Októberbyltingarinnar minnst með útgáfu bókar Jón Hákon Halldórsson skrifar 6. nóvember 2017 07:00 Þorvaldur Þorvaldsson vann að þýðingu bókarinnar að mestu milli kosninganna 2016 og 2017. vísir/ernir
Nýrri bók um októberbyltinguna verður fagnað með hátíð í Iðnó á morgun. Októberbyltingin markar upphaf Sovétríkjanna. Höfundurinn er nýkominn úr kosningabaráttu sem hann segir hafa krafist mikillar vinnu. Ætlar næst að bjóða fram í öllum kjördæmum á landinu. „Ég las hana upphaflega fyrir næstum 40 árum og margt sem sat enn í minninu þegar ég fór að lesa hana aftur núna. Það má segja að kosningarnar í fyrra hafi tafið verkefnið dálítið mikið, en það tók næstum allan tímann milli kosninga,“ segir Þorvaldur Þorvaldsson, formaður Alþýðufylkingarinnar. Þorvaldur hefur lokið við að þýða bók eftir ameríska blaðamanninn John Reed um októberbyltinguna 1917 í Rússlandi. Bókin er gefin út hér á landi í tilefni af 100 ára afmæli byltingarinnar. „Bókin fjallar um aðdragandann að byltingunni. Hann kemur til Pétursborgar snemma í september og aflaði mikill gagna. Megnið af bókinni fjallar um fyrri hluta nóvember. Hann segir ítarlega frá lykilatburðum í byltingunni,“ segir Þorvaldur. Bókin kom út upphaflega 1919 og hefur komið út á mjög mörgum tungumálum. Hún hefur hins vegar ekki komið út á íslensku áður. Októberbyltingin var undanfari að stofnun Sovétríkjanna. „Hún er eiginlega fæðing Sovétríkjanna en þau voru náttúrlega stofnuð formlega 1922, eftir borgarastríðið,“ segir Þorvaldur. Í tilefni af útgáfu bókarinnar standa fern samtök að hátíðarfundi í Iðnó á þriðjudaginn. Það eru Alþýðufylkingin, MFÍK, MÍR og Sósíalistaflokkur Íslands. Bókin er prentuð í Finnlandi og Þorvaldur vonast til þess að búið verði að senda nokkur eintök heim áður en fundurinn fer fram. Síðan verður útgáfuhóf á fimmtudaginn. Þorvaldur er annars að jafna sig eftir snarpa kosningabaráttu. „Þessi praktíski undirbúningur var rosalega mikil vinna, enda aðdragandinn eiginlega sá stysti sem lög gera ráð fyrir og meira að segja stærstu framboðin áttu fullt í fangi, til dæmis í því að ná meðmælendum,“ útskýrir hann. Þorvaldur segir að Alþýðufylkingin muni bjóða fram aftur næst og þá ætlar flokkurinn að bjóða fram í öllum kjördæmum.
Birtist í Fréttablaðinu Mest lesið Eitt myndband selji upp heilu lagerana Menning Barbie-framhald í uppnámi vegna launakrafa Lífið Fréttatía vikunnar: Björk, Usher og peningaþvætti Lífið Dorrit sendir rabbínanum tóninn Lífið Hjartnæm athöfn þegar Gunnar Þórðarson var jarðsunginn Lífið Hálfsextugur Hamm að verða pabbi í fyrsta sinn Lífið Robbie Williams einhverfur Lífið „Sterklega orðaður“ við Bond og efstur hjá veðbönkum Bíó og sjónvarp Jóhanna Guðrún ólétt Lífið Elti draumana til London og tók sjálfa sig í sátt Tónlist Fleiri fréttir Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Jón Viðar fellir dóm yfir Ódysseifskviðu án þess að sjá hana Hulda Hákon, Jón Óskar og Krassasig á ListaVestrinu Aðsóknarmet slegið á brúðulistahátíð á Hvammstanga Dreymdi um að á bókasafninu væri bók eftir sig Skólastika Gamalíelsdóttir vekur undrun Íslendinga Sýning Bjarkar bæði væmin og stórkostleg og leggur til stofnun Bjarkarsafns Sjá meira