop
Unnsteinn Manuel Stefánsson, annar verndari UN Women á Íslandi og Örn Úlfar Sævarsson, stjórnarmeðlimur samtakanna voru staddir á HeForShe Rakarastofuviðburði (Barbershop) í Kaupmannahöfn í gær. Ráðstefnan var sett af Guðlaugi Þór Þórðarsyni, utanríkisráðherra. Markmiðið með ráðstefnunni var meðal annars að hvetja karlmenn til að taka virkan þátt í beita sér fyrir kynjajafnrétti í sínu nærumhverfi. Á þessari rakararáðstefnu var sjónum beint að því hvernig jafna megi hlut kynja innan vinnustaða og heimila. Hvaða ólíku áskoranir konur og karlar standa frammi fyrir. „Það var mjög fræðandi að fá tækifæri til að kynna sér stöðu jafnréttismála bæði í atvinnu og útfrá heimilislífi fólks. Þó að Íslendingar séu komnir hvað lengst í þessum málum þá getum við ennþá bætt okkur á ýmsum sviðum,“ er haft eftir Unnsteini í tilkynningu frá UN Women. „Mesti lærdómur dagsins er sá að ef við leggjum saman vinnutíma kynjanna innan og utan heimilis að þá er vinnuvika kvenna miklu lengri en karla. Þannig að næst er að efla hlutverk feðra innan heimilisins bæði sem „starfskraft“ og sem tilfinningaveru. Fyrsta skrefið í þá átt er að foreldrar fái jafnlöng fæðingarorlof,“ segir Unnsteinn Manuel hann en á ráðstefnunni kom fram að konur í Evrópu og Bandaríkjunum vinni að meðaltali rúmlega tvöfalt meiri ólaunuð störf en karlmenn. Þessi tala er allt að fjór- og sexföld í öðrum heimsálfum. Gestir ráðstefnunnar og fyrirlesarar komu víða að úr einka-og opinbera geiranum og fluttu meðal annars starfsfólk frá Volvo og Ikea erindi á ráðstefnunni. Þá var Bjarni Bjarnason, forstjóri Orkuveitu Reykjavíkur einnig á meðal fyrirlesara.
Mest lesið Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Innlent Stefni í sömu átt og Svíþjóð Innlent „Hún er skrifuð af mér“ Innlent Bó kvaddur í hinsta sinn Innlent Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Innlent Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna Innlent Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Innlent Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Innlent „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Innlent Helstu augnablikin úr útför Björgvins Halldórssonar Innlent Fleiri fréttir Einhuga um að lengja gildistíma ökuskírteina Baldur til Eyja „Þetta er gríðarlegt högg fyrir þessi minni bæjarfélög“ „Það er mikið verið að suða“ Stefni í sömu átt og Svíþjóð Gripu til sinna ráða og settu Starlink í skólarútuna „Hún er skrifuð af mér“ Ísland stefni í sömu átt og Svíþjóð Fjórir í varðhaldi vegna Dettifossmálsins Rafgeymar gátu ekki fætt dælur þegar Ormurinn langi sökk Mega hjóla gegn einstefnu Greiða hundruð þúsunda fyrir heimsókn Tinna til Íslands Bein útsending: Oddvitar í Reykjavík á kosningafundi Viðskiptaráðs Viðreisn upp fyrir Sjálfstæðisflokk og Framsókn bætir við sig Leiðir áfram unga miðflokksmenn Batahorfur betri eftir umferðarslys við Skógarveg „Það var reynt að fá þá fyrr að verkinu“ Algengt að krafa sé gerð í sambandi um að deila stöðugt staðsetningu Verðbólgan hjaðnar og vandræði í Landeyjahöfn Halda til Svíþjóðar í afmælisveislu Atli og Sunna nýir fréttastjórar og Árni varafréttastjóri Kosningapallborð fréttastofu: Glæný skoðanakönnun kynnt fyrir Hafnarfjörð Sænska lögreglan reynir að uppræta „glæpamenn til leigu“ Systkinaforgangur og heimgreiðslur á lista margra framboða í Reykjavík „Mögulegt heimilisofbeldi“ reyndist tölvuleikur Kölluð út á efsta forgangi vegna báts í vanda á Kópaskeri Að óbreyttu muni umferðin halda áfram að þyngjast Hitaveitur gætu orðið veruleiki á Grænlandi „Ég veit ekkert hvenær þeir komast aftur heim“ Bó kvaddur í hinsta sinn Sjá meira