Ósamvinnuþýðir „spilarar“ handteknir á skemmtistað Kristín Ólafsdóttir skrifar 3. mars 2018 07:39 Alls komu 66 mál til afgreiðslu lögreglu í nótt. Vísir/Eyþór
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu lokaði skemmtistað í austurborginni laust fyrir klukkan 01:00 í nótt þar sem fólk reyndist vera undir lögaldri. Þetta kemur fram í dagbók lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. „Mjög treglega gekk að loka staðnum vegna framgöngu starfsmanna og þeirra sem héldu uppi spilinu,“ segir í dagbók lögreglu. Téða „spilara“ þurfti að handtaka svo lögregla fengi vinnufrið á vettvangi. Viðkomandi skemmtistaður hefur margítrekað komið við sögu lögreglu vegna viðlíkra mála og væntanlega munu leyfismál staðarins vera tekin til ítarlegrar skoðunar eftir helgi. Klukkan 02:11 í nótt var kona handtekin eftir að hafa sparkað í höfuð karlmanns í miðbæ Reykjavíkur. Konan verður yfirheyrð síðar í dag vegna málsins. Mál er varða ölvunar- og fíkniefnaakstur komu auk þess inn á borð lögreglu í nótt eins og flestar nætur. Samtals tók lögregla 66 mál til afgreiðslu frá klukkan 23:00.
Lögreglumál Mest lesið Áslaug Arna hættir á Alþingi Innlent Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Innlent „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Innlent Leita Íslendings í Taílandi Innlent „Þú værir í fangelsi ef ekki væri fyrir mig“ Erlent Steingrímur Ari Arason er látinn Innlent Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Innlent „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans Innlent Mótmæli og átök vegna dauða Henry Nowak Erlent Sami flugmaðurinn skotinn niður yfir Íran og yfir Kúveit Erlent Fleiri fréttir Tíu fangar verði þegar fluttir úr landi „Ekkert til í því“ að næsta skref sé ritstjórastóll Moggans „Það hefnir sín oft að yrkja ljóð“ Fjárdráttur lögmanns hjá héraðssaksóknara Lögregla leitar vitna í innbrotsmáli Reykjabús Tilfinningaþrungin stund á Alþingi og nýr leik- og grunnskóli að rísa í Reykjavík Forseti klökknaði aftur: „Of mikið tilfinningalegt álag“ Ef þeir hafi ekki aga gerist ekki neitt Áslaug Arna hættir á Alþingi Þota föst á Tenerife vegna áreksturs Leita Íslendings í Taílandi Steingrímur Ari Arason er látinn Fjögurra flokka meirihluti í Norðurþingi „Í mínum huga er þarna illa farið með dýr“ Þingnefnd breytir ekki forgangsröð jarðganga Þórkatla slökkvi vonarneistann með nýjum samningi Lilja Björg ráðin sveitarstjóri Dalabyggðar Kærð fyrir að draga sér ríflega tólf milljónir úr dánarbúi Sjálfstæðismenn formenn sjö ráða af átta Baldur og Herjólfur sigla til Eyja Sundlaugar opnar til miðnættis og ótakmörkuð bílastæði Dýrum stefnt í hættu Unnur Brá sveitarstjóri í Borgarbyggð og Skorradalshreppi Beri skylda að skila Dananum hugsanlega á Þingvöllum Tímamót í borginni, innbrot í kjúklingabú og forritari á barnsaldri „Ávirðingarnar sem þetta fólk lét út úr sér eru því sjálfu til skammar“ Sumaráætlun Herjólfs frestað Leit að eftirmanni Höllu Bergþóru hafin Fær annan skóla undir sinn væng Faldi rúmar þrjátíu milljónir í peningaskáp Sjá meira