Lindsey Vonn: Fólk vonar að ég hálsbrjóti mig Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. desember 2017 14:30 Skíðakonan Lindsey Vonn er ein þekktasta íþróttakona Bandaríkjanna og andstaða hennar gagnvart Donald Trump Bandaríkjaforseta hefur fengið hörð viðbrögð meðal margra landa hennar. Vísir/Getty
Skíðakonan Lindsey Vonn er ein þekktasta íþróttakona Bandaríkjanna og andstaða hennar gagnvart Donald Trump Bandaríkjaforseta hefur fengið hörð viðbrögð meðal margra landa hennar. Lindsey Vonn er að undirbúa sig fyrir Ólympíuleikana í Pyeongchang en sagði að dögunum að hún myndi ekki heimsækja Hvíta húsið ef hún ynni gullið í Suður Kóreu. Vonn sagði líka að hún væri fulltrúi bandarísku þjóðarinnar en ekki bara Bandaríkjaforseta. Viðbrögðin hafa ekki látið á sér standa. Lindsey Vonn ákvað að skrifa vænan pistil á Instagram síðu sína sem hefur yfir milljón fylgjendur. Hún fer þar nánar yfir það sem hún hefur þurft að láta yfir sig ganga eftir að hún talaði hreint út varðandi andstöðu sína gagnvart Donald Trump. „Ég átti við að allir Ólympíufarar séu að koma fram fyrir alla þjóð sína en að þeir séu ekki fulltrúar stjórnvalda eða ákveðinna stjórnmálamanna,“ skrifaði Lindsey Vonn á Instagram. „Ekkert okkar leggur allt þetta á sig til að keppa síðan á leikunum fyrir hönd demókrata eða repúblikana,“ skrifaði Vonn og vill meina að Ólympíuleikarnir eigi ekki að vera pólítískir. Vonn segir að ummæli um hana sjálfa á netinu hafi opnað augu hennar fyrir því hversu sundruð bandaríska þjóðin sé í dag. Vonn meiddist á baki á heimsbikarmóti í Sviss um síðustu helgi en hún er að stefnir að því að keppa á sínum fjórðu Ólympíuleikum í febrúar. „Það er særandi að lesa athugasemdir frá fólki sem vonast til þess að ég hálsbrjóti mig eða að guð sé að refsa mér fyrir að vera á móti Trump (anti-Trump). Við þurfum að finna leiðir til að segja deilumál okkar til hliðar og finna leið til að eiga betri samskipti. Er það rangt að vonast eftir betri heimi?.“ skrifaði Vonn. Það má sjá allan pistil hennar hér fyrir neðan. As I head to France for the next races, I would like to share with you my reflections from the past few days. I've received a tremendous amount of feedback, both positive and negative, about my recent CNN interview. The point that I was trying to articulate is that all Olympic athletes represent their nation as a whole, and are not representatives of their government or any specific political figure or party. None of us work tirelessly for years on end to compete in the Olympics on behalf of Democrats or Republicans. The Olympics are a non-political event, a chance for everyone to put aside their differences and be on the same "team.". That does not mean that Olympic athletes don't have political opinions. As an American, I am extremely proud that our great nation was founded on principals and ideals where citizens can express our opinions openly. It is a privilege that some others around the world don't have. I am proud to be an American, and I want our country to continue to be a symbol of hope, compassion, inclusion and world unity. My travels around the world have recently made clear that this is no longer how people view the United States. You cannot pick up a newspaper or turn on the TV in Europe without noticing how people are questioning our direction. It seems to me that we must lead with understanding and strive for unity in our relationships throughout the world. As for myself, my recent comments opened up my eyes as to how divided we are right now. It is hurtful to read comments where people are hoping I break my neck or that God is punishing me for being "anti-Trump." We need to find a way to put aside our differences and find common ground in communicating. Is it wrong to hope for a better world? All of this is much bigger than skiing and the Olympics. I am going to take the next two months to focus on what I can do and right now that is competing for my country. In doing that, I will be hoping that we Americans can still be that "shining city on a hill." A post shared by L I N D S E Y • V O N N (@lindseyvonn) on Dec 12, 2017 at 4:57am PST
Ólympíuleikar Vetrarólympíuleikar 2018 í PyeongChang Mest lesið Brjálaðist og gaf vellinum fokkmerki Golf Fulltrúar UEFA gengu út eftir að Infantino mætti seint Fótbolti Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Enski boltinn Óðs manns æði Arnars: „Ég ætla samt að gera þetta“ Fótbolti Sjáðu mörkin: Berglind í hefndarhug með fleiri en allt Valsliðið í sumar Íslenski boltinn Dagskráin í dag: Úrslitaleikur FA Cup, risamót í golfi og sjóðheit lið í Bestu Sport Sætur sigur HK og Vilhelm bjargaði stigi fyrir ÍR Íslenski boltinn Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri Enski boltinn „Þurfa allar og við þjálfararnir að líta í eigin barm“ Íslenski boltinn „Ég get ekki beðið“ Handbolti Fleiri fréttir Dagskráin í dag: Úrslitaleikur FA Cup, risamót í golfi og sjóðheit lið í Bestu Fulltrúar UEFA gengu út eftir að Infantino mætti seint Brjálaðist og gaf vellinum fokkmerki Sjáðu mörkin: Berglind í hefndarhug með fleiri en allt Valsliðið í sumar Salah gagnrýndi stuðningsmenn Liverpool Sætur sigur HK og Vilhelm bjargaði stigi fyrir ÍR Eitt töfrabragð dugði gegn United í dýrmætum sigri „Þurfa allar og við þjálfararnir að líta í eigin barm“ Villa ekki í vandræðum með Spurs og stefnir aftur í Meistaradeildina Elvar í aðalhlutverki þegar Melsungen tók stórt skref í titilslagnum „Ég get ekki beðið“ Uppgjörið: Breiðablik - Valur 4-0 | Berglind refsaði gamla liðinu í stórsigri Íslenskt mark, sjálfsmark og rautt spjald Gunnar mætir þrautreyndum kappa í sumar Óðs manns æði Arnars: „Ég ætla samt að gera þetta“ Hamilton: „Dæmið okkur eftir nokkur ár“ Stærsti íþróttaviðburður sem fram hafi farið hér á landi Aron á að hjálpa leikmönnum að hugsa ekki um ströndina Selirnir verða heiðursgestir á fyrsta heimaleik KR Svona var blaðamannafundur Arnars Aron Einar með en enginn Gylfi Þróttur mætir bikarmeisturunum Áhorfandi hljóp inn á og réðist á fyrrverandi leikmann Vals Friðrik Ingi hættur með Hauka Svona var blaðamannafundur Vals fyrir seinni úrslitaleikinn Mikilmennin misstíga sig á PGA-meistaramótinu Hörður kominn undan feldinum Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó Ronaldo langtekjuhæsti íþróttamaður heims Fjórtán slösuðust þegar ekið var á áhorfendur Sjá meira
Þeir bestu (25.-21. sæti): Kolbeinn kafteinn, raðsigurvegarinn í markinu, Blikahetjur og þrumuskot suður með sjó