Fimm reknir frá KR Jón Hákon Halldórsson skrifar 13. janúar 2018 07:00 KR hefur vísað fimm mönnum á dyr vegna ósæmilegrar framkomu á síðustu árum. Í tveimur tilfellum voru málin kærð. Forystumenn þrigga annarra íþróttafélaga eru slegnir yfir alvarleika frásagnanna. vísir/anton brink
Á síðustu árum hafa komið upp fimm mál hjá KR, þar sem mönnum hefur verið vísað frá félaginu vegna óeðlilegra samskipta milli kynja. Þetta segir Stefán Arnarson, íþróttafulltrúi KR. Stefán segir að í tveimur tilfellum hafi mál verið kærð til lögreglu og í öllum tilfellum hafi þeir sem áttu hlut að máli verið látnir fara frá félaginu. Stefán segir ekki hafa verið um nauðganir að ræða, „sem betur fer ekki“. Forystumenn þriggja annarra íþróttafélaga, sem Fréttablaðið ræddi við, eru slegnir yfir alvarleika þeirra frásagna sem konur í íþróttum birtu af kynferðisbrotum, kynferðislegri áreitni og kynbundinni mismunun í fyrradag. „Mér finnst þessi mál alveg skelfileg og þessi alvarlegustu mál ættu náttúrlega að vera lögreglumál. En auðvitað verður íþróttahreyfingin, þess vegna á næstu dögum, að fá til liðs við sig sérfrótt fólk um þessi mál og búa til leiðbeiningar fyrir íþróttafélögin,“ segir Viðar Halldórsson, formaður FH. Horfir hann þar fyrst og fremst til Íþróttasambands Íslands. „En auðvitað verður síðan að takast á við hvert mál um leið og það kemur upp.“ Viðar segist kannast við eineltismál en ásakanir um kynferðislegt ofbeldi hafi hann aldrei heyrt. „Það er ömurlegt að lesa þetta.“Viðar Halldórsson, Formaður FHSveinn Gíslason, formaður Breiðabliks, segir að félagið hafi þurft að takast á við eineltismál og atvik þar sem stúlkum sem æfa hjá félaginu hafi verið sýnd ósæmileg framkoma. Í þeim tilfellum hafi verið leitað til Ungmennafélags Íslands og Ungmennafélags Kjalarnesþings sem hafi á að skipa fagaðilum á því sviði. „Þetta kemur þess vegna ekki á óvart en maður er sleginn yfir alvarleika þeirra dæma sem nefnd voru. Við erum mjög stórt íþróttafélag með mjög öfluga starfsemi hjá stelpum og konum og eftir að þessar fréttir komu í gær (í fyrradag) höfum við rætt saman og við ætlum að ræða þetta sérstaklega í aðalstjórn félagsins í næstu viku,“ segir Sveinn. Reynt verði að skoða ferla hvernig hægt er að bregðast við svona málum og greina hversu alvarlegur vandinn er hjá félaginu. „Við ætlum ekki að loka augunum fyrir því að hann sé til staðar en vonum að það sé ekkert saknæmt sem hafi átt sér stað,“ segir hann. Árni Óðinsson, formaður Þórs á Akureyri, segist hafa getað ímyndað sér að eitthvað þessu tengt gæti hafa átt sér stað innan íþróttahreyfingarinnar, en ekki svona mikið og ekki svona ljótt. Hann segir félagið nú þegar hafa rætt málið og það verði rætt áfram. Hann kannast ekki við að neitt þessu líkt hafi komið upp hjá Þór. Hins vegar geti félagið ekki afgreitt málið þannig að það eigi ekki við um sig. „Þetta á við um okkur öll.“ Sveinn og Árni taka undir með formanni FH að ÍSÍ geti leitt vinnuna við að móta viðbrögð við svona atburðum. Fjórar ásakanir um ofbeldi á sex árum „Ég starfaði sem framkvæmdastjóri í tveimur íþróttafélögum í samtals sex ár. Á þeim tíma fékk ég inn á mitt borð fjögur tilfelli þar sem þjálfari/leikmaður/starfsmaður félagsins (sem í öllum tilfellum var karlmaður) var ásakaður um brot sem flokkast sem kynferðisbrot gegn einstaklingi eða a.m.k. ósæmileg hegðun,“ segir Jóhann Már Helgason, fyrrverandi framkvæmdastjóri Vals og Aftureldingar, í stöðufærslu á Facebook. Hann segir brotin hafa verið misalvarleg. Í þremur af þessum málum hafi viðkomandi aðila verið vikið frá félaginu og í einu tilfellinu hafi viðkomandi hætt sjálfur.
Birtist í Fréttablaðinu MeToo Tengdar fréttir Íþróttakonur jafna leikinn: Lýsa áreitni, mismunun, ofbeldi og nauðgunum 462 núverandi og fyrrverandi íþróttakonur sendu í dag frá sér MeToo yfirlýsingu ásamt 62 reynslusögum. 11. janúar 2018 15:00 Jónína segist skapi næst að hvetja „strákana okkar“ til að nafngreina stelpur Þakka ég þér fyrir að kasta rýrð á frásögn mína um það ömurlega ofbeldi sem ég mátti þola 16 ára gömul, segir Hafdís Inga Hinriksdóttir. 12. janúar 2018 20:15 Frásögn Hólmfríðar orðin að fréttamáli í Noregi Íslenska landsliðskonan Hólmfríður Magnúsdóttir staðfesti í gær að hún ætti eina af frásögnuum 62 sem birtust þegar íþróttakonur á Íslandi sendu frá sér yfirlýsingu í tengslum við MeToo umræðuna. 12. janúar 2018 09:00 Mest lesið Illa brugðið en heill á húfi Innlent Tvær þyrlur sendar og hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs slyss Innlent Lýsa eftir Halldóri Inga Innlent Sagðir undirbúa stórsókn gegn Hútum Erlent Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Innlent Veittist að flugstjóranum með öxi í tilraun til að fremja hryðjuverk Erlent „Of margar sögur af vondri meðferð“ Innlent Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Innlent Samgöngur í lamasessi eftir enn eina árás á brú Erlent Gul viðvörun eftir stóra skriðu Innlent Fleiri fréttir Taka sig upp á ógnarhraða og smella beltinu af Tvær þyrlur sendar og hópslysaáætlun virkjuð vegna alvarlegs slyss Smella af sér bílbeltunum á ógnarhraða og breytingar í Kerlingarfjöllum Gul viðvörun eftir stóra skriðu Illa brugðið en heill á húfi Handtekinn grunaður um að beita piparúða Lýsa eftir Halldóri Inga „Of margar sögur af vondri meðferð“ Halda hækkunum innan við 2,5 prósent og hætta við lækkun systkinaafsláttar Íbúar gáttaðir eftir ofrukkanir frá Vegagerðinni Aurskriða féll á veginn og honum lokað Starfsmaður Reykjavíkurborgar smitaðist af nóróveiru Heiða í veikindaleyfi Fagfélögin kalla eftir heimild til að slíta kjarasamningum Unglingar bundnir og skildir eftir við heimili Fara fram á 16 ár yfir meintum morðingja Allir sautján frjálsir ferða sinna „Við erum óþolinmóð“ Minni gjaldahækkanir kosti ríkissjóð 2,5 milljarða Þetta eru stæðin sem borgin hefur endurheimt Segir ágreininginn í Landsvirkjun ekki snúast um arðgreiðslur Geri málið tortryggilegt að neita að svara „Við höfum séð mikla aukningu á því á Íslandi“ Íslensk skólastúlka varð fyrir táragasi í París Laug að Morgunblaðinu um nýjan KFC-stað Stefna á þrjú þúsund hektara en endurheimtu þrettán Ein matskeið og þá er dauðinn vís Beint: Opið málþing um heimilisleysi „Vissi að ég var ekki að haga mér eins og venjulegt fólk“ Lægð suðvestan úr hafi væntanleg til landsins Sjá meira
Íþróttakonur jafna leikinn: Lýsa áreitni, mismunun, ofbeldi og nauðgunum 462 núverandi og fyrrverandi íþróttakonur sendu í dag frá sér MeToo yfirlýsingu ásamt 62 reynslusögum. 11. janúar 2018 15:00
Jónína segist skapi næst að hvetja „strákana okkar“ til að nafngreina stelpur Þakka ég þér fyrir að kasta rýrð á frásögn mína um það ömurlega ofbeldi sem ég mátti þola 16 ára gömul, segir Hafdís Inga Hinriksdóttir. 12. janúar 2018 20:15
Frásögn Hólmfríðar orðin að fréttamáli í Noregi Íslenska landsliðskonan Hólmfríður Magnúsdóttir staðfesti í gær að hún ætti eina af frásögnuum 62 sem birtust þegar íþróttakonur á Íslandi sendu frá sér yfirlýsingu í tengslum við MeToo umræðuna. 12. janúar 2018 09:00