Þetta er fyrri leikur liðanna af tveimur en þau mætast aftur í Höllinni á laugardag. Svíar mæta með mjög sterkt lið til leiks og ljóst að verkefnið er ærið.
„Það verður ekkert skipt í tvö lið milli leikjanna. Það er ákveðinn kjarni sem mun spila þessa leiki. Vonandi fá allir eitthvað að spreyta sig samt. Ég er ánægður með margt sem kom út úr síðustu leikjunum í sumar og við viljum byggja ofan á það. Í grunninn vill maður helst vinna eða að minnsta kosti þannig að maður geti gengið nokkuð sáttur frá borði.
Leikirnir munu sýna okkur hvar við stöndum og hvað við þurfum að gera fram að EM í janúar,“ segir Geir sem er þó í þeirri erfiðu stöðu að geta ekki látið liðið sýna endilega allt of mikið enda eru Svíar á meðal andstæðinga Íslands á EM.
„Það eru bara fimm leikir fram að fyrsta leik á EM sem er einmitt gegn Svíum. Það er slæmt að Bjarki Már Gunnarsson geti ekki spilað og það hefði líka verið gott að hafa Aron Pálmarsson með okkur í þessu verkefni,“ segir Geir en Aron gaf ekki kost á sér í verkefnið af persónulegum ástæðum.
Ætlaði að velja Aron
„Það er gott að hans mál eru komin á hreint og óvissan var allt of lengi. Nú getur hann komið sér í gang í handboltanum. Hans persónulegu mál eru ekki bara handboltinn heldur líka að hann er að verða faðir í fyrsta skipti og það spilaði inn í. Þau urðu að taka ákvörðun um hvar þau ætluðu að eiga barnið en það verður á Spáni,“ segir Geir en hefði hann samt valið Aron í hópinn?„Það var mikið að gerast í lífi hans þegar ég tilkynnti hópinn. Ég hefði alltaf kallað hann í hópinn af því að við höfðum rétt til þess. Þar var tækifæri til þess að koma honum í handbolta því hann hefur hingað til ekki mátt æfa handbolta. Þetta er alþjóðleg vika og Veszprém hefði ekki getað meinað honum að fara í landsliðsverkefni. Hvort hann hefði spilað hefði komið í ljós.“
Leikurinn á laugardag fer fram klukkan 14.00 á kosningadegi. Það verður áhugavert að sjá hversu margir sjá sér fært að mæta í Höllina þá.
„Það riðlar aðeins málunum því við ætluðum ekki að spila svona snemma. Við verðum bara að halda fókus og ég vona svo innilega að fólk komi. Sjá okkur og líka Svíana sem eru með mjög flott lið. Fólk á að koma og njóta þess að horfa á flottan handbolta. Þarna verða bestu handboltamenn í heimi.
Kristján að gera góða hluti
Þjálfari Svíanna er Íslendingurinn viðkunnanlegi Kristján Andrésson. Hann spilaði með íslenska landsliðinu á ÓL í Aþenu árið 2004 en átti annars ekki langan landsliðsferil.„Við Kristján erum góðir vinir. Við höfum þekkst í gegnum tíðina og þegar ég þjálfaði í Þýskalandi og hann í Svíþjóð þá vorum við í miklu sambandi. Þá var ég að leita að Svíum í mitt lið. Síðan kláruðum við báðir „master coach“ á sama tíma.
Okkar leiðir hafa því oft legið saman og við erum mjög góðir félagar,“ segir Geir og hrósar Kristjáni í hástert fyrir starf hans með Svíana sem enduðu í sjötta sæti á síðasta HM og spiluðu þá frábæran handbolta.
„Kristján er að gera mjög góða hluti með Svíana. Þeir eru einstaklega ánægðir með hann í Svíþjóð. Hann hefur komið með ákveðinn léttleika og skemmtilegheit í liðið. Kristján er blanda af Íslendingi og Svía og það er góð blanda.“