„Bókarinn í Auschwitz“ látinn Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 13. mars 2018 09:08 Oskar Gröning var 96 ára þegar hann lést. vísir/getty
Fyrrverandi SS-liðsmaður sem starfaði í Auschwitz-útrýmingarbúðunum í Póllandi, Oskar Gröning, er látinn, 96 ára að aldri, en hann var dæmdur fyrir aðild sína að helförinni árið 2015. Gröning þurfti þó aldrei að sitja í fangelsi því enn var verið að áfrýja máli hans þegar hann lést. Hann var kallaður „bókarinn í Auschwitz“ en hann hafði þann starfa að skrásetja allar eigur þeirra sem sendir voru í gasklefana og var hann dæmdur meðsekur að morðum á 300 þúsund gyðingum sem þar létu lífið. Gröning hóf störf í Auschwitz aðeins 21 árs gamall. Við réttarhöldin yfir honum sagði Gröning að hann hefði orðið vitni að fjöldamorðum en neitaði að hafa tekið þátt í þjóðarmorðum á Gyðingum. Þegar hann beindi orðum sínum til dómaranna við réttarhöldin sagði hann: „Ég bið um fyrirgefningu. Ég er siðferðislega sekur en hvort ég er sekur samkvæmt hegningarlögum er ykkar ákvörðun.“ Gröning var fundinn sekur þrátt fyrir að engin bein sönnunargögn tengdu hann við tiltekin morð. Voru réttarhöldin og dómurinn yfir honum talin marka þáttaskil í Þýskalandi þar sem fjölmargir SS-liðsmenn hafa farið frjálsir ferða sinna þar sem ekki voru næg sönnunargögn til þess að tengja þá við tiltekin morð. Þýskir fjölmiðlar segja að líklegast sé Gröning síðasti nasistinn sem dæmdur verður fyrir misgjörðir sínar en færri en fimmtíu fangaverðir af þeim 6500 sem störfuðu í Auschwitz fengu fangelsisdóma.
Mest lesið Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Erlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Sáttameðferð sé ekki alltaf rétta leiðin Innlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum Erlent Fleiri fréttir Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Þróa þjónustustöð fyrir tunglið Íbúar Alberta höfnuðu áætlunum um sjálfstæði Orðrómar valda ugg og ótta í Mílanó: „Það eru allir frekar hræddir“ Christiane Amanpour mun kveðja CNN Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Sjá meira