Menningarkort Reykjavíkur - ódýr og einfaldur aðgangur að menningarlífi borgarinnar 17. nóvember 2017 10:53 Á Landnámssýningunni í Aðalstræti eru tvær sýningar þar sem fjallað er um landnám Íslands og fyrstu áratugi Íslandsbyggðar.
Menningarkort Reykjavíkur er ódýr og einföld leið til að njóta menningar í borginni. Það gildir sem árskort á öll söfn Listasafns Reykjavíkur auk þess sem korthafar fá bókasafnsskírteini hjá Borgarbókasafni, afslátt í safnverslunum og Viðeyjarferjuna auk fjölda fastra tilboða og sérkjara hjá samstarfsaðilum. Í hverjum mánuði er auk þess sérstakt tilboð til korthafa þar sem þeir geta t.d. boðið gesti með sér á söfnin eða fengið 2 fyrir 1 hjá einhverjum af samstarfsaðilum þess.Söfnin Söfn Reykjavíkurborgar standa fyrir yfir 50 sýningum á ári og 150 viðburðum. Handhafar kortsins fá aðgang að öllum sýningum, opnunum, leiðsögnum og viðburðum auk fjölda annarra spennandi tilboða og fríðinda.Listasafn Reykjavíkur er starfrækt á þremur stöðum. Í Hafnarhúsi, á Kjarvalsstöðum og í Ásmundarsafni. Það er lifandi og framsækinn vettvangur þar sem reglulega eru haldnar sýningar á verkum eftir þrjá af þekktustu listamönnum þjóðarinnar, Erro, Kjarval og Ásmund Sveinsson. Jafnframt bíður safnið upp á fjölbreyttar innlendar og alþjóðlegar sýningar á nútíma- og samtímalist eftir virta íslenska og erlenda listamenn.Borgarsögusafn Reykjavíkur er eitt safn á fimm einstökum stöðum og er næststærsta safn landsins á eftir Þjóðminjasafni Íslands. Sýningastaðir þess eru Árbæjarsafn, Landnámssýningin, Sjóminjasafnið, Ljósmyndasafn Reykjavíkur og Viðey. Þar er hægt að upplifa og fræðast um sögu Reykjavíkur frá landnámi til okkar tíma.Borgarbókasafn Reykjavíkur er með útlánsstaði á sjö stöðum og rekur auk þess bókabíl og Sögubílinn. Þar er aðgangur að upplýsingum, bókmenntum, kvikmyndum, tónlist, dagblöðum og tímaritum og reglulega er boðið upp á viðburði af ýmsu tagi.Samstarfsaðilar Samstarfsaðilar kortsins eru fjölmargir og má þar nefna hátíðir á borð við Secret Soltice, Listahátíð Reykjavíkur, Lókal og Reykjavík Dance Festival sem í ár héldu sameiginlega hátíð undir nafninu Everybody‘s Spectacular. Einnig eru fastir afslættir hjá Þjóðleikhúsinu, Tjarnarbíó, Bíó Paradís, Whales of Iceland og fleirum. Á þessu ári fengu handhafar jafnframt afslátt af miðaverði á RIFF og Iceland Airwaves og stöðugt er unnið að því að bæta við nýjum og spennandi tilboðum sem tengjast menningarupplifun í Reykjavík. Safnbúðir Handhafar fá 10% afslátt í Safnbúðum Reykjavíkur en þær er að finna á öllum söfnum Reykjavíkurborgar. Þar er að finna einstakar vörur sem margar hverjar fást ekki annars staðar og endurspegla áherslur hvers safns fyrir sig. Þar er jafnframt að finna úrval af bókum, hönnun, veggspjöldum, leikföngum, kortum og fleiru sem tilvalið er til gjafa og framlengir safnupplifunina. Verði kortsins er haldið í algjöru lágmarki og kostar það nú 6000 kr. og hefst árstímabilið þegar kortið er notað í fyrsta skipti.Þessi grein er kynning á vegum Reykjavíkurborgar. Nánari upplýsingar um kortið, fríðindi, tilboð og samstarfsaðila má nálgast á menningarkort.is.
Mest lesið Æskudraumurinn varð að veruleika Lífið Stjörnulífið: Svona voru jólin hjá stjörnum landsins Lífið Steindi og Saga í stjörnuprýddum skets um typpalokk Lífið Dísella „loksins“ trúlofuð Lífið Eftirréttur ársins að hætti Elenoru Lífið Dóra Júlía og Bára gengu í það heilaga Lífið Sonur Völu og Óskars Loga kominn með nafn Lífið Álfurinn á slæmum stað: „Þetta voru erfið jól“ Lífið Áramótaheitin: Að sjá fyrir sér útkomuna en passa sig á nokkrum gryfjum Áskorun Innblástur fyrir áramótapartýið Lífið Fleiri fréttir Partyland í Holtagörðum hefur allt fyrir gamlárspartýið Gefa bretti af flugeldum að verðmæti 300.000 króna Hinn eini sanni konungur mættur í bíó Iceguys með opna búð og árita bókina „Lágspennubókmenntir“ List Sísíar sameinar húmor og hjartahlýju í nýju jólahefti Hátíðlegt en afslappað á tíu ára afmælinu Vinsælustu vörurnar í Signature 2024 Hundrað hugmyndir að gjöf fyrir hann á Já.is Fyrsti alvöru spænski veitingastaðurinn á Íslandi Finndu hina fullkomnu gjöf fyrir hana með vöruleit Já.is Keppnisskap kemur vinum í klandur „Það er enginn að ætlast til þess að ég mæti með lík“ Die Hard á jólamyndalista helsta skvísubókahöfundar landsins Við hagræðum speglum til að sýna það af lífi okkar sem við viljum sýna „Sigmundur Davíð er súrrealisti" Glansandi feldur merki um heilbrigði gæludýrsins - góð ráð fyrir sparibaðið Uppskrift að jólamatnum - þegar ekkert má klikka Matarboðin sem fólk man eftir Töfrandi og kynngimagnaður kvennaheimur opnast Óviðjafnanleg frásögn frá einstökum höfundi Gjafabréf sem búa til ógleymanlegar minningar í íslenskri náttúru Skáldskapur talaður lóðbeint út úr eigin hjarta „Hér hvílir sannleikurinn“ Gæsahúð þegar dansarar sviptu hulunni af goðsagnakenndum bíl Að ánetjast eldri konum Hafa stutt við bætta heilsu þjóðarinnar í aldarfjórðung Sérfræðingar Útilífs aðstoða við val á rétta búnaðinum Virka sömu orðskýringar á ömmur og unglinga? Kærleikskúla sem býr til ævintýri og góðar minningar Sjá meira