Kristján mun ekki syngja með íslenska þjóðsöngnum Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 12. janúar 2018 09:30
Kristján Andrésson er orðinn spenntur fyrir leik Íslands og Svíþjóðar í kvöld en hann er sem kynnugt er þjálfari sænska liðsins. Kristján, sem hefur lengst af búið í Svíþjóð, er fyrrum landsliðsmaður Íslands í handbolta. Kristján var í viðtali í beinni útsendingu í kvöldfréttum Stöðvar 2 í gær en þar hitti íþróttafréttamaðurinn Henry Birgir Gunnarsson á hann. „Þetta er leikur og mót sem okkur hefur hlakkað lengi til. Nú er komið að Íslandi og öllu því sem leiknum fylgir,“ sagði Kristján sem ætlar ekki að syngja með íslenska þjóðsöngnum í kvöld. „Nei, það mun ég ekki gera. Ég syng sænska þjóðsönginn. Ég reyndar kann ekki allan íslenska þjóðsönginn.“ Kristján spilaði með Íslandi á Ólympíuleikunum í Aþenu árið 2004 og hefur venjulega haldið með Íslandi þegar liðið spilar gegn Svíum. Það breyttist eðlilega þegar hann tók við sænska liðinu. „Ég er að vinna fyrir sænska handboltasambandið en þykir samt mjög vænt um Ísland. Mér þykir líka vænt um Svíþjóð. Þetta er spes leikur og skemmtilegur.“ „Að fá að spila í svona keppni með öllum þeim tilfinningnum sem fylgir er mjög skemmtilegt.“
EM 2018 í handbolta Mest lesið Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Körfubolti Bikarmeistarar fá bara stutt sumarfrí Sport Sara Björk komin heim Sport Iraola kynntur til leiks hjá Liverpool Enski boltinn Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust Körfubolti Stelpurnar okkar ekki sammála um hverjir vinna HM Fótbolti Slæm úrslit hjá Frökkum og Spánverjum Sport Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Handbolti Ruben Dias segir að nú sé nóg komið: „Ég hélt ekki framhjá“ Enski boltinn „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Körfubolti Fleiri fréttir Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Guðjón Valur ósáttur því lið gæti grætt á tapi Ráða Svíann sem var einu sinni orðaður við íslenska landsliðið „Þetta hefði ekki getað endað betur“ Bjarki Már ungverskur meistari fjórða árið í röð Hættur og farinn í meistaranám til Bandaríkjanna Hættir með vefinn sinn Handbolti.is Íslendingalið Melsungen er Evrópudeildarmeistari Íslenska þríeykið þýskur meistari Donni lék Landin grátt en mátti þola sárt tap í fyrsta leik um titilinn Óðinn fékk silfrið í fyrsta sinn Arnar og Reynir spila við Kiel um titilinn Dagur Árni aftur heim í KA Tárvotur Bjarki fékk hjartnæma kveðjustund Hörkuleikur í Ungverjalandi Kristianstad er sænskur meistari Velti sinni stöðu fyrir sér þegar eitt stykki Aron vildi verða þjálfari Fékk þjálfarabakteríuna á nokkrum vikum Sigursteinn barðist við tárin Aron verður aðalþjálfari FH en Sigursteinn aðstoðar Hákon Daði til Aftureldingar Hættu leik þegar flugeldum var skotið inn á völlinn Ósátt með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum: „Hreint út sagt ömurlegt“ „Íslenska eldfjallið“ sem átti að vera varaskeifa en vann svo titilinn FH-ingar boða til blaðamannafundar Sjá meira