Síðasta karldýr tegundarinnar dautt Stefán Ó. Jónsson skrifar 20. mars 2018 08:38 Súdan, sem sést hér árið 2016, var orðinn 45 ára gamall. Það er sagt jafngilda 90 mennskum árum. Vísir/AFP
Nashyrningurinn Súdan, sem var orðinn 45 ára gamall, var svæfður í gær. Dauði hans markar þáttaskil því hann var síðasta karldýr sinnar tegundar, sem er önnur af tveimur undirtegundum hvíta nashyrningsins. Nú eru aðeins tvö kvendýr eftir, sem jafnframt ertu dóttir og barnabarn Súdans, og því allar líkur á að stofninn muni deyja út á næstu árum. Súdan hafði glímt við mikil veikindi undanfarna mánuði og töldu starfsmenn verndarsvæðisins þar sem hann hafðist við undir það síðasta að ekki væri mannúðlegt að halda honum á lífi lengur. Tilraunir til að fá Súdan til að makast með kvendýrunum tveimur höfðu allar mistekist og óttuðust vísindamenn því að útdauði tegundarinnar væri aðeins tímaspursmál. Til að vekja athygli á málinu útbjuggu vísindamennirnir Tinder-aðgang fyrir Súdan, ekki til þess að komast í kynni við aðra nashyrninga heldur til þess að vekja máls á dýravernd og safna peningum fyrir rannsóknir á tæknifrjóvgun. Slíkar rannsóknir eru taldar eina vonarglætan fyrir nashyrningategundina. Tinder-uppátækið aflaði Súdan mikilli vinsælda um heim allan og búast má við því að þúsundir aðdáenda hans muni syrgja fráfall hans. Vísindamenn tóku lífsýni úr hræi Súdans og vona þeir að í fyllingu tímans verði hægt að nýta erfðaefni hans til að endurvekja tegundina. Undir það síðasta þjáðist Súdan af margvíslegum kvillum, ekki síst í stoðkerfinu og húðinni. Þegar hann gat ekki lengur staðið vegna verkja var ákveðið að svæfa Súdan, sem breska ríkisútvarpið segir að hafa verið orðinn 90 ára gamlan í mannsárum.
Mest lesið Skotvopnin reyndust leikfangabyssur Innlent Bolafjallsvegi verður lokað 12. ágúst Innlent Viðræður við Íran hefjist á morgun Erlent Allt að tuttugu stiga hiti og líkur á síðdegisskúrum Veður Einn handtekinn vegna grófrar líkamsárásar Innlent Vopnin reyndust vera „nákvæmar eftirlíkingar“ Innlent Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Erlent Sárt að geta ekki sagt ömmu sinni frá sakleysi sínu Innlent Grunaður um að hafa ráðist á dyraverði Innlent Miðaði byssu á annan mann Innlent Fleiri fréttir Viðræður við Íran hefjist á morgun Játaði að hafa flutt líkið í ferðatösku Sviðið flak annarrar þyrlunnar hafnaði á vegi Dani lést í þyrluslysinu Danir auka vígbúnað í Færeyjum Þyrlur slökkviliðs skullu saman í miðju lofti Trump boðar hlé á árásum og fullyrðir að samkomulag sé í sjónmáli Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Þrír látnir í sprengingu á veitingastað í Moskvu Ráðherrar Evrópu halda neyðarfund á þriðjudag Harðar deilur innan klerkastjórnarinnar Níu felldir í Kænugarði Kallað eftir skyndifundi innanríkisráðherra ESB Myndir: Tugir þúsunda syntu til Ceuta Skilaboð send úr símanum í blekkingarskyni Hamasliðar samþykkja að afvopnast Tæplega 50 þúsund manns synt til Ceuta á einum sólahring Trump segir Hamas samþykkja að afvopnast og Ísrael að hverfa frá Gasa „Hún drap börnin“ „Það sem hann gerði, ég get aldrei endurgoldið það“ Nítján ára Norðmaður dæmdur fyrir að taka að sér leigumorð á Englandi Bandaríkjamaður sagður smygla vopnum og málaliðum til Súdan Rússnesk stýriflaug líklega lent í Póllandi Segjast hafa gert harða hríð að byltingarverðinum Minnst þrjátíu látnir í Japan Fjögur börn látin eftir loftárásir Rússa á borgir Úkraínu Neitaði að svara spurningum þingmanna Leita enn í rústunum í Japan „Við ætlum að fokking lúskra á þeim“ Stofnandi Telegram ákærður og eftirlýstur í Rússlandi Sjá meira