Snjóar víða á landinu í nótt Atli Ísleifsson skrifar 5. desember 2017 22:03 Á Norður- og Norðausturlandi er víða éljagangur og sums staðar skefur. Vísir/auðunn
Veðurstofan spáir að það muni snjóa víða norðanlands og á Vestfjörðum í nótt. Sömuleiðis mun setja niður nokkurn snjó suðaustanlands, allt að tuttugu til þrjátíu sentimetra. Í tilkynningu frá Vegagerðinni segir að sums staðar verði talsverður bylur og takmarkað skyggni, meðal annars frá Skaftafelli og að Jökulsárlóni frá því seint í nótt og fram eftir morgni. Reikna má með hviðum, 30 til 35 metra á sekúndu, staðbundið í Öræfum fram yfir miðjan dag, en gefin hefur verið út gul viðvörun fyrir Suðausturland. „Færð og aðstæður Það eru hálkublettir víða á Suðurlandi, og sums staðar hálka, einkum á útvegum. Eins er víða nokkur hálka á Vesturlandi, ekki síst á fjallvegum. Það hefur éljað á Vestfjörðum, og þar er víða strekkingsvindur og skafrenningur. Víðast hvar er ýmist hálka eða snjóþekja en þæfingsfærð er á Steingrimsfjarðarheiði og þungfært á Dynjandisheiði og Hrafnseyrarheiði. Á Norður- og Norðausturlandi er víða éljagangur og sums staðar skefur. Færð kann því að spillast þegar þjónustu lýkur. Það er hálka eða hálkublettir á flestum vegum á Austurlandi. Með suðausturströndinni hefur éljað og þar er nú víðast nokkur hálka eða snjóþekja,“ segir í tilkynningunni frá Vegagerðinni.
Veður Mest lesið Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Innlent Fannst 73 árum eftir að hafa verið rænt Erlent Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Innlent Skiptast á eldflaugum í massavís Erlent Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Innlent Tjóðraði móður sína við stól til að drepa eiginmann sinn Erlent Varpa sprengjum á fjölbýlishús í Karkív Erlent Jörðin fær tímabundið annað tungl Erlent Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Innlent Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Innlent Fleiri fréttir Gekk nakinn í veg fyrir bíla á Suðurlandsvegi Verður Þórsmörk þjóðgarður? Vill burt með rándýr, úrelt og óþarfa stimpilgjöld Vonar að sveitarfélögin leysi úr NPA-vandanum Alþingismerkið hafi aldrei verið heilagt Fjármögnun NPA-samninga og Bakgarðshlaupið í beinni Samgöngusáttmálinn, Yazan og loftlagsmál á Sprengisandi Slegist með vopnum við skemmtistað Mættu í flugbúningi á sveitaböllin og áttu séns Sænsk glæpagengi sendi fólk til Íslands Sæðisgjafar tilkynni það fjölskyldu sinni svo ekki verði „slys“ Lögreglumenn í veikindaleyfi vegna þungra mála Með banvænan sjúkdóm í stöðugri baráttu við Kópavogsbæ Mikill reykur eftir að gleymdist að slökkva á kerti Bið eftir NPA-þjónustu og eftirspurn eftir sæðisgjöfum Arnar Þór á leið í nýjan flokk Anton Sveinn McKee til liðs við Miðflokkinn „Spurðu svo fyrirtækið þitt af hverju það leggur fé í heimsendakölt“ Ekkert sem bendir til þess að sakborningum fjölgi Lífræni dagurinn er í dag Bein útsending: Heilabilun rædd á Alzheimerdegi Ekkert bendi til að sakborningum muni fjölga Telur fleiri falla á nýju bílprófi Maður margra storma íhugar stöðu sína Byssan reyndist leikfang Mamma bara María þegar mæðgurnar eru saman á vakt Hvers vegna að fella ísbirni? Í gæsluvarðhald vegna kókaínsendingar Bræður heiðraðir á 100 ára starfsafmæli: „Einfalt, þægilegt og engin keppni“ Drengnum hafi ekki verið trúað í fyrstu Sjá meira