Skoðun

Er langtíma stefnumótun ómöguleiki á Íslandi?

Anna Björk Bjarnadóttir skrifar
Gott samfélag er í mínum huga samfélag þar sem það telst eðlilegt ferli hjá yfirvöldum og öllum helstu hagsmunaaðilum að setjast reglulega niður og móta stefnu til 10-20 ára fyrir allar grundvallarstoðir samfélagsins. Grundvallarstoðir eins og heilbrigðismál, samgöngumál, loftslagsmál, menntun, rannsóknir og nýsköpun, atvinnuvegir og svo mætti lengi telja.

Margir undirþættir eru svo í hverri grunnstoð, sem hver þarf sína sérstöku stefnu sem aftur tengist yfirstefnunni á skýran hátt. Þannig heyrir undir heilbrigðismál að móta sérstaka stefnu í öldrunarmálum og þar undir jafnvel sérstaka stefnu í því málefni aldraðra sem snýst um heilabilun. Innan heildstæðrar stefnu um menntamál þarf að fara dýpra í menntun og rannsóknir á hverju skólastigi með þar til gerðum undirstefnum. Þvert á skólastig mætti svo hugsa sér sérstaka stefnu um að kerfið í heild eigi að geta mætt aukinni þörf fyrir nýja þekkingu inn í ný störf sem bylting í tækniþróun er óðfluga að skapa.

Þó nokkuð er til af stefnum í ofangreindum málaflokkum, en þær eiga það flestar sammerkt að ná aðeins til skamms tíma og að hafa ekki breitt eignarhald né sátt á bak við sig. Það þýðir að í hvert skipti sem ríkisstjórnarskipti eiga sér stað er bókstaflega allt undir. Heilu atvinnugreinarnar halda niðri í sér andanum á meðan ný ríkisstjórn vindur ofan af þeim ákvörðunum sem sú fyrri tók og kemur með nýjar áherslur. Þær áherslur umbylta svo öllu því sem myndar forsendur til atvinnureksturs, skólahalds, reksturs og uppbyggingar innviða og heilbrigðisstofnana og svo framvegis. Fyrirtækin, skólarnir, sjúkrahúsin og viðeigandi stofnanir sjá stefnu sína, framtíðarsýn, markmið og aðgerðaáætlanir liðast í sundur, því allt í einu er gefið upp á nýtt og spilin sem þau voru með á hendi eiga ekki lengur við.

Það er blóðugt að hugsa til þess sem tapast við að breyta sífellt um kúrs í bókstaflega öllu, þegar okkur sem samfélagi lánast ekki að vinna faglega langtímastefnumótun í því sem skiptir okkur mestu máli og við vitum að við getum í raun öll verið sammála um, sama hvar í flokki eða atvinnugrein við störfum.



Höfundur er framkvæmdastjóri Expectus og FKA-félagskona




Skoðun

Sjá meira


×