Ábendingar um málefni útlendinga og innflytjenda látnar falla niður Kjartan Kjartansson skrifar 8. febrúar 2018 10:57 Ríkisendurskoðun vinnur nú að skýrslu um starfsemi Útlendingastofnunar sem lögð verður fyrir Alþingi síðar á þessu ári. Vísir/Stefán
Ríkisendurskoðun ítrekar ekki sjö ábendingar til innanríkis- og velferðarráðuneytis sem hún gerði árið 2015 í nýrri eftirfylgniskýrslu um málefni útlendinga og innflytjenda. Vísar stofnunin meðal annars til nýrra laga um útlendinga og að fjárlagagerð vegna málefna útlendinga hafi tekið jákvæðum breytingum. Ábendingarnar voru settar fram í skýrslu Ríkisendurskoðunar um Málefni útlendinga og innflytjenda á Íslandi árið 2015. Í tilkynningu nú bendir stofnunin á að síðan sú skýrsla kom út hafi verið samþykkt ný lög um útlendinga og ályktun um framkvæmdaáætlun í málefnum innflytjenda. Velferðarráðuneyti hafi unnið að framgangi áætlunarinnar. Ríkisendurskoðun hvetur ráðuneytið að vinna markvisst að markmiðum hennar. Þá hefur dómsmálaráðherra sett reglugerð um útlendinga en með henni var Útlendingastofnun falið að starfrækja móttökustöð fyrir hælisleitendur og lágmarksréttindi hælisleitenda skilgreind. Fjárlagagerð vegna málefna útlendinga hefur einnig tekið jákvæðum breytingum frá árinu 2015 að mati Ríkisendurskoðunar. Stofnunin telur þó að tryggja þurfi að áætlanir séu raunhæfar og að kostnaður verði í samræmi við fjárveitingar. Í janúar samþykkti Alþingi beiðni tíu þingmanna um skýrslu frá Ríkisendurskoðun um starfsemi Útlendingastofnunar. Ríkisendurskoðun hefur orðið við beiðninni og stefnir að því að birta niðurstöður í opinberri skýrslu til Alþingis í september 2018.
Mest lesið Musk segi ósatt um Starlink Erlent Nóg sé komið af Trump Erlent Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Innlent Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Innlent Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Erlent Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Erlent Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Erlent Vilja hækka samræðisaldur Innlent „Ég er bara svolítið sár“ Innlent Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Erlent Fleiri fréttir Bóndinn segist stoltur stunda blóðmerahald Ekki sjálfsagt að bóka flug með löngum fyrirvara Glefsaði í vegfaranda við matvöruverslun Jólageitin risin Sjö þúsund krónur séu ekki nóg Landsbyggðin „brjáluð“ vegna málsins Leggjast gegn sameiningu lögregluembætta „Ég er bara svolítið sár“ „Landsbyggðin brjáluð“ og draugar í Laugardal Vilja hækka samræðisaldur Telja brýnt að endurskoða fækkun lögregluembætta Óljóst hvers vegna þeir hittust í „völundarhúsi“ bílastæðahússins „Góður rjúpnatúr snýst ekkert um veiða sem flestar rjúpur“ Sigmar snýr aftur Umferðarslys á Breiðholtsbrautinni Mátti reka mann sem hótaði að slíta af honum höfuðið Klukkuturninn snýr aftur á Hlemm „Við erum virkilega þreyttir“ Vill efla bókasöfnin með minni yfirbyggingu Hafa lagt sig fram við að eyða óvissunni Nú má heita eftir persónu í Hringadróttinssögu Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Ráðast í úttekt eftir að starfsmaður lenti í alvarlegu vinnuslysi Ætla að blása til sóknar í bókasöfnum borgarinnar Þakið komið af tilvonandi höfuðstöðvum Nova Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Suðuviðgerð leiddi til lendingar á veginum Fresturinn liðinn en enn ósamið við flugvirkja Drógu vélarvana skútu til hafnar Telur dómarann vanhæfan vegna starfa í slitastjórn Sjá meira