Tönn útdauðs risahákarls stolið Stefán Ó. Jónsson skrifar 13. mars 2018 06:38 Tönnin var merkilega heilleg sem þykir mjög sjaldgæft þegar um slíkar tennur er að ræða. Vestur-áströlsk stjórnvöld
Tönn sem tilheyrði eitt sinn risahákarli hefur verið stolið úr áströlskum þjóðgarði, sem meðal annars er á heimsminjaskrá UNESCO. Tönnin er rúmlega átta sentimetrar á lengd og hafa áströlsk stjórnvöld lítið vilja gefa upp um málið. Þó er greint frá því í erlendum miðlum að tönnin hafi verið önnur tveggja sem finna mátti á Ningaloo-strönd í vesturhluta Ástralíu. Ströndin er á heimsminjaskrá Menningarstofnunar Sameinuðu þjóðanna og er hennar alla jafna vel gætt af þjóðgarðsvörðum og vísindamönnum. Þó það sé hægara sagt en gert að nálgast tennur hins útdauða risahákarls Carcharodon Megalodon er talið ólíklegt að hátt verð fáist fyrir hana á svarta markaðinum. Talsmaður Ningaloo-strandar segir að starfsmenn svæðisins hafi falið tönnina á nokkuð einangruðu svæði, þangað sem ferðamenn færu alla jafna ekki. Aðeins örfáir heimamenn vissu af tönninni og óttast talsmaðurinn að einhver þeirra hafi sagt aðkomumanni frá staðsetningu hennar. Þjófurinn hefur þurft að reiða sig á hamar og meitil því tönnin var orðin samgróin steinunum sem hún lá á. Eins og sjá má á myndinni hér að neðan má bersýnilega sjá hvar tönnin hefur legið í milljónir ára. Carcharodon Megalodon gat orðið um 18 metrar að lengd og næstum 100 tonn að þyngd. Þeir gátu því orðið umtalsvert stærri en stærstu tegundir núlifandi hákarla.Þjófurinn hefur þurft að reiða sig á hamar og meitil til að fjarlægja tönnina.Vestur-áströlsk stjórnvöld
Mest lesið Svakaleg lægð í líkingu við metlægðina í síðustu viku nálgast landið Veður „Við erum virkilega þreyttir“ Innlent Allir á uppsagnarfresti og enginn getur svarað Innlent Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Erlent Hörð andstaða íbúa við rekstur veislusalar Innlent Búið að opna Hellisheiði á ný Innlent Brutu kynferðislega gegn börnum en sluppu við refsingu Innlent Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Erlent Leigubílstjóri lét hnefana tala Innlent Beiðni skólastjóra kveikti hörð orðaskipti í Hafnarfirði Innlent Fleiri fréttir „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé „Loka“ Vesturbakkanum eftir árás á hermenn Einn látinn eftir mögulega hryðjuverkaárás Thomas Markle sakaður um vörslu barnaníðsefnis Enn einu skipinu sökkt á Svartahafi Flugsamgöngur í lamasessi vegna öflugs fellibyls Saka Kanadamenn um afskipti af kosningunum „Niðurstaðan er sú að hann setti þetta aftur á“ Ákærður fyrir að nauðga sautján ára stúlku en neitar sök Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Vilja afsökunarbeiðni frá Kim vegna jarðsprengju Ætlar að halda þingsætinu þrátt fyrir rannsókn á svikum Létu sprengjum rigna yfir Kænugarð Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns „Nei, Pútín er harðsvíraður morðingi“ Björguðu særðum hermanni með dróna Fulltrúi Trump lofaði „mannvininn“ Pútín Sænskur glæpaforingi ákærður fyrir þrjú morð Vill losna við blaðamenn og fá sundlaug í staðinn Þingkonan missti báða fætur eftir árásina Herlið á leiðinni og Íslendingar hafi varann á Þungmálmar í drykkjarvatni á Svalbarða vegna þiðnunar Meintir njósnarar handteknir í Danmörku Selenskí og bandamenn hitta fulltrúa Trump í Osló Heita því að refsa Norður-Kóreu fyrir ögranir Braut ekki af sér þegar hann skaut barn til bana Verðlag og óvissa leiða til óeirða í Evrópu Sjá meira