Telja lík bandaríska ferðamannsins fundið Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 24. október 2017 15:27 Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út vegna leitarinnar að manninum í morgun. Vísir/Vilhelm
Lögreglan telur að lík sem björgunarsveitarmenn fundu af karlmanni við Jökulsá á Sólheimasandi í dag sé af bandarískum ferðamanni sem leitað hafði verið að í morgun. Þetta kemur fram í tilkynningu frá lögreglunni á Suðurlandi. Ekki er talið að andlát mannsins hafi borið að með saknæmum hætti. Þar segir að leitað hafi verið að manninum í morgun eftir að aðstandendur hans fóru að grenslast fyrir um afdrif hans seint í gærkvöldi. Vísir greindi frá leitinni í morgun en maðurinn ætlaði að fara frá landinu þann 13. október síðastliðinn en skilaði sér ekki heim. Bíll mannsins fannst síðan í morgun á bílastæði þar sem gengið er að flugvélaflaki á Sólheimasandi og í kjölfarið voru björgunarsveitir kallaðar út ásamt þyrlu Landhelgisgæslunnar. „Nú eftir hádegið fundu björgunarsveitarmenn lík af karlmanni við Jökulsá á Sólheimasandi og er það talið vera af manninum. Líkið verður flutt til Reykjavíkur þar sem Kennslanefnd Ríkislögreglustjóra ásamt réttarmeinafræðingi og tæknideild lögreglu Höfuðborgarsvæðisins munu sjá um að bera kennsl á hinn látna ásamt því að krufning mun leiða í ljós dánarorsök mannsins. Ummerki á vettvangi benda ekki til þess að andlát mannsins hafi borið að með saknæmum hætti,“ segir í tilkynningu lögreglunnar.Fréttin hefur verið uppfærð.
Tengdar fréttir Leita Bandaríkjamanns sem sást síðast á Íslandi Kom til Íslands 12. október og átti að fara af landi brott daginn eftir. 24. október 2017 10:24 Bandaríski ferðamaðurinn fundinn Það var laust eftir hádegi sem lögreglan á Suðurlandi fann bílaleigubíl mannsins á bílastæðinu skammt frá flugvélarflakinu á Sólheimasandi. 24. október 2017 14:52 Bíll bandaríska ferðamannsins fannst við Sólheimasand Maðurinn ætlaði að fara frá landinu 13. október en skilaði sér ekki heim. Síðast var vitað um ferðir hans þegar hann skráði sig út af hosteli við Skógafoss 13. október síðastliðinn. 24. október 2017 13:38 Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Erlent Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Innlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira
Leita Bandaríkjamanns sem sást síðast á Íslandi Kom til Íslands 12. október og átti að fara af landi brott daginn eftir. 24. október 2017 10:24
Bandaríski ferðamaðurinn fundinn Það var laust eftir hádegi sem lögreglan á Suðurlandi fann bílaleigubíl mannsins á bílastæðinu skammt frá flugvélarflakinu á Sólheimasandi. 24. október 2017 14:52
Bíll bandaríska ferðamannsins fannst við Sólheimasand Maðurinn ætlaði að fara frá landinu 13. október en skilaði sér ekki heim. Síðast var vitað um ferðir hans þegar hann skráði sig út af hosteli við Skógafoss 13. október síðastliðinn. 24. október 2017 13:38