Segja líkur á arðbærri olíulind of litlar til að réttlæta frekari leit Kristján Már Unnarsson skrifar 26. janúar 2018 19:45 Olíuleitin hófst formlega við athöfn í Ráðherrabústaðnum þann 4. janúar árið 2013 þegar fyrstu sérleyfunum var úthlutað að viðstöddum ráðherrum olíumála Íslands og Noregs. Stöð 2/Baldur Hrafnkell Jónsson.
Norska ríkisolíufélagið Petoro segist sammála því mati hins kínverska CNOOC að líkur á að finna arðbæra olíulind á Drekasvæðinu séu of litlar til að þær réttlæti frekari olíuleit. Fjallað var um málið í fréttum Stöðvar 2. Tilkynning Orkustofnunar í byrjun vikunnar, um að erlendu sérleyfishafarnir á Drekasvæðinu hefðu ákveðið að skila inn leyfinu, var óvænt. Stjórnarformaður Eykons, Heiðar Guðjónsson, sagði ákvörðun þeirra koma óþægilega á óvart og taldi hana lykta af pólitík. Hann vísaði til þess að Norðmennirnir hefðu í nóvember lagt til að farið yrði í grunnar boranir en jafnframt hafði norska Stórþingið samþykkt um miðjan desember að fjórfalda framlög til olíuleitarinnar á þessu ári. Nú hefur Petoro birt fréttatilkynningu þar sem skýrðar eru ástæður þess að ríkisolíufélagið norska ákvað að skila inn síðasta sérleyfi sínu á landgrunni Íslands. Þar segist félagið hafa lagt sjálfstætt mat á líkur á olíufundi. Kínverska ríkisolíufélagið CNOOC var stærsti aðili síðasta sérleyfisins á Drekasvæðinu.Grafík/Stöð 2. Petoro segir jarðfræði Drekasvæðisins mjög flókna og einkennast af mikilli sögulegri eldvirkni, sem geri mat á verkefninu mjög erfitt. Eldvirknin hafi stuðlað að mjög miklum hita sem skapi miklar áskoranir gagnvart hugsanlegum kolvetnum og varðveislu þeirra. Ef leyfið hefði verið tekið á næsta stig hefði þurft að kaupa þrívíðar bergmálsmælingar á minnst 200 ferkílómetra svæði. Haustið 2017 hefðu Petoro og aðrir leyfishafar rætt um að taka meiri tíma í að greina fyrirliggjandi gögn, auk þess sem grunn sýnataka úr berggrunni gæti verið gagnleg áður en endanleg ákvörðun yrði tekin. „Rekstraraðilinn CNOOC mat það ekki aðlaðandi að halda áfram á næsta stig með svo litlar líkur á að finna kolvetni sem vinna mætti á arðbæran hátt. Eftir heildstætt mat lagði fyrirtækið til að leyfinu yrði skilað. Petoro tók undir mat og ákvörðun CNOOC og mun gefa eftir leyfið til olíuleitar,” segir í tilkynningu Petoro. Búist er við að Orkustofnum ákveði eftir miðjan febrúar hvort íslenska félagið Eykon fái að halda sínum hluta leyfisins áfram eða hvort það verði afturkallað. Hér má sjá frétt Stöðvar 2:
Olíuleit á Drekasvæði Tengdar fréttir Fjórfalda fjárheimildir til olíuleitar á Drekasvæði Olíuleit á íslenska Drekasvæðinu fjórfaldast að umfangi á næsta ári, miðað við fjárheimildir sem norska Stórþingið samþykkti fyrir helgi til ríkisolíufélagsins Petoro. 18. desember 2017 21:15 Neitar að hætta olíuleitinni og segir málið lykta af pólitík Olíuleit á Drekasvæðinu gæti verið lokið eftir að kínverska ríkisolíufélagið CNOOC og norska ríkisolíufélagið Petoro ákváðu að skila inn sérleyfi sínu. Íslenska félagið Eykon vill halda áfram þótt Orkustofnun telji forsendur brostnar. 22. janúar 2018 18:39 Sér ekki loftslagsmarkmið og olíuvinnslu ganga saman Umhverfisráðherra telur það afar ólíklegt að ráðist verði í nýtt útboð vegna olíuleitar í tíð sitjandi ríkisstjórnar. 23. janúar 2018 16:00 Segir ný gögn um Drekasvæðið grunn að næsta olíuleitarútboði Orkustofnun áætlar að kostnaður við olíuleit á Drekasvæðinu sé kominn yfir fimm milljarða króna, þar af eru fimmhundruð milljónir í leyfisgjöld til ríkisins. 24. janúar 2018 20:00 Úthluta metfjölda sérleyfa en hætta við Drekasvæðið Ákvörðun norskra stjórnvalda um að draga ríkisolíufélagið Petoro út úr olíuleit á Drekasvæðinu var tekin daginn eftir að inn í ríkisstjórnina kom nýr flokkur, sem eindregið hefur barist gegn því að Jan Mayen-svæðið yrði opnað til olíuleitar. 23. janúar 2018 22:15 Mest lesið „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Atvinnulíf Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Fleiri fréttir „Bað maðurinn minn þig um að spyrja mig að þessu?“ Prentmet Oddi kaupir Ísafoldarprentsmiðju Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Land Rover veisla á laugardaginn Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus Bora eftir jarðhita á Tenerife „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi ESB sektar Temu um 28,7 milljarða króna Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Rafsendibílar orðnir raunhæfur kostur fyrir íslensk fyrirtæki Ekkert plan: Mun gervigreindin borga tekjuskatt? Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Sjá meira
Fjórfalda fjárheimildir til olíuleitar á Drekasvæði Olíuleit á íslenska Drekasvæðinu fjórfaldast að umfangi á næsta ári, miðað við fjárheimildir sem norska Stórþingið samþykkti fyrir helgi til ríkisolíufélagsins Petoro. 18. desember 2017 21:15
Neitar að hætta olíuleitinni og segir málið lykta af pólitík Olíuleit á Drekasvæðinu gæti verið lokið eftir að kínverska ríkisolíufélagið CNOOC og norska ríkisolíufélagið Petoro ákváðu að skila inn sérleyfi sínu. Íslenska félagið Eykon vill halda áfram þótt Orkustofnun telji forsendur brostnar. 22. janúar 2018 18:39
Sér ekki loftslagsmarkmið og olíuvinnslu ganga saman Umhverfisráðherra telur það afar ólíklegt að ráðist verði í nýtt útboð vegna olíuleitar í tíð sitjandi ríkisstjórnar. 23. janúar 2018 16:00
Segir ný gögn um Drekasvæðið grunn að næsta olíuleitarútboði Orkustofnun áætlar að kostnaður við olíuleit á Drekasvæðinu sé kominn yfir fimm milljarða króna, þar af eru fimmhundruð milljónir í leyfisgjöld til ríkisins. 24. janúar 2018 20:00
Úthluta metfjölda sérleyfa en hætta við Drekasvæðið Ákvörðun norskra stjórnvalda um að draga ríkisolíufélagið Petoro út úr olíuleit á Drekasvæðinu var tekin daginn eftir að inn í ríkisstjórnina kom nýr flokkur, sem eindregið hefur barist gegn því að Jan Mayen-svæðið yrði opnað til olíuleitar. 23. janúar 2018 22:15