Mjög kuldalegt í kortunum Stefán Ó. Jónsson skrifar 20. nóvember 2017 06:20 Búast má við hvassviðri og éljangangi eða snjókomu norðan- og austantil á landinu. VÍSIR/VILHELM
Veðurstofan segir að veðurspá næstu daga sé „mjög kuldaleg.“ Mikil hæð verður yfir Grænlandi og lægðirnar fara framhjá langt fyrir sunnan land. „Við erum því föst í kaldri norðaustanátt alla vikuna með éljagangi fyrir norðan og austan, en lengst af björtu veðri sunnan heiða,“ eins og veðurfræðingur orðar það. Það mun svo bæta í vind og ofankomu á morgun. Frá þriðjudegi má því búast við hvassviðri og éljangangi eða snjókomu norðan- og austantil á landinu. Gul viðvörun er í gildi frá og með kvöldinu á fjórum landssvæðum; Breiðafirði, Ströndum og Norðurlandi vestra, Vestfjörðum sem og á Norðurlandi eystra. Er því ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám en Veðurstofan áætlar að það dragi úr vindi og éljum næstu helgi.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ þriðjudag:Norðan- og norðaustan 15-23 m/s, en mun hægari um landið suðaustanvert. Snjókoma eða él um landið N- og A-vert, en yfirleitt þurrt og bjart suðvestantil. Frost 0 til 10 stig, kaldast í innsveitum.Á miðvikudag og fimmtudag:Norðan og norðaustan hvassviðri og él, en bjart að mestu sunnan og vestanlands. Kalt í veðri.Á föstudag:Norðanátt og él, dregur úr vindi og ofankomu vestantil þegar líður á daginn, en bætir í vind allra austast. Áfram kalt í veðri.Á laugardag:Útlit fyrir norðvestanátt með dálitlum éljum við NA-ströndina, en hægari breytileg átt og víða léttskýjað annars. Talsvert frost, einkum inn til landsins.Á sunnudag:Útlit fyrir sunnan og síðar suðvestanátt með snjókomu eða slyddu. Minnkandi frost og hlánar við suðvesturströndina.
Veður Mest lesið Nóg sé komið af Trump Erlent Musk segi ósatt um Starlink Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira