Fjarnemar í FÁ á annað þúsund Fjölbrautarskólinn í Ármúla kynnir 9. janúar 2018 10:00 Fjölbrautaskólinn í Ármúla býður upp á almennt framhaldsskólanám í fjarnámi. Innritun stendur yfir. mynd/FÁ
KYNNING: Fjölbrautaskólinn í Ármúla býður upp á almennt framhaldsskólanám í fjarnámi. Nemendur geta tekið einn áfanga og upp í fullt nám á hverri önn. Innritun stendur til 10. janúar. Við höfum boðið upp á fjarnám frá árinu 2001. Þetta er vinsæll valmöguleiki og á síðustu önn voru um 1.300 nemendur í fjarnámi við skólann,“ segir Steinunn H. Hafstað, fjarnámsstjóri Fjölbrautaskólans við Ármúla. Skráning og greiðsla fer fram á heimasíðu skólans til 10. janúar. Á síðunni kemur fram hvaða áfangar eru í boði og lýsing á þeim. Þurfi fólk aðstoð við að finna út hvaða áfanga það þarf að taka býðst þeim ráðgjöf frá skólanum. „Námið er sett upp í kennslukerfinu Moodle og hefur nemandi þar aðgang að kennurum, verkefnum og prófum og því námsefni sem ekki þarf að kaupa. Í kerfinu er einnig ítarefni, myndbönd og hljóðupptökur og þá fær hver nemandi námsáætlun og skilaáætlun verkefna yfir önnina. Í lok annar eru próf og þá þarf nemandinn að mæta í skólann eða á einhvern stað hann býr ekki á höfuðborgarsvæðinu eða erlendis,“ segir Steinunn. Hverjir sækja fjarnám?„Afar fjölbreyttur hópur nýtir sér fjarnámið á nánast öllum aldri. Til dæmis nemendur í framhaldsnámi sem þurfa að endurtaka áfanga eða vilja flýta fyrir sér. Einnig nemendur sem lokið hafa starfsnámi og þurfa að bæta við sig til stúdentsprófs og nemendur sem þegar hafa lokið stúdentsprófi en þurfa að bæta við áföngum til að uppfylla inntökuskilyrði háskóla. Stór hluti nemenda í fjarnámi er fólk sem hefur nám að nýju efir hlé. Þá erum við með stóran hóp nemenda í 9. og 10. bekk grunnskóla sem taka áfanga í fjarnámi hjá okkur. Þeir nemendur fá námsefni við hæfi sem fæst metið inn í framhaldsskólana. Það flýtir fyrir krökkunum og gerir grunnskólunum kleift að koma til móts við styrkleika þeirra án þess að þau þurfi að stökkva yfir bekki.“ Að auki býður skólinn upp á fjölbreytt nám á heilbrigðisbrautum. Aðstoð við heimanámÖllum nemendum skólans, bæði í dagskóla og fjarnámi, býðst aðstoð við heimanám í námssetri skólans sem opið er á hverjum degi. Aðstoðinni sinna bæði kennarar og nemendur. Nánari upplýsingar á www.fa.is
Mest lesið Tútturnar úti á Grammy-hátíðinni Tíska og hönnun Fjölskyldan veik af fíknivanda en alltaf staðið þétt saman Lífið Laufey Lín fékk önnur Grammy-verðlaun Lífið Þær keppa í Ungfrú Ísland 2026 Lífið Fundu ástina í stjórnarráðinu Lífið Íslenskt par í Köben stofnar nýjan leikjavef Lífið Stjörnulífið: Dorrit og Pharrell Williams í fíling Lífið Þessi fengu Grammy og sendu ICE-kaldar kveðjur Lífið „Ekki láta aldurinn eða stoltið stoppa þig“ Lífið Kynlíf á ekki að vera vont Lífið Fleiri fréttir Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Fermingardagurinn er stór dagur Skilnaður „ógeðslega erfitt fyrirbæri“ en til eru verkfæri sem hjálpa Batinn kom úr ólíklegri átt - Fegrunarmeðferð varð lykillinn að bættri heilsu „Geðrækt þarf ekki að vera flókin“ 43 ára kvikmyndasaga kvödd Draumaferðin gæti verið nær en þú heldur Hyalúrónsýra, kraftaverkaefni nútímans Hafa umbreytt lífsskilyrðum fólks Frank Sinatra, Dean Martin og Sammy Davis Jr. lifna við í Hörpu Góðgerlar fyrir jafnvægi á hverju æviskeiði Biostrength er tæknibylting í styrktarþjálfun Sjá meira