Íslensk hönnun í bland við heimsfræga klassík 8. nóvember 2017 11:00 Halla Helgadóttir, framkvæmdastjóri Hönnunarmiðstöðvar, og Egill Örn Jóhannsson, framkvæmdastjóri Forlagsins. Vísir/Laufey
Hönnun – Leiðsögn í máli og myndum er vönduð og yfirgripsmikil bók fyrir alla unnendur klassískrar hönnunar. Í bókinni eru fallegar myndir og aðgengilegur texti um alþjóðlega og íslenska hönnun. Bókin er komin í verslanir en það sem sker hana frá öðrum slíkum er sérstakur kafli um íslenska hönnun, að sögn Höllu Helgadóttur, framkvæmdastjóra Hönnunarmiðstöðvar.„Íslensk hönnun er sett í samhengi við alþjóðlega hönnun á myndrænan og áhugaverðan hátt. Þetta er saga hönnunar í heiminum, allt frá árinu 1850. Íslenski kaflinn er sextán síður þar sem fjallað er um húsgögn og annan húsbúnað, byggingar, listmuni og grafík,“ segir Halla. Meðal þeirra sem eiga verk í íslenska hlutanum eru Högna Sigurðardóttir, Pétur B. Lúthersson, Dögg Guðmundsdóttir, Goddur, Katrín Ólína Pétursdóttir, Vík Prjónsdóttir, Manfreð Vilhjálmsson, Glit, Álafoss, Umemi og fjöldi annarra. „Einnig er áhugaverð umfjöllun um íslenska stóla,“ segir Halla og bætir við að sömuleiðis sé fjallað um nútímahönnun og hvert við stefnum í framtíðinni. „Íslendingar eru ungir þegar kemur að hönnun. Í rauninni erum við varla búin að skilgreina okkar eigin klassísku hönnun en í bókinni er gerð tilraun til þess,“ segir hún.Bókin er viðamikil og falleg.MYND/LAUFEY„Mikil aukning hefur orðið á umfjöllun um íslenska hönnun á undanförnum árum auk þess sem Íslendingar eru farnir að meta okkar eigin hönnun, til dæmis frá þeim tíma þegar innflutningur var bannaður á Íslandi, eða fyrir 1970,“ greinir Halla frá. Í bókinni er meðal annars fjallað um heimsfræga hönnuði á borð við Alvar Aalto, Eileen Gray, Georg Jensen og Philippe Starck.Elsa Yeoman á útgáfuhófi í Hönnunarmiðstöðinni þegar bókin var kynnt.Vísir/LaufeyHönnunarmiðstöð var samstarfsaðili Forlagsins við gerð íslenska hluta bókarinnar. „Forlagið leitaði til okkar og Hönnunarsafns Íslands um ráðgjöf. Bókin hefur áður verið gefin út á ensku en er nú í fyrsta sinn gefin út á íslensku með viðbættum kafla um íslenska hönnun. Hópur fagmanna úr hinum ólíkum greinum hönnunar komu að textagerð og vali á íslensku hönnuninni. Víða var leitað fanga í breiðu samstarfi ólíkra álitsgjafa. Bókin er gagnleg sem uppsláttarrit og fræðirit auk þess að vera falleg og myndræn. Ég myndi segja að hún væri mjög gagnleg til kennslu á ýmsum skólastigum þar sem listræn fög eru í boði. Þarna er íslensk hönnun sett í samhengi við alþjóðlega klassíska hönnun,“ segir Halla.Greipur Gíslason og Ólöf Rut hjá Hönnunarmiðstöðinni.Vísir/LaufeyGreinin er unnin í samvinnu með Forlaginu.
Hús og heimili Menning Tíska og hönnun Mest lesið Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Lífið Deilt um sýningu Bjarkar: „Asnalega uppsett og kostnaðarsamt prump“ Menning Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi Lífið Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Lífið Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Lífið Allir héldu Michelin-stjörnunni Lífið Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Lífið Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Lífið „Mun aldrei geta þakkað henni nógu mikið fyrir“ Tíska og hönnun „Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist“ Lífið Fleiri fréttir Ormsson með sjónvarpsmarkað í beinni útsendingu í kvöld Útivistarfatnaðurinn sem gerir íslenska sumarið betra Díllinn er nýtt app þar sem notendur finna bestu dílana Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Stórkostleg stemning á glæsilegri forsýningu Star Wars Hugarafl skilar nærri hálfum milljarði í samfélagslegan ávinning Svona færðu pallinn í toppstand fyrir sumarið Fulleldað sous vide lambakjöt er spennandi nýjung frá Kjarnafæði Sumir sofa eins og englar – gæti sængin verið leynivopnið? Næsta kynslóð sólarvarna fyrir andlit Einn stærsti rafbílaviðburður sumarsins Sumarveisla hjá Toyota í Kauptúni á laugardag Moroccanoil sér um glamúrinn á Eurovision Stuðningur sem skiptir raunverulega máli Betri svefngæði með bambus Meltingin eins og klukka og brennslan kikkaði í gang Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu Bílahátíð ársins á Kletthálsi: Ofurtilboð í þrjá daga Þetta hefur gefið mér nýtt líf Sjá meira