Yfir blásarasextettinum svífur sópraninn Gunnþóra Gunnarsdóttir skrifar 20. desember 2017 09:30 Diddú og drengirnir í Mosfellskirkju. Björn, Sigurður, Brjánn, Diddú, Keli (með hornið á hausnum!) Kjartan og Emil. Vísir/Eyþór
Ert þú ekki einn af drengjunum hennar Diddúar? spyr ég manninn sem svarar símanum í Túnfæti í Mosfellsdal. „Jú, jú, ég er karlinn hennar, kallaður Keli,“ svarar hann hress. Tilefni símtalsins er 20. jólatónleikar hóps sem kallar sig Diddú og drengirnir í Mosfellskirkju í Mosfellsdal í kvöld. Drengirnir eru sex og leika allir á blásturshljóðfæri, Kjartan Óskarsson og Sigurður Ingvi Snorrason á klarínettur, Þorkell Jóelsson (Keli) og Emil Friðfinnsson á horn og Brjánn Ingason og Björn Árnason á fagott. Söngkonuna Diddú þarf ekki að kynna. „Þetta er búinn að vera sami mannskapur í 20 ár, rosalega skemmtilegur félagsskapur,“ segir Keli. „Það gengur á með stríðni og svívirðingum allan daginn og svo er settur upp sakleysissvipurinn þegar byrjað er að spila!“ Keli segir jólaprógrammið mismunandi frá ári til árs. „Það er alltaf eitthvað nýtt. En við erum komin með mikið efni sem við getum valið úr. Þeir Kjartan og Sigurður hafa umskrifað og útsett heilan helling fyrir okkur því það var voða lítið til skrifað fyrir sópran og blásarasextett. Svo þetta er svolítið spes.“ Fyrir utan jólatónleikana í Mosfellskirkju sem eru fastur punktur í starfi hópsins hefur hann gefið út diska og er að skipuleggja þriðju ferðina til Frakklands í sumar. „Svo höfum við farið til Ítalíu, Vínarborgar, Lundúna og Kanada. Við skipuleggjum þetta saman, skiptumst á að reka hvert á eftir öðru,“ segir Keli glettinn að vanda. Allir eru blásararnir félagar úr Sinfóníunni. „Sumir alveg úr!“ eins og Keli orðar það. Hann var í Sinfóníunni í 36 ár en er nú kominn á eftirlaun. Hvernig finnst honum það? „Það er fínt. Ég kenni og spila hitt og þetta, meira að segja á böllum. Það er gott að vera frjálsari, hitt var alveg orðið nóg – eins og það var nú gaman.“ Tónleikarnir í kvöld hefjast klukkan 20. Dagskráin er falleg og hátíðleg aðventumúsík eftir ýmsa höfunda, bæði íslenska og erlenda, að sögn Kela sem nefnir meðal annars Händel og Mozart, Atla Heimi og Jóhann G. Jóhannsson. „Diddú syngur og við spilum einhver hressileg millispil,“ segir hann. „Þetta er ekki langt prógramm, kannski rúmur klukkutími. Það má ekki drepa fólk úr leiðindum rétt fyrir jólin!“
Menning Mest lesið „Ætlarðu að lifa eða ætlarðu að deyja?“ Lífið Gísli Marteinn syrgir þrjóskan Vesturbæing Lífið Hvað veistu um… London? Lífið Hættir með stefnumótaþættina vinsælu Lífið Survivor-keppandi missti fót og krefst 100 milljóna dala í skaðabætur Lífið Fylltu Egilshöllina á forsýningu Hvar er draumurinn? Bíó og sjónvarp Af TikTok á skjáinn Bíó og sjónvarp Fastagestur lumaði á áttatíu ára gömlum grip Lífið Star Wars Zero Company: Herkænskan klikkar seint Leikjavísir Gleðibankinn fær nýjan búning í tilefni fertugsafmælis Gula miðans Lífið samstarf Fleiri fréttir „Maður skynjaði eitthvað brothætt en það var hluti af sjarmanum“ Þórdís Zoëga sló í gegn í Kaupmannahöfn Svandís í ritstjórastól Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Rigningin stoppaði ekki stuðið hjá Yeoman Orgel Grensáskirkju fékk nýtt líf í Saurbæ Eitt myndband selji upp heilu lagerana Byrjaði sem þráhyggja fyrir rapplagi á spítala Sjá meira