Tugir slösuðust í mótmælunum í Katalóníu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 26. mars 2018 09:04 Frá mótmælunum í gær. vísir/epa
Talið er að að minnsta kosti 89 manns hafi slasast í fjölmennum mótmælum í Katalóníu á Spáni í gær þar sem þúsundir mótmæltu því að Carles Puigdemont, fyrrverandi forseti heimastjórnar héraðsins, hefði verið handtekinn í Þýskalandi. Mótmælendurnir slösuðust í átökum við lögreglu og þá voru fjórir handteknir. Puigdemont, sem meðal annars er ákærður á Spáni fyrir landráð, var handtekinn í Þýskalandi á grundvelli evrópskrar handtökuskipunar sem gefin var út á hendur honum á föstudag. Hann var handtekinn á leið sinni frá Danmörku til Belgíu en þar hefur hann verið í sjálfskipaðri útlegð síðan í október eftir að ríkisstjórn Spánar vék honum úr starfi. Það var gert eftir þjóðaratkvæðagreiðslu í Katalóníu sem ríkisstjórn Spánar segir hafa verið ólöglega. Héraðsstjórn Katalóníu var leyst upp og Madríd tók yfir stjórn héraðsins. Puigdemont mun koma fyrir dómara í Þýskalandi síðar í dag. Hann á yfir höfði sér allt að 30 ára fangelsisvist fyrir þau meintu brot sem hann er ákærður fyrir á Spáni. Níu aðrir leiðtogar sjálfstæðissina Katalóníu sitja í fangelsi. Fimm aðrir eru í útlegð. Á föstudaginn úrskurðaði Hæstiréttur Spánar að ákæra ætti 25 leiðtoga héraðsins fyrir landráð, fjárdrátt og að hlýða ekki skipunum ríkisins.
Tengdar fréttir Leiðtogi katalónskra sjálfstæðissinna handtekinn í Þýskalandi Fyrrverandi forseti heimastjórnarinnar í Katalóníu var handtekinn við landamæri Danmerkur. 25. mars 2018 11:11 Þúsundir mótmæla handtöku Puigdemont Um er að ræða sjálfstæðissinna sem vilja sjálfstæði Katalóníu frá Spáni og heita þau því að handtaka Puigdemont, sem var forseti heimastjórnar héraðsins, muni ekki koma í veg fyrir frelsi héraðsins. 25. mars 2018 22:52 Mest lesið Áfram geisar innbrotahrinan Innlent Enginn alvarlega slasaður eftir bílveltuna Innlent Björgólfur Thor flýr breska skatta til Ítalíu Innlent Breikkun á Kjalarnesi boðin út eftir margra ára seinkun Innlent Vegir og gatnamót í Hvalfirði komnir að þolmörkum Innlent Miklar bikblæðingar við Jökulsárlón Innlent Hryðjuverkamálið frá upphafi til enda Innlent Veðrið haggist ekki að neinu ráði Innlent Ferðaþjónustan, fullveldið og fullt af forsætisráðherrum Innlent Bílvelta í Skötufirði Innlent Fleiri fréttir Modi féllst á kröfur „Kakkalakkanna“ Minnst einn látinn á Pride-hátíð í Berlín Bolsonaro yngri tilkynnir forsetaframboð Einn látinn eftir að flugvél endaði á húsþaki Hjálpaði mágkonu sinni að flýja heimilið: „Þetta reddast!“ Eldarnir þeir skæðustu sem hafi nokkurn tímann herjað á landið Ekkert lát á árásum Bandaríkjanna og Íran Minnst 15 látnir í árásum Rússa Vilja refsiaðgerðir til að sporna gegn „vistmorði“ Kínverja Vopnaframleiðendur reyna að koma til móts við Evrópu Eldar brenna á Spáni og í Frakklandi Vilja tryggja að hægt sé að óvirkja gervigreindina Viðurkenndu mistök og drógu stefnur gegn blaðamönnum til baka Southport-morðinginn fluttur á geðdeild Nýir tollar lagðir á yfir 80 ríki með vísan til vinnuþrælkunar Óttast að hin leiðin lokist með miklum afleiðingum Sádar verði að viðurkenna tilvist Ísrael Slapp naumlega frá hlébarða í vínbúð Hótar Hútum vegna árása á flutningaskip Hútar réðust á olíuflutningaskip frá Sádi Arabíu Réttarhöld yfir Maduro hefjast í júní á næsta ári Bandaríkin og Sádi-Arabía undirrita kjarnorkusaming „Dr. Jihad“ sem talinn var dáinn vill aftur til Ástralíu Gervigreindarlíkan framkvæmdi netárás óumbeðið Rústa brú eða orkuveri fyrir hverja árás á Hormússundi Fyrirsætuveiðari Epsteins fannst látinn Vill að Infantino stýri Sameinuðu þjóðunum Rýnt í deilurnar: Hver er nýr yfirherforingi Úkraínu? Vill billjónir vegna stríðsins og reifst við þingmenn Frakkar lögleiða samfélagsmiðlabann barna Sjá meira
Leiðtogi katalónskra sjálfstæðissinna handtekinn í Þýskalandi Fyrrverandi forseti heimastjórnarinnar í Katalóníu var handtekinn við landamæri Danmerkur. 25. mars 2018 11:11
Þúsundir mótmæla handtöku Puigdemont Um er að ræða sjálfstæðissinna sem vilja sjálfstæði Katalóníu frá Spáni og heita þau því að handtaka Puigdemont, sem var forseti heimastjórnar héraðsins, muni ekki koma í veg fyrir frelsi héraðsins. 25. mars 2018 22:52