Innlent

Fjárlög ekki afgreidd fyrir jól

Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar
Steingrímur J. Sigfússon er forseti Alþingis. Hann er hér við setningu þingsins í liðinni viku.
Steingrímur J. Sigfússon er forseti Alþingis. Hann er hér við setningu þingsins í liðinni viku. vísir/anton brink
Ekki næst að afgreiða fjárlög næsta árs frá Alþingi fyrir jól. Þing mun því þurfa að koma saman milli jóla og nýárs. Þetta segir Steingrímur J. Sigfússon, forseti þingsins, í samtali við Vísi en hann mun funda með formönnum þingflokka í hádeginu í dag til að ræða framhald þingstarfa.

„Nefndirnar eru á fullu núna þar sem öll málin eru komin inn í nefnd. Þannig að það mæðir mikið á þeim núna og starfsfólki nefndasviðsins,“ segir Steingrímur.

Hann segir að stefnt sé á að næsti þingfundur verði á morgun en ekki er ljóst hvort hann verði klukkan 10:30 eða 13:30. Þá sé áformað að ljúka annarri umræðu um fjárlög fyrir jól.

En verður þingfundur á Þorláksmessu?

„Það verður að koma í ljós, hvort að það verði atkvæðagreiðslur þá. Við erum ekki með fund á Þorlák nema brýna nauðsyn beri til því utanbæjarfólk vill náttúrulega gjarnan losna við það en það eru auðvitað fordæmi fyrir því. Ef til þess kæmi þá væri bara reynt að hafa stuttan fund fyrri part dags og þá fyrst og fremst í atkvæðagreiðslur,“ segir Steingrímur.

Hann segir það ekki raunhæft að ætla sér að ljúka afgreiðslu fjárlaga næsta árs fyrir jól en stefnt sé að því að ljúka annarri umræðu, bæði um fjárlagafrumvarpið og hinn svokallaða bandorm sem felur í sér breytingar sem þarf að gera á ýmsum lögum vegna fjárlagafrumvarpsins.

Milli jóla og nýárs þarf þing því að ljúka ýmsum málum og segir Steingrímur líklegt að þing komi saman að nýju strax þann 27. desember næstkomandi.


Tengdar fréttir

Önnur umræða um fjárlög hefst líklega á föstudag

Þingflokksformaður Vinstri grænna reiknar með að fjárlaganefnd ljúki fyrstu yfirferð sinni á fjárlagafrumvarpinu á morgun. Reikna megi með að einhverjar breytingar verði gerðar á frumvarpinu en ekki liggi fyrir hvort samstaða náist um breytingar með stjórnarandstöðunni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×