Auglýsa Svikamyllu ehf. út um alla borg Stefán Þór Hjartarson skrifar 26. október 2017 10:45 Neysluvakan er í boði Svikamyllu ehf. sem hvetur fólk til að setja X við X.
Laugardaginn 28. október ganga Íslendingar til kosninga en á skemmtistaðnum Húrra verður boðið upp á Neysluvöku þar sem fram koma Hatari, Cyber, Kuldaboli og russian.girls í tilefni útgáfu fyrstu EP-plötu Hatara sem einmitt nefnist Neysluvara. Að viðburðinum stendur fyrirtækið Svikamylla ehf. Blaðamaður hafði samband við félagið til að grennslast fyrir um hvernig Neysluvaka væri frábrugðin hefðbundinni kosningavöku og fékk eftirfarandi tilkynningu til baka frá ónafngreindum talsmanni Svikamyllu ehf.:Það virðist vera kominn nýr flokkur í flóruna.„Nú í aðdraganda kosninga er mikilvægara en nokkru sinni að hver og einn taki upplýstar ákvarðanir, setji sig eftir fremsta megni inn í umræðu og málefni líðandi stundar, og nýti umboð sitt með hreinni samvisku. Þá skiptir ekki síður máli, að þeir sem taka við keflinu frá kjósendum nýti umboð sitt af heilindum, gangi til starfa með almannahag fyrir brjósti og missi ekki sjónar á þeim gildum, sem þeir lögðu upp með í kosningabaráttu. Öll viljum við jú breytingar. Staðreyndin er þó sú að þeir sem fara með umboðið eftir kosningadag, kjörnir fulltrúar í lýðræðisríki, hafa minna vald en hver kann að halda, sama hverju þeir kunna að ljúga að ykkur, enda svífandi, ósýnileg, alltumlykjandi hendi markaðarins, hvatvísinnar, mannlegrar skammsýni, græðgi og óreiðu það afl sem kemur til með að ráða för og, jú, treysta taumhald sitt enn frekar á heimsbyggðinni og steypa okkur öllum til glötunar.X við X.Á hverjum degi erum við nær glötun en samt höldum við í vonina – við þráum breytingar eins og barnið þráir mjólkina eða eins og hundur, hundskvikindi, sem étur hvað sem það finnur. Étur eins og það getur, meira og meira og belgist út hugsanalaust uns það hefur ekki undan sínu eigin ofáti og deyr aumkunarverðum dauða þar sem það liggur við dallinn og slefar. Og það sér ekki á dallinum því næsta dýr er mætt til að éta úr honum uns það fellur á hliðina og deyr sama aumkunarverða dauðdaga og annar hundur og annar og að endingu sjáum við ekki lengur dallinn fyrir hundshræjunum sem hafa hrúgast upp í kringum hann og alltumlykjandi höndin sem skammtar fóðrið hellir ekki lengur í dallinn heldur grefur sín eigin afkvæmi, hrúgu á hrúgu ofan.“ Að endingu segir „setjum X við X“ en svo virðist sem Svikamylla ehf. standi um þessar mundir fyrir kosningabaráttu til að vekja athygli á „ósýnilegum, allsráðandi hundshræjadansi fulltrúalýðræðisins“ eins og segir í tilkynningunni. Frekari upplýsinga um Neysluvöku má afla sér hér.Facebook-síðu Svikamyllu ehf má nálgast hérna.
Tónlist Mest lesið „Æi góði hoppaðu upp í rassgatið á þér!“ Lífið Ævintýrin hófust þegar hann hafnaði Juilliard Tónlist Sjóðheitar og einhleypar inn í haustið Lífið „Hvar eru allir herramennirnir?“ Lífið Magnaðar myndir af lengstu á landsins Lífið Ólafur Elíasson tekur yfir Piccadilly Circus og Times Square Menning Norðlenskur útsýnisdraumur Lífið „Æsandi að hugsa til þess að annar maður horfi á“ Lífið Stefnumótunarferð Fossa með mökum í Prag Lífið Hittast á hlutlausum stað Lífið Fleiri fréttir „Þetta er sem betur fer ekki upp á líf og dauða“ Ævintýrin hófust þegar hann hafnaði Juilliard Enginn súr í sætu teiti í Ásmundarsal „Ég fæ morgnana til að vera bara ég“ Rokkþyrstir geta tekið gleði sína á ný Sigga Ózk verður Ariana Grande og flytur til Noregs Ávísun á eilíf vonbrigði að elta góða veðrið Frumsýning á Vísi: Landsliðsmaður gefur út lag með pabba sínum Taylor Swift jafnaði met Beyoncé á VMA Myndaveisla: Ofurfjör á Októberfest Sáu ekki fyrir sér vinsældirnar en fagna nú 36 árum Sergio Mendes höfundur Mas Que Nada látinn Gáfu tóndæmi af Barfly í beinni Aldrei séð annað eins: IceGuys seldi nítján þúsund miða Herra Hnetusmjör stoltur eftir tryllta afmælishelgi Samtalið órjúfanlegur hluti af sköpuninni Ótrúlega slakandi raftónlistarhátíð í fimmtánda skiptið Segir Marr hafa stöðvað endurkomu The Smiths Fjörutíu blaðamönnum boðið en enginn mætti Stormaði út með látum en gafst svo upp á skrifstofustarfinu Dásamar Charlie XCX þrátt fyrir orðróminn Slíðra sverðin og boða endurkomu sveitarinnar Snorri valinn á lista 20 undir 30 hjá tímaritinu IQ Valin á lista efstu tuttugu hjá Norðurlöndunum Helgi Björns með splunkunýtt tónlistarmyndband Chappell Roan biður um frið: „Konur skulda ykkur ekki skít“ Aron Can með stóra tónleika erlendis Haustinu fagnað með tónleikum á Kaffi Flóru Nýdönsk og ADHD fá hvorar tvær milljónirnar „Ég á mjög auðvelt með að standa með þessu öllu saman“ Sjá meira