Þreföld tvenna LeBron í sigri Lakers Einar Sigurvinsson skrifar 18. mars 2018 09:15 LeBron James var í stuði. vísir/getty
LeBron James skoraði 33 stig, var með 12 fráköst og 12 stoðsendingar í sigri Cleveland Cavaliers á Chicago Bulls í NBA-deildinni í nótt. Þetta var hans 15. þrefalda tvenna á tímabilinu. San Antonio Spurs sigraði Minnesota Timberwolves, 117-101, þar sem besti maður vallarins var LaMarcus Aldridge. Hann skoraði 39 stig og var með 10 fráköst fyrir Spurs. Portland Trail Blazers eru á fljúgandi siglingu og unnu sinn 12. sigur í jafn mörgum leikjum þegar liðið sigraði Detroit Pistons, 100-87. Sömu sögu er ekki hægt að segja af Pistons en þetta var þeirra áttunda tap í síðustu 10 leikjum, liðið situr í 9. sæti Austurdeildarinnar. Memphis Grizzlies bundu loksins enda á 19 leikja taphrinu sína þegar þeir unnu Denver Nuggets með sjö stigum, 101-94. Dillon Brooks skoraði 24 stig og Tyreke Evans 20 fyrir Grizzlies. Nuggets söknuðu síns stigahæsta leikmanns, Gary Harris, en hann er meiddur á hné. Utah Jazz vann sinn níunda leik í röð þegar liðið hafði betur gegn Sacramento Kings, 103-97. Donovan Mitchell skoraði 28 stig fyrir Jazz en atkvæðamestur í liði Kings var Rudy Gobert með 22 stig og 13 fráköst. Golden State Warriors unnu Phoenix Suns með frábærum þriðja leikhluta. Leiknum leik með 15 stiga sigri Warriors, 124-109. Quinn Cook setti persónulegt met þegar hann skoraði 28 stig fyrir Warriors, en 16 þeirra skoraði hann í þriðja leikhluta. Josh Jackson bætti einnig stigamet sitt þegar hann skoraði 36 stig fyrir Suns.Úrslit næturinnar: Bulls - Cavaliers 109-114 Spurs - Timberwolves 117-101 Trail Blazers - Pistons 100-87 Grizzlies - Nuggets 101-94 Jazz - Kings 103-97 Suns - Warriors 109-124
NBA Mest lesið „Sá sem ég dáist mest að í heiminum“ Fótbolti Ronaldo tilkynnir að hann sé á förum frá landsliðinu Fótbolti „Ég gef ekki kost á mér í næsta leik“ Fótbolti Kvartaði í forsetann þegar hann fékk ekki að spila Fótbolti Berar konur í FC 27 en EA lofar bót og betrun Fótbolti Stelpurnar fengu medalíur merktar strákum Fótbolti Frikki Dór segir stöðu Bjarkar galna en bærinn lofar að verja starfið Sport Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ Enski boltinn Þjálfarinn skyndilega hættur fyrir leikinn við Ísland Fótbolti Danir fjalla um niðurlæginguna á Hlíðarenda Handbolti Fleiri fréttir Uppgjörið: Valur - Njarðvík 77-64| Valur skellti Íslandsmeisturunum Haukar létu Fjölni bíða eftir fyrstu stigum tímabilsins Sigurganga Tindastóls í Evrópu heldur áfram Setti silfurliðið í sjötta sæti: Nýr þjálfari og þynnri hópur „Ég hef miklar áhyggjur af Valsstelpunum“ „Þurfum að bæta varnarleikinn umtalsvert“ „Baráttan góð en margt sem við þurfum að gera betur“ Grindavík hóf tímabilið á stórsigri Uppgjörið: KR - Stjarnan 94-87 | KR-ingar höfðu betur í sveiflukenndum leik Grænn Rúnar dró Grindavík Meiri pressa á sterkara KR-liði Lebron talaði hreint út Tröllvaxinn Tryggvi hóf tímabilið af krafti Tindastóll með fullt hús stiga í Evrópu eftir spennutrylli Uppgjörið: Njarðvík - Keflavík 83-78| Njarðvíkingar eru meistarar meistaranna Njarðvík spáð toppsætinu og nýliðarnir verma botninn Martin frábær í sigurleik Stólarnir unnu fyrsta leik sannfærandi Martin byrjar nýtt tímabil eins og hann endaði síðasta Kjartan snýr aftur á Álftanes: „Baldur bara bað mig um að koma“ Beinið brotnaði í tvennt og Ólafur fer varlega Losa Leonard eftir refsinguna Bandaríkin unnu fimmta heimsmeistaratitilinn í röð Bandaríkin og Frakkland mætast í úrslitum heimsmeistaramótsins Pargo verður áfram hjá Grindavík Þrjár Evrópuþjóðir í undanúrslitum Stærsta körfuboltakona heims gnæfir yfir mótherja sína Lakers á undan Bulls að reisa styttu af Phil Jackson Falko farinn frá ÍR Hætti er liðið sótti rússneskan leikmann Sjá meira