Mathús Garðabæjar slær í gegn 27. desember 2017 11:00 Vel fer um gesti í rúmgóðu og fallegu rými veitingastaðarins. MYNDIR/SIGURJÓN SIGURJÓNSSON
Mathús Garðabæjar er fjölskylduvænn veitingastaður sem hefur slegið rækilega í gegn frá því hann var opnaður í hjarta Garðabæjar árið 2016. Staðurinn býður vandaðan og fjölbreyttan mat úr fyrsta flokks hráefni og ættu allir að geta fundið eitthvað við sitt hæfi allt árið um kring.Matseðillinn er girnilegur og býður upp á rétti fyrir alla aldurshópa.Aðsóknin í desember hefur verið mjög góð, svo góð að starfsmenn Mathúss Garðabæjar eru í skýjunum yfir móttökunum undanfarnar vikur, að sögn Stefáns Magnússonar, eiganda veitingastaðarins. „Nú í desember höfum við m.a. boðið upp á vinsælan jólabrunch þar sem við höfum boðið upp á gott úrval rétta fyrir alla fjölskylduna, ekki síst yngstu kynslóðina. Vegna góðrar aðsóknar og mikillar eftirspurnar buðum við upp á auka jólabrunch annan í jólum en með léttan matseðil um kvöldið.“Annar matreiðslumeistara Mathúss Garðabæjar er Fannar Vernharðsson, fyrrverandi yfirkokkur á Vox og meðlimur kokkalandsliðsins.Úrvals kokkar Matreiðslumeistarar Mathúss Garðabæjar eru þeir Fannar Vernharðsson, fyrrverandi yfirkokkur á Vox og meðlimur kokkalandsliðsins, og Garðar Aron Guðbrandsson, sem einnig starfaði á Vox um tíma. „Þessir tveir meistarakokkar stjórna eldhúsinu okkar og sjá um að matreiða, ásamt öðru frábæru starfsfólki okkar, sívinsæla rétti okkar á borð ánægðra viðskiptavina. Milli jóla og nýárs munum þeir bjóða upp á léttan seðil sem inniheldur m.a. lambafillet, þorsk og vinsælu andalærin okkar. Að sjálfsögðu munum við bjóða áfram upp á hina margrómuðu og vinsælu þriggja rétta veislu þar sem matreiðslumennirnir velja það besta af matseðlinum.“Fallegir drykkir í boði fyrir unga sem aldna.Nýr matseðill Starfsfólk Mathúss Garðabæjar horfir til næsta árs með mikilli tilhlökkun, segir Stefán. „Fannar og Garðar eru að leggja lokahönd á glæsilegan nýjan matseðil sem við byrjum með strax í janúar á næsta ári. Við hlökkum til að taka vel á móti öllum á nýju ári og að sjálfsögðu munum við halda áfram með steikarhlaðborðið og brunch um helgar en ekki síður koma fram með ýmsar spennandi nýjungar. Mathús Garðabæjar hefur einnig tekið að sér veislur úr húsi sem slegið hafa í gegn. Við munum enn frekar leggja áherslu á þær á nýju ári eftir frábærar viðtökur.“Garðar Aron Guðbrandsson er annar matreiðslumeistara á Mathúsi Garðabæjar.Mathús Garðabæjar leggur mikla áherslu á að börnum líði vel. Því er sérstakt barnaherbergi á staðnum þar sem börn geta dundað sér í ró og næði þegar þeim hentar. „Við bjóðum því upp á flest allt sem þarf fyrir glaðan dag með fjölskyldunni; frábæran mat og drykk, góða aðstöðu fyrir börnin og að sjálfsögðu næg bílastæði.“Þessi grein er kynning á Mathúsi Garðabæjar. Nánari upplýsingar á mathus.is, Facebook og Instagram.
Matur Mest lesið Krefst þess að Applegate haldi sig fjarri henni Lífið Deilt um sýningu Bjarkar: „Asnalega uppsett og kostnaðarsamt prump“ Menning Efnir til styrktarlottós: Hefur glímt við krabbamein nánast alla ævi Lífið Stóð uppi sem ófrísk ekkja 29 ára gömul Lífið Stjörnulífið: Þakklátur „LadyBoy ársins“ Lífið Allir héldu Michelin-stjörnunni Lífið „Mun aldrei geta þakkað henni nógu mikið fyrir“ Tíska og hönnun Stjörnukokkar landsins gætu fengið fleiri Michelin-stjörnur Lífið Halla T og Björk í stuði á Listahátíð Lífið „Heima beið hvolpur sem ég gæti alveg vanist“ Lífið Fleiri fréttir Ormsson með sjónvarpsmarkað í beinni útsendingu í kvöld Útivistarfatnaðurinn sem gerir íslenska sumarið betra Díllinn er nýtt app þar sem notendur finna bestu dílana Fiskikóngurinn fagnar stækkun með glæsilegri opnunarhátíð Heather Mills heldur fyrirlestur í Hagkaup Stórkostleg stemning á glæsilegri forsýningu Star Wars Hugarafl skilar nærri hálfum milljarði í samfélagslegan ávinning Svona færðu pallinn í toppstand fyrir sumarið Fulleldað sous vide lambakjöt er spennandi nýjung frá Kjarnafæði Sumir sofa eins og englar – gæti sængin verið leynivopnið? Næsta kynslóð sólarvarna fyrir andlit Einn stærsti rafbílaviðburður sumarsins Sumarveisla hjá Toyota í Kauptúni á laugardag Moroccanoil sér um glamúrinn á Eurovision Stuðningur sem skiptir raunverulega máli Betri svefngæði með bambus Meltingin eins og klukka og brennslan kikkaði í gang Hinn goðsagnakenndi óperusöngvari Sir Bryn Terfel kemur til Íslands Sjálfbær þróun kaupmannsins á horninu Bílahátíð ársins á Kletthálsi: Ofurtilboð í þrjá daga Þetta hefur gefið mér nýtt líf Sjá meira